Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, er á meðal tuga einstaklinga sem flugu í einkaþotum sem Glitnir og eignarhaldsfélagið Milestone leigðu saman hjá þotuleigunni Netjets á árunum fyrir hrun. Nafn Boga kemur fyrir á lista með upplýsingum um farþega þessara þotna sem DV hefur undir höndum.
Á listanum eru nöfn fjölda starfsmanna Glitnis og Milestone en einnig margra ættingja þeirra, maka og barna. Nöfn fjölda þekktra einstaklinga eru á farþegalistanum, meðal annars Bjarni Ármannsson, Lárus Welding, Róbert Wessmann, Karl og Steingrímur Wernerssynir, Þór Sigfússon og Þorgils Óttar Mathiesen.
Farþegalistinn er líkast til frá því á árinu 2007 en þá eyddi Milestone nærri 270 milljónum króna í leigu á einkaþotum frá Netjets og annarri þotuleigu, Closeair, en þær upplýsingar koma fram í skýrslu endurskoðendafyrirtækisins Ernst og Young um starfsemi Milestone. Árið 2008 eyddi Milestone svo nærri 300 milljónum í leigu einkaþotna. Samtals voru þetta því nærri 600 milljónir sem félagið eyddi í að leigja einkaþotur á tveggja ári tímabili. Ekki er hins vegar vitað hversu miklu Glitnir eyddi í að leigja slíkar vélar.
Milestone og Glitnir munu hafa deilt kostnaðinum af leigu þotnanna, samkvæmt heimildum DV, og voru þær væntanlega að mestu notaðar í erindum tengdum viðskiptum en einnig til að flytja fólk til útlanda í frí. Þetta sést þegar litið er til hvert var flogið.
Bogi fór í frí
DV hafði samband við Boga Nilsson til að ræða við hann um málið. Bogi segir fyrst, aðspurður í samtali við DV um hvort hann hafi flogið í einkaþotu á vegum Milestone eða Glitnis, að hann viti það ekki. „Ég hef ekki hugmynd um það,“ segir Bogi. Þegar blaðamaður segir við Boga að nafn hans og sona hans tveggja sé á lista yfir farþega sem flugu í einkaþotum á vegum þessara tveggja aðila, segir Bogi. „Ég veit ekki hver eigandinn var á ég við. Ég hef farið í svona flugvél en á vegum hvers vélin var veit ég ekki,“ segir Bogi.
Spurður hvort hann hafi flogið í vélinni á meðan hann var ríkissaksóknari segir Bogi að þetta hafi verið eftir að hann lét af störfum sem ríkissaksóknari vegna aldurs sakir sumarið 2007. Bogi er sjötugur að aldri og hafði verið ríkissaksóknari í tíu ár þegar hann hætti störfum. „Þetta var eftir það. Ég hætti þarna 2007,“ en DV hefur ekki aðrar upplýsingar um hvenær það var sem Bogi flaug í einkaþotunni.
Bogi segir aðspurður af hverju hann hafi flogið með einkaþotunni að hann hafi farið á henni í frí. „Ég var að fara í frí,“ segir Bogi sem ekki vildi ræða málið frekar í samtali við blaðamann DV þar sem hann var að horfa á sjónvarpið - leik Íslands og Póllands í Evrópukeppninni í handknattleik var nýlokið þegar samtalið átti sér stað.
Synirnir tengdir Glitni og Milestone
Þess skal getið að nöfn sona Boga, Bernhards og Boga, eru einnig á listanum, eins og áður segir, en báðir voru þeir tengdir Glitnir og Milestone. Bernhard var yfir lögfræðisviði FL-Group, sem var stærsti hluthafi Glitnis, og Bogi bróðir hans var yfir fjármálasviði fjárfestingabankans Askar Capital frá því í ársbyrjun 2007, en Askar var eitt af dótturfélögum Milestone
Ástæðan fyrir því að fyrrverandi ríkissaksóknari flaug í einkaþotunni kann því að vera sú að báðir synir hans unnu hjá félögum sem tengd voru Glitni og Milestone og að hann hafi fengið að fljúga með einkaþotunni vegna ættartengsla sinna við þá.
DV náði ekki í Bernhard og Boga á sunnudag til að ræða við þá um málið en sá fyrrnefndi býr í London þar sem hann fæst við ráðgjafastörf en sá síðarnefndi er framkvæmdastjóri fjármála hjá flugfélaginu Icelandair.
Sagði sig frá skýrslunni
Þau tíðindi að Bogi hafi flogið í einkaþotu á vegum Milestone og Glitnis eru áhugaverð í ljósi stöðu hans sem fyrrverandi ríkissaksóknara og vegna þeirrar umræðu um hæfi hans til að skrifa um bankahrunið sem vaknaði haustið 2008.
Þá bað núverandi ríkissaksóknari, Valtýr Sigurðsson, Boga um að leiða vinnu við gerð skýrslu um starfsemi Glitnis, Landsbankans og Kaupþings á árunum fyrir bankahrunið. Bogi ákvað hins vegar í nóvember 2008 að hann ætlaði ekki að taka verkefnið þar sem honum fyndist hann ekki njóta nægilegs almenns trausts til að sinna því. Sú staðreynd að hann flaug í einkaþotu á vegum Milestone og eða Glitnis, og tengsl hans sona hans við þessi tvö félög, sýnir að minnsta kosti að líklega var það heppileg ákvörðun hjá Boga að segja sig frá verkinu.
Flogið um alla Evrópu
Þó ekki sé vitað hvert Bogi flaug í einkaþotunni herma heimildir DV að þessar flugferðir Milestone og Glitnis hafi verið notaðar til að ferja farþega út um alla Evrópu og einnig til Bandaríkjanna. Þoturnar voru bæði notaðar til að flytja fólk frá Íslandi og til annarra landa og eins til að flytja fólk á milli tveggja staða í útlöndum.
Þannig mun ein af einkaþotum Netjets hafa flutt Bjarna Ármannsson, forstjóra Glitnis, frá London til Helsinki í febrúar 2007 og svo frá Þrándheimi til Reykjavíkur í mars sama ár.
Wernerssystkinin notuðu þoturnar líka grimmt. Til að mynda flaug Ingunn Wernersdóttir, systir Karls og Steingríms, til Alicante á suðurhluta Spánar í febrúar 2007 og Karl flaug til Pisa á Ítalíu í febrúar sama ár og dvaldi þar í fjóra daga áður en hann flaug aftur heim. Steingrímur bróðir þeirra mun sömuleiðis einnig hafa flogið mikið til og frá London þar sem hann á húsnæði.
Starfsmenn Milestone munu sömuleiðis einnig hafa notað þoturnar töluvert í viðskiptaerindum og meðal annars flogið nokkrum sinnum til Skopje í Makedóníu á árinu 2007 en eignarhaldsfélagið var að hasla sér völl í viðskiptum þar í landi og festi meðal annars kaup á banka, námu og vínekru.
Í langflestum tilfellum hefur DV hins vegar ekki náð að verða sér úti um upplýsingar hvert farþegar Milestone og Glitnis voru að fljúga og í hvaða erindagjörðum. Þetta á til dæmis við um Boga Nilsson, þó vitað sé að hann hafi verið á leið í frí þá er ekki vitað hvert hann fór.
DV mun halda áfram að ræða um farþegalista Milestone og Glitnis í blaðinu á miðvikudaginn og mun þá birta allan nafnalistann sem telur nærri 110 nöfn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars