Helstu forsprakkar mótorhjólaklúbbsins MC Iceland buðu fyrirtækjaeigendum í Hafnarfirði upp á öryggisgæslu á nóttunni síðastliðið haust, stuttu áður en þeir urðu væntanlegir félagar í Hells Angels. Í bréfi sem eigendur fyrirtækjanna fengu í hendur kemur fram að þjónustan felist í því að fyrirtæki séu könnuð tvisvar á klukkustund með óreglulegum hætti þó, svo innbrotsþjófar eigi erfiðara með að athafna sig. Verð þjónustunnar átti að vera 3500 krónur á mánuði og var um 12 mánaða samning að ræða. Lögreglan í Hafnarfirði hafði veður af þessum fyrirætlunum og stöðvuðu starfsemina, þar sem þeir höfðu ekki leyfi til að reka öryggisþjónustu. Hjá Hells Angels á norðurlöndum er verndarþjónusta ein af tekjuleiðum samtakanna.
Óttinn hreiðrar um sig
Þeir sem gerst þekkja til segja að nú haldi meðlimir MC Iceland sig til hlés á meðan umsókn þeirra um fulla aðild að Hells Angels sé til meðferðar. Þeir megi ekki koma sér í vandræði af ótta við viðbrögð yfirvalda, en Haraldur Johannesen ríkislögreglustjóri hefur sagt opinberlega að hann vilji banna Hells Angels hér á landi.
Nú þegar er ótti farinn að hreiðra um sig í undirheimunum á Íslandi, jafnvel þótt MC Iceland sé ekki formlega orðinn hluti af Hells Angels. Þeir sem eru í fíkniefnasölu í undirheimunum eru logandi hræddir við framhaldið og hvernig þeim sjálfum muni reiða af í þessum harða heimi þegar MC Iceland fái fulla aðild og geti merkt sig samtökunum. Þá muni koma til uppgjörs í undirheimunum sem leiði annaðhvort til þess að Hells Angels nái undir sig fíkniefnasölu eða fái ákveðna prósentu af sölu annara fíkniefnasala. Þessu uppjöri muni fylgja aukin harka og öllum aðferðum verði beitt til að Hells Angels nái sem sterkastri stöðu á fíkniefnamarkaðnum.
Aðild í haust
Talið er að MC Iceland eigi aðeins örfá skref eftir til að hljóta fulla aðild að Hells Angels og er því haldið fram að þegar það gerist, sé ógerningur að snúa þeirri þróun við. Hells Angels sé þá komið til að vera á Íslandi og þar með hefjist stóraukin skipulagning á glæpum á Íslandi með alþjóðlegum tengingum – í krafti nafnsins. Í dag er talið að MC Iceland telji um 20 meðlimi og að áhangendur séu á bilinu 20 til 30 manns í tveimur mótorhjólaklúbbum.
Austur evrópskar glæpaklíkur
Í fyrrahaust gerði lögreglan mikið átak í að rannsaka innbrot sem talin voru framin af erlendum glæpahópum. Hátt í tuttugu manns voru handteknir og kom í ljós að um þrjú pólsk þjófagengi var að ræða. Taldi lögreglan að mennirnir hafi verið sendir hingað til lands gagngert til að brjótast inn og koma þýfinu á öruggan stað. Þýfið átti svo að senda úr landi og hefur mikið af þýfi frá Íslandi fundist á mörkuðum í Póllandi og Litháen. Ljóst er að þessi starfsemi er mjög skipulögð og þeir menn sem eru sendir hingað eru miklir kunnáttumenn þegar kemur að þjófnaði og innbrotum.
Það hefur einnig tíðkast að erlendir glæpahópar hér á landi fá íslenska eiturlyfjaneytendur til að brjótast inn í skiptum fyrir lítilræði af fíkniefnum. Góssið er þá selt á svörtum markaði, senterlendis eða notað af meðlimum glæpahópanna.
Vinna saman
Samkvæmt áhættugreiningu Evrópulögreglunnar frá árinu 2009 á skipulögðum glæpahópum kemur fram að smyglleiðir fíkniefna séu mjög skipulagðar og glæpahópar víða um Evrópu vinni saman að því að koma fíkniefnum á áfangastað. Þar er meðal annars smyglleiðum kókaíns, sem framleitt er í Suður ameríku lýst ítarlega og sérstaklega tekið fram að vöxtur sé á smygli í gegnum Brasilíu. Þaðan liggur smyglleiðin til Spánar og annarra Evrópulanda, en smygl í gegnum vestur Afríku sé að aukast. Í dag sitja þrír íslendingar í fangelsi í Suður Ameríku svo vitað sé, en nýlega var fjórði maðurinn látinn laus úr haldi.
Fimm svæði
Í áhættugreiningunni er Evrópu skipt upp í fimm svæði. Eitt þeirra er Norð-austur svæðið þar sem eru meðal annars baltnesku löndin. Í skýrslunni er þess sérstaklega getið að litháískir glæpahópar smygli ólöglegum fíkniefnum úr austri til vesturs, meðal annars amfetamíni og
efnum til amfetamínframleiðslu til Norðurlandanna. Þetta kemur heim og saman við þær fréttir af litháískum mönnum sem hafa verið stöðvaðir í Leifsstöð með amfetamínvökva sem notaður er til amfetamínframleiðslu. Sérstaklega er tekið fram í skýrslunni að glæpahópar í austur evrópu hafi komið sér upp kerfi þar sem hópar manna séu sendir á hvert „markaðssvæði“ fyrir sig og sjái um dreifingu fíkniefnanna í hverju landi fyrir sig.
Skipulagðir glæpahópar
Í sænskri skýrslu sem fjallar um skipulagða glæpastarfsemi í baltnesku löndunum kemur fram að glæpahópar í þessu löndum séu mjög vel skipulagðir, þeir hafi skýr markmið og séu ávallt að leita að nýjum leiðum til útrásar á glæpabrautinni. Þar segir einnig að glæpahópunum megi skipta í þrennt; þá sem eru með fleiri en 75 meðlimi, þá sem eru með 25-75 meðlimi og að síðustu þá sem hafi 25 eða færri meðlimi innanborðs.
Tindátarnir neðst
Það sem sameinar flesta glæpahópa, hvort sem um er að ræða austur evrópska eða meðlimi mótorhjólasamtakanna Hells Angels, er að efst tróna „foringjarnir“, þá koma skipuleggjendurnir og fyrir neðan þá eru þeir sem stjórna neðsta lagi hópsins; tindátunum svokölluðu en þeir eru sagðir vinna „skítverkin“ fyrir glæpahópana. Með „skítverkum“ er átt við sölu fíkniefna, innheimtu skulda með handafli, innbrot, auðgunarbrot og aðra glæpastarfsemi.
Illa stödd fyrirtæki fengin til að koma peningum í umferð
Í mati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra á alþjóðlegri glæpastarfsemi sem kom út fyrir um ári er sérstakur gaumur gerður að efnahagshruninu og hvaða þýðingu það hafi á starfsemi skipulagðra glæpahópa hér á landi. Glæpahóparnir nýti sér ástandið og leggi ágóða af fíkniefnasölu og öðrum glæpum í fasteignir og fyrirtæki. Kemur fram í skýrslunni að greiningardeild Ríkislögreglustjóra búi yfir upplýsingum um að slík þróun sé nú þegar hafin. Heimildarmenn DV fullyrða einnig að nú sé tækifæri fyrir glæpahópa að leita til íslenskra fyrirtækja sem eru illa stödd fjárhagslega og fá þau til að koma fíkniefnapeningum í umferð, fyrir dágóðar upphæðir.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars