ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Hrædd við að eldast

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:25 › 16. mars 2010

Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir hefur verið mikið milli tannanna á fólki vegna sambands hennar við knattspyrnuhetjuna Dwight Yorke. Kristrún kynntist Yorke þegar hún var au pair á Englandi. Nú hefur hún kynnst hinu ljúfa lífi og viðurkennir að það sé erfitt að koma heim í hversdagsleikann á Íslandi. Hér lýsir Kristrún Ösp glamúrnum í heimi hinna frægu og ríku, baktalinu og vinnunni á elliheimilinu sem heldur henni niðri á jörðinni.

„Ég er svo ung og er ekki tilbúin í alvarlegt samband með börnum og öðru sem því fylgir,“ segir fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir en blöðin hafa fjallað mikið um Kristrúnu og samband hennar við knattspyrnuhetjuna Dwight Yorke.

Aldur er afstæður
Kristrún er tvítug Akureyrarmær og kynntist fótboltamanninum þegar hún fór sem au pair til Englands fyrir tveimur árum. Í dag er hún komin heim og starfar á elliheimili fyrir norðan og líkar vel. Hún er þó alltaf með annan fótinn úti hjá Yorke enda afar góðir vinir. Þegar hún er spurð hvort þau séu par hikar hún. „Ég veit eiginlega ekki hverju ég á að svara. Hann vill að ég flytji út og ég er mjög hrifin af honum. Hann er heillandi, flottur og skemmtilegur en ég held að ég sé ekki ástfangin. Allavega ekki ennþá,“ segir Kristrún og bætir við að hún finni stundum fyrir aldursmuninum á milli þeirra en Yorke er 38 ára. „Stundum fer í taugarnar á mér að hann sé svona miklu eldri en ég finn sjaldnast fyrir því enda er aldur afstæður. Það er bara spurning um að vera á sama stað í lífinu og kannski er hann núna til í fjölskyldupakkann og verður orðinn of gamall þegar ég er tilbúin í það.“

Lét hafa fyrir sér
Kristrún hefur kynnst hinu ljúfa lífi. Á Englandi dvaldi hún hjá afar efnaðri fjölskyldu í ríkra manna bænum Alderley Edge. Hjónin sem hún bjó hjá eru í fjárfestingabraski og á meðal nágranna þeirra voru Beckham-hjónin, áður en þau fluttu til LA, auk þess sem knattspyrnumaðurinn og kyntáknið Ronaldo á hús í hverfinu. „Þetta er yndisleg fjölskylda sem tók mig með sér í ferðalög um alla Evrópu og þar á meðal í tvær skíðaferðir í Frönsku Alpana,“ segir hún og viðurkennir að það hafi verið viðbrigði að koma heim aftur til Íslands. „Það er samt alltaf gott að koma heim og ég er mjög náin foreldrum sínum og systkinum. Mamma og pabbi styðja mig í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur og vita að þau þurfa ekki að hafa áhyggjur af mér. Ég var ekkert rólegasti unglingurinn og hef látið þau hafa fyrir mér en þau vita að ég er sjálfstæð og ábyrgðarfull. Ef ég er hamingjusöm og glöð eru þau það líka. Ég veit samt alveg að ef þau gætu valið mann fyrir mig þá væri hann ekki 38 ára,“ segir hún en Kristrún Ösp á yngri bróður og eldri systur sem mun eignast sitt fyrsta barn á næstum dögum.

Allt snýst um útlit
Kristrún fer reglulega út að hitta Yorke og veit sjaldnast í hvaða ævintýrum hún mun lenda áður en hún fer af stað. Fótboltamaðurinn á hús úti um allt og hefur líka boðið henni í skemmtisiglingu á skemmtiskipi þar sem þau dvöldu ásamt knattspyrnumanninum Andy Cole og hans eiginkonu. Kristrún segir margt til í sjónvarpsþáttunum Footballers' wives um lífstíl þeirra frægu og ríku. „Þetta snýst rosalega mikið um útlit og að líta vel út. Þessar konur eru flestar miklu eldri en ég en hafa tekið mér ótrúlega vel. Við náum mjög vel saman, kannski er ég bara svona gömul sál,“ segir hún og bætir við að þessum hópi fylgi ekki dóp og rugl. „Ég hef aldrei prófað eiturlyf en þegar við erum á flottum skemmtistöðum í kringum ríkt fólk sem hefur efni á slíku er manni stundum boðið en ég hef alltaf sagt nei.“

Lifir sem prinsessa
Kristrún segir vinnuna á elliheimilinu hjálpa sér við að halda sér á jörðinni og það sé gaman og gefandi að hugsa um gamla fólkið. „Ætli ég sé samt ekki með smá dívustæla þegar ég er nýlent heima eftir að hafa dvalið úti í pinsessulífinu mínu. Annars er ég algjör prinsessa heima líka,“ segir hún hlæjandi og bætir við að hún skilji stundum ekkert í af hverju leigubílstjórar opni ekki fyrir hana hurðina. „Ég er hoppandi á milli þessara tveggja heima og er oft hneyksluð á að fá ekki betri þjónustu. Ég reyni samt að fela það nema heima fyrir en mamma og pabbi eru vön þessum stælum enda kunna þau á mig.“

Lét hann ganga á eftir sér
Kristrún vissi ekki hver Yorke væri þegar hann gaf sig á spjall við hana á veitingahúsi í litlum bæ á Englandi. „Við vinkonurnar vorum á leiðinni yfir á annan stað þegar hann og félagar hans komu og þeir eltu okkur yfir og buðu okkur í glas. Ég lét hann ganga á eftir mér og ekki batnaði það þegar stelpurnar sögðu mér hver hann væri. Þegar við erum saman þarf hann nánast að slá kvenfólkið af sér en ég hef alltaf verið mjög róleg og yfirveguð yfir honum og hans frægð og það er kannski það sem hann hrífst af,“ segir hún.

Yorke á barn með glamúrmódelinu Katie Price, öðru nafni Jordan. Þau tvö hafa rifist mikið í fjölmiðlum um drenginn en Jordan sakar hann um afskiptaleysi en hann hana um að leyfa sér ekki að hitta soninn. Kristrún segist aldrei hafa hitt Jordan. „Yorke talar voðalega lítið um hana og hló bara þegar hún gifti sig um daginn. Hann talar hins vegar reglulega um son sinn og sagði mér frá honum fyrsta kvöldið sem við hittumst. Ég heyri náttúrulega bara hans hlið en ég held að hann vilji vera í sambandi við barnið sitt. Jordan er bara erfið við hann. Þau eru ekki vinir.“

Afþakkaði háar upphæðir
Í fyrra tók Kristrún tók þátt í Ungfrú Norðurland og hafnaði í fimmta sæti. Hún afþakkaði keppnisrétt í Ungfrú Ísland og ákvað að slík keppni væri ekki fyrir hana. „Ég hefði viljað ná lengra en þar sem það tókst ekki ákvað ég að láta gott heita. Ég hef setið mikið fyrir fáklædd og það fór kannski fyrir brjóstið á einhverjum og útskýrir ef til vill útkomuna. Kannski þótti ég ekki góð fyrirmynd. Ég hef líka meiri áhuga á að verða glamúrfyrirsæta,“ segir hún en bætir við að hún eigi engar sérstakar fyrirmyndir í bransanum. „Ætli Ásdís Rán sé ekki sú eina hér á landi sem hefur náð langt. Hún er dugleg að koma sér áfram og mér finnst hún mjög flott. Öfund og baktal fylgir þessum bransa en slæm umföllun er betri en engin,“ segir Kristrún sem voru boðnar háar fjárhæðir fyrir að opna sig um samband þeirra Yorke af slúðurblaðinu News of the World.

„Þeir vildu að ég myndi segja frá mjög persónulegum hlutum sem mér fannst ekki við hæfi. Mér hefur líka verið boðið að vera Page 3 stelpan hjá The Sun sem ég afþakkaði líka því mér fannst ég ekki tilbúin. Þá hefði ég þurft að vera ber að ofan og í það var ég ekki tilbúin 18 ára. Sem betur fer. Í dag gæti ég vel hugsað mér þetta enda eru miklir peningar í þessum bransa og t.d. Jordan byrjaði sinn feril þarna,“ segir hún og bætir við að Yorke sé ekki á móti því að hún gerist glamúrmódel. „Eini gallinn við Yorke er hvað hann er afbrýðisamur og það getur farið í taugarnar á mér en hann setur sig ekki á móti því að ég sitji fyrir. Ég vil bara vinna að mínum ferli á mínum hraða og gera hlutina rétt en ekki heimskulega.“

Afbrýðisemi heillar ekki
Aðspurð um dæmi um afbrýðsemi knattspyrnumannsins segir hún að Yorke og Cole hafi eitt skiptið setið á fundi í glerherbergi með útsýni yfir sundlaugina. „Ég og konan hans Cole vorum í sólbaði niðri og spjölluðum við einhverja karlmenn sem brugðu sér að okkur. Yorke var ekki ánægður og starði á okkur og gat ekkert einbeitt sér að fundinum en ég hló bara að honum.“ Sjálf segist hún stundum verða afbrýðisöm en að henni takist þá að fela það. „Ég reyni alltaf að halda kúlinu,“ segir hún og brosir.

Þoli baktalið
Ævintýri Kristrúnar hafa ekki komið íslenskum vinkonum hennar á óvart. „Þær þekkja mig og vita að svona er ég einmitt. Ég hafði meira að segja grínast með það áður en ég fór út að ég myndi ekkert koma heim aftur því ég ætlaði að ná mér í moldríkan knattspyrnumann. Það var sagt í gríni en svo var það raunin,“ segir hún og bætir við að Íslendingar séu mjög forvitnir um Yorke og líferni þeirra frægu og ríku í Englandi. „Afi er mikill Liverpool-maður og sagði að ég ætti nú frekar að ná mér í einhvern í þeirra röðum,“ segir hún brosandi og bætir við að vinkonur hennar hafi alveg rétt fyrir sér, þessi heimur eigi afar vel við hana. „Þetta er búið að vera mikið ævintýri en er að sama skapi erfitt líka. Það hafa allir með skoðun á manni og það er ekki alltaf auðvelt. Ég hef vanið mig á að vera ekkert að spá í þetta og á mína vini sem ég veit að baktala mig ekki og hef beðið þá um að segja mér ekkert af þessum sögum sem ganga. Hins vegar gerði ég einu sinni þau mistök að flakka um netið og lesa það sem þar hefur verið skrifað um mig. Það mun ég aldrei gera aftur og ég reyni að hugsa sem minnst um slíkt. Ég er mjög ákveðin, sjálfstæð, með bein í nefinu og ég þoli þetta,“ segir hún og tekur dæmi um baktal sem hún hafi orðið fyrir þegar hún hafi fjallað um heilsuvörur sem hún sé að selja. „Ég skil ekki fólk sem þarf að smjatta á því sem aðrir eru að gera og sjálf reyni ég að tala ekki illa um fólk. Auðvitað baktala allir einhvern tímann en ég geri það þá við bestu vini mína sem ég veit að fara ekki með hlutina lengra. Ég er ekki góð með mig og lít ekkert stórt á mig þótt sumir haldi það kannski út af því hvernig ég ber mig. Ég er bara vön að bera mig tignalega og hef alltaf gert en er ekkert að sýnast vera eitthvað.“

Þekkir ástina
Kristrún segist spennt að eignast frændsystkini og að hún stefni á að eignast börn í framtíðinni. Sem au pair hafi hún passað þrjú börn og hafi líkað barnfóstruhlutverkið vel. „Sumar vinkonur mínar eru komnar með börn og ein meira að segja búin að gifta sig svo slíkar hugsanir hafa alveg hvarflað að mér. Ég ætla samt ekki að plana neitt,“ segir hún og bætir við að hún verði að verða ástfangin þegar hún ákveði að eyða restinni af ævinni með einhverjum. „Ég ætla ekki að fara mér of hratt og gera einhver mistök. Annars væri ég löngu flutt út og komin í fast samband. Ég vil bara vera alveg viss áður en ég tek slíkar ákvarðanir. Ég hef einu sinni verið ástfangin þegar ég var yngri en við vorum saman í fjögur ár. Þar til ég kynnist öðru voru það mín kynni af ástinni.“

Íslenskir karlar dónar
Aðspurð eiga íslenskir karlmenn séns í Kristrúnu en hún segir að til þess verði þeir að kunna sig. „Ég var bara 18 ára þegar ég fór út og nýbyrjuð að deita svo mín fyrsta reynsla var af mjög kurteisum karlmönnum. Íslenskir karlmenn eru ekki að heilla mig og mín reynsla er sú að ef þér er boðið í glas hér heima þá ætlast þeir til þess að þú farir í rúmið með þeim. Svoleiðis hugsa þeir bresku ekki. Minn maður verður að vera góður við mig og hann verður að hugsa vel um sig og líta vel út. Ég hef alltaf heillast af íþróttamönnum en þeir verða að eiga sitt líf. Ég hef nóg að gera og vil hafa mitt „space“ og ætla ekki að breyta því þótt ég fari að vera með einhverjum manni.“

Nekt lítið mál
Hún segir umfjöllun slúðurblaðanna ekki hafa farið fyrir brjóstið á foreldrum hennar og að þau kaupi alltaf Séð og heyrt þegar hún sé á forsíðunni. „Þau skilja samt lítið í þessu og finnst skrítið að það sé ekki eitthvað merkilegra að gerast en eitthvað sem snýr að mér en umfjöllunin hefur verið mikil síðustu tvö árin og þau eru orðin vön þessu.“
Aðspurð segist hún ekki óttast að sitja fyrir nakin og jafnvel ekki þótt fjölskyldan eigi eftir að sjá myndirnar. „Fyrir mig er nekt ekki mikið mál og ég er vön að spranga um á nærbuxunum heima hjá mér. Ég er sátt við líkama minn og veit ekki hvað feimni er,“ segir hún og viðurkennir fúslega að hafa farið í brjóstastækkun. Ekki af því að bransinn hafi krafist þess heldur af því að hún hafi sjálf valið það. „Ég ákvað það einn daginn og eins og með flest sem mér dettur í hug verður það að gerast í dag svo ég lét strax verða af því og sé ekki eftir því. Ég vil líta vel út og á eflaust eftir að láta lappa upp á eitthvað meira í framtíðinni. Ég er mjög hrædd við að eldast og helst vildi ég vera tvítug í tíu ár og þrítug í tíu ár. Ég er bæði hrædd við dauðann og svo vil ég halda útliti mínu sem lengst. Til þess þarf að hugsa vel um sig og þótt ég geri það fylgir þessu líferni mínu mikið áfengi og djamm.“

Glamúrinn heillar
Kristrún Ösp ætlar sér langt og hefur fulla trú á sjálfri sér. Hún stefnir til Bretlands í nánustu framtíð því þar segir hún að glamúrinn sé að finna. „Mér líkar ofsalega vel í Bretlandi og þegar kemur að því að flytja kemur ekkert annað land til greina. Þar er bókstaflega búist við manni að sitja fyrir og peningarnir freista. Hver vill ekki græða? Ég veit samt að með því að velja þessa braut er ég að gefa ákveðið skotleyfi á mig en það verður þá bara að hafa það. Allir sem koma sér á framfæri lenda í aðkasti og það er bara fylgifiskur frægðarinnar. Það talar enginn um ómerkilegt fólk svo ég ætti kannski bara að vera ánægð með þetta baktal,“ segir hún hlæjandi að lokum.

indiana@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.