Benedikt XVI páfi er undir miklum þrýstingi að upplýsa hvaða vitneskju hann býr yfir hvað varðar ofbeldi innan vébanda kirkjunnar af hálfu kaþólskra presta. En fleiri kirkjunnar menn eru undir þrýstingi, þeirra á meðal Seán Brady, kardínáli á Írlandi, sem sagðist eingöngu myndi segja af sér ef páfi gerði kröfu um slíkt.
Kröfur fórnarlamba kaþólskra presta á Írlandi urðu háværari eftir að hann viðurkenndi að hafa tekið eiðstaf af tveimur fórnarlömbum um að þegja yfir því ofbeldi sem þau sættu.
Helen McGonagle, ein þeirra kvenna sem sættu kynferðislegu ofbeldi í barnæsku, sagði að Brady hefði „óhreinar hendur“ sem væru „litaðar blóði fjölda fórnarlamba“ og þrýsti á hann að segja af sér.
Ekki hans að kæra
Seán Brady kardínáli viðurkenndi að hafa tekið þátt í tveimur leynilegum athöfnum árið 1975 þegar dreng og stúlku var gert að undirrita eið um þögn vegna ofbeldis á hendur þeim. Á þeim tíma var Brady í hlutverki prests og lögfræðings og sagði hann að hann hefði tekið viðtöl við börnin um það ofbeldi sem þau höfðu sætt af hálfu Brendans Smyth, prests og barnaníðings sem var fangelsaður árið 1994.
„Já, ég vissi að um glæp var að ræða. En mér fannst það ekki vera á mína ábyrgð að kæra hann til lögreglunnar. Eftir á veit ég að ég hefði átt að aðhafast meira, en ég hélt á þeim tíma að ég gerði það sem skyldan bauð mér,“ er haft eftir Brady haft á vefsíðu The Times.
Í desember sagði Seán Brady að hann myndi segja af sér ef í ljós kæmi að aðgerðaleysi af hans hálfu hefði valdið því að börn sættu kynferðislegu ofbeldi.
Fyrr í vikunni varði Brady aðgerðir sínar og þann eiðstaf sem tekinn var af börnunum þegar hann svaraði spurningum um hví hann aðhafðist ekkert vegna Brendans Smyth. Brady fullyrti að eiður barnanna hefði verið hluti af ferli sem varð til þess að Smyth missti réttindin.
Barnaníð í kjölfar meðferðar
Sem fyrr segir mæðir mikið á Benedikt páfa og um helgina snerist Páfagarður honum til varnar eftir að í ljós kom að prestur sem beitt hafði ellefu ára dreng í Essen í Þýskalandi kynferðislegu ofbeldi hafði verið sendur í meðferð til München árið 1980.
Umræddur prestur, Peter Hullermann, tók upp fyrri iðju eftir að hafa verið leyft að snúa aftur til starfa og árið 1986 var hann sektaður, fékk átján mánaða skilorð og var bannað að starfa með börnum þaðan í frá.
Það dugði greinilega ekki til því á mánudaginn upplýsti erkibiskupsdæmið í München að hann hefði verið rekinn fyrir að fara í bága við skilyrði starfsheimildar hans. Samkvæmt fregnum frá Ítalíu fór Hullermann nýlega í útilegu með ungu fólki í Bæjaralandi þar sem sókn hans var. Yfirmaður Hullermanns, Josef Obermaier, hefur sagt af sér.
„Séra“ fjarlægt af legsteini
Af Brendan Smyth er það að segja að hann safnaðist til feðra sinna árið 1997 í fangelsi og hafði þá afplánað rúmlega fjögur ár af sjö ára fangelsisdómi. Smyth varð sjötíu ára og banamein hans var hjartaslag.
Jarðarför hans fór fram árla morguns og var gröfin þakin steinsteypu til að fyrirbyggja skemmdarverk. Hann var jarðaður í Kilnacrott-klaustri á Írlandi.
Í október árið 2007 hafði eitt fórnarlamba Smyths í gegn að starfsheitið „séra“ var fjarlægt af legsteini grafar Brendans Smyth.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars
