ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Lét Fons borga brúsann

10:44 › 2. mars 2010

Pálmi Haraldsson lét Fons borga ýmis konar kostnað fyrir sig á árunum fyrir hrun. Þrotabú Fons hefur þingfest nokkrar stefnur gegn honum þar sem hann er krafinn um endurgreiðslu á tugum millljóna króna vegna þess. Alls voru tíu stefnur þingfestar gegn honum á fimmtudag og er hann krafinn um milljarða.

Pálma Haraldsson, fjárfestir og eigandi Fons, lét eignarhaldsfélagið greiða fyrir sig ýmis konar kostnað á árunum fyrir hrun. Til að mynda eigu lúxusíbúðar í London, persónulega skuld við annan mann, leigu á bifreiðum ásamt einkabílstjóra, veitingar á dýrum veitingahúsum og gjaldeyri til einkanota. Þrotabú Fons hefur stefnt Pálma vegna þessa og krefst búið þess að fjárfestirinn greiði Fons til baka þá fjármuni sem hann lét Fons greiða fyrir einkaneyslu sína.

Nokkrar stefnur þess efnis eru meðal þeirra 13 stefna gegn Pálma, Jóhannesi Kristinssyni og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni sem hafa verið eða verða þingfestar voru fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Tíu stefnur voru þingfestar á fimmtudaginn. Það er þrotabú Fons sem stefnir í málunum og er markmið búsins með stefnunum að fá til baka um níu milljarða króna.

Fjárkröfurnar gegn Pálma vegna einkaneyslu hans eru þó langt í frá þær stærstu í málunum níu. Hæsta fjárhæðin sem um ræðir er vegna greiðslu Pálma og Jóhannessonar á 4,2 milljarða króna frá Fons til eignarhaldsfélagsins Matthews Holding í Lúxemborg fyrir rekstrarárið 2006. Þrotabúið krefst riftunar á viðskiptunum.

Eins mun þrotabúið stefna Pálma vegna riftunar á kaupum hans á breska flugfélaginu Astreus og krefjast þess að hann greiði nærri 3,5 milljarða aftur til búsins. Sú stefna verður þingfest í apríl. Lunginn af þeirri fjárhæð sem þrotabúið vill ná til baka er því í þessum tveimur málum: Arðsmálinu og kaupunum á Astreus.

Fons leigði íbúð af Pálma fyrir Pálma
Hinar stefnurnar eru þó forvitnilegar fyrir ýmsar sakir.
Í einni stefnunni kemur til dæmis fram að Pálmi lét Fons greiða fyrir sig leigu á lúxusíbúð í London sem kostaði rúma milljón á mánuði. íbúðin var í eignarhaldsfélagsins Chalk Investment Ltd., sem skráð er á eyjunni Tortólu á Bresku Jómfrúareyjum. Chalk Investment var aftur í eigu eignarhaldsfélagsins Núps sem var í eigu Pálma. Pálmi lét því Fons borga eignarhaldsfélagi sem hann átti sjálfur leigu fyrir íbúð sem hann átti sjálfur. Samtals greiddi Fons leigu íbúðarinnar fyrir Pálma í meira en þrjú ár, frá því í desember 2004 og þar til í apríl 2008.
Jafnframt segir í stefnunni að af framburði fyrrum starfsmanna Fons að dæma hafi Pálmi verið sá eini sem notaði íbúðina en ekki aðrir starfsmenn Fons. „Greiðslur á leigu voru því að mati skiptastjóra til málamynda, óþarfar og til hagsbóta fyrir stefnda Pálma á kostnað Fons hf.
Í sömu stefnu kemur jafnframt fram að Pálmi hafi látið Fons endurgreiða fyrir sig ýmsan kostnað. Til að mynda símreikning, gjaldeyriskaup upp á tæpar 4 milljónir, leigu á bifreiðum auk símakostnaðar samstarfsmanns hans.
Í stefnunni segir að ekkert hafi réttlætt þessar greiðslur frá Fons til Pálma og því verði að: „... líta á framangreindar greiðslur sem gjafagerninga.“ Samtals er Pálmi krafinn um endurgreiðslu á rúmlega 47 milljónum króna í stefnunni.

Lét Fons borga 500 þúsund króna hótelreikning
Önnur stefna snýst um að Pálmi greiði Fons til baka rúmar 9 milljónir króna sem hann lét félagið greiða fyrir sig vegna „ófrádráttarbærs ferða- og fundakostnaðar“ eins og það er orðað í bókhaldi hans og haft er eftir í stefnunni.

Í stefnunni segir: „Á reikninginn voru færslur sérstaklega merktar stefnda Pálma meðal annars vegna farseðla, veitinga, gistinótta á hótelum, knattspyrnuleikja erlendis og fleira.“ Um er að ræða útgjöld hans á árinu 2008.

Í stefnunni er tilgreint nákvæmlega í hvað Pálmi eyddi þessum níu milljónum. Þar er meðal annars að finna 500 þúsund króna greiðsla vegna leigu á þyrlu, margar greiðslur til hótela upp á fleiri hundruð þúsund krónur - hæsti reikningurinn er tæplega 500 þúsund Gramercy Park lúxushótelinu í New York - og fjölmargar himinháar greiðslur til veitingahúsa.

Hæsta greiðslan í yfirlitinu er til Sarl Le Bistrot en hún hljóðar upp á samtals upp á rúmlega 2,7 milljónir króna. Ekki er vitað hvað Sarl le Bistrot en orðið bistrot þýðir veitingahús á frönsku. Sarl er hins vegar skammstöfun á eignarhaldsfélag í frönskumælandi, líkt og ehf. á Íslandi, og er því líklegra að um sé einhvers konar viðskipti tengd eignarhaldsfélagi frekar en greiðslu vegna matarkaupa á veitingahúsi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.