Einar Karl Haraldsson, almannatengill og núverandi upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, fékk nærri 19 milljónir króna fyrir selda ráðgjafarþjónustu á vegum einkahlutafélags síns Innform árið 2007. Heimildir DV herma að meirihluti þessara greiðslna hafi verið frá Kaupþingi.
Einar Karl vann mikið fyrir þann banka á árunum fyrir hrunið, líkt og komið hefur fram áður í fjölmiðlum. „Ég var að vinna mikið fyrir Kaupþing á þessum árum,“ segir Einar Karl og bætir því við aðspurður að hann geti alveg trúað því að töluverður hluti af seldri þjónustu einkahlutafélagsins hafi verið vegna vinnu fyrir Kaupþing. Hann segist þó ekki vera með það á hraðbergi hversu mikið þetta var.
Ef upphæðinni sem Einar fékk fyrir selda þjónustu á fyrstu fimm mánuðum ársins 2007 er deilt niður á þessa mánuði nema mánaðartekjur hans nærri 4 milljónum króna. Deilt niður á alla mánuði ársins nema þær meira en 1,5 milljónum króna. Við þessa upphæð bætast svo mánaðartekjur Einars Karls sem aðstoðarmanns Össurar Skarphéðinssonar í viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu frá því um mitt ár 2007.
Vann náið með Sigurði
Eitt af því sem Einar Karl mun hafa komið að í sinni vinnu fyrir Kaupþing á þessum tíma var persónuleg ráðgjöf og ræðuskrif fyrir Sigurð Einarsson, stjórnarformann Kaupþings. „Ég vann við ráðgjöf og textagerð af ýmsu tagi,“ segir Einar Karl. Annað sem Einar Karl gerði til dæmis fyrir bankann var að hafa umsjón með upplýsingagjöf vegna samruna Kaupþings og Búnaðarbankans árið 2003.
Einar Karl segist hafa verið í talsverðri vinnu fyrir bankann í allmörg ár og meðal annars unnið með Gunnari Steini Pálssyni almannatengli fyrir bankann fyrir síðustu aldamót.
Einar hóf störf sem aðstoðarmaður Össurar í byrjun júní 2007. Einar Karl segir að hann hafi hætt að vinna fyrir Kaupþing þá en seld þjónusta í Innformi nam einungis 490 þúsund krónum árið 2008. Til enn frekari samanburðar námu greiðslur til Innforms vegna seldrar þjónustu nærri 15,5 milljónum árið 2006 og má reikna með því að hluti þeirra hafi verið vegna vinnu fyrir Kaupþing.
Einar Karl hóf síðan störf sem upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu um haustið 2009.
„Guilt by association“ segir Einar Karl
Einar Karl segist ekki skilja umræðuna um þau störf sem hann vann fyrir Kaupþing á árunum fyrir bankahrun. „Hver er glæpurinn?... Ég hef ekkert gert annað en að selja mína vinnu. Hvað heldur þú að lögfræðingar hafi fengið fyrir sína vinnu á þessum tíma?... Ef það er orðið krímelt að selja vinnu sína, þá er þetta komið á stig sem er bara einhver eltingaleikur,“ segir Einar Karl. Hann segist hafa notið góðs af því, líkt og svo margir aðrir, að vinna fyrir íslensku bankana á árunum fyrir hrunið.
Einar segir að hann líti á þessa umræðu þannig að verið sé að reyna að gera hann sekan um eitthvað sem hann ber ekki ábyrgð á með því að bendla hann við Kaupþing. „Það er reynt að stilla þessu upp sem „guilt by association“. Þetta er svoleiðis umræða... En þetta er ekkert feimnismál fyrir mig og er öllum kunnugt sem hafa samband við mig og þekkja... Það er reynt að gera alla tortryggilega sem eitthvað komu nálægt þessum blessuðu útrásarvíkingum,“ segir Einar Karl.
Hann segir að engan hafi grunað að Kaupþing myndi fara á hausinn árið 2007. „Kaupþing var bara með „flying colours“ árið 2007. Það talaði enginn um að Kaupþing væri að fara á hausinn árið 2007,“ segir Einar Karl.
„Ef ég hefði verið þarna á vettvangi árið 2008 myndi ég skilja þessa umræðu betur en ég fór á annan vettvang um mitt ár 2007... Hvenær verður maður eiginlega afturbatapíka?“ segir Einar Karl sem virðist ekki telja að það sé óheppileg tenging að hann hafi unnið náið með Kaupþingsmönnum á árunum fyrir hrun en vinni nú náið með ráðherrum Samfylkingarinnar í ríkisstjórn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars