ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Niðurlægir Íslendinga

16:08 › 4. nóvember 2010
Tony Pulis er enginn Íslandsvinur.

Tony Pulis er enginn Íslandsvinur. Mynd Reuters

  • Tryggvi Guðmundsson var látinn keyra bíl Kenwyne Jones á eftir liðsrútunni.

    Tryggvi Guðmundsson var látinn keyra bíl Kenwyne Jones á eftir liðsrútunni.Mynd Reuters

  • Pulis fyrsti Bjarna Guðjóns hjá tveimur liðum.

    Pulis fyrsti Bjarna Guðjóns hjá tveimur liðum.Mynd Reuters

Fara í myndagallerý →

Í fjórða skiptið á leiktímabilinu þurfti Eiður Smári Guðjohnsen að sitja allan tímann á bekknum hjá Stoke þegar liðið tapaði gegn Everton, 1-0, á Goodison Park um síðastliðna helgi. Eiður hefur ekki enn fengið að byrja leik með Stoke frá því hann gekk í raðir liðsins á lokadegi félagaskipta í ágúst og á laugardaginn var hann ónotaður varamaður í fjórða skiptið á leiktíðinni. Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, hefur áður farið illa með Íslendinga en samband hans við þá hefur sjaldan verið gott. Pulis gerði þeim Tryggva Guðmundssyni og Þórði Guðjónssyni morgunljóst að hann myndi aldrei nota þá þegar íslenskir eigendur Stoke keyptu þá til félagsins í ársbyrjun 2005. Niðurlægði Pulis Tryggva illilega með því að láta hann keyra bíl annars leikmanns á eftir rútunni.

Eins fór hann illa með feril Bjarna Guðjónssonar og frysti hann hjá tveimur liðum og endaði þar með atvinnumannaferil hans.
Stoke Holding, íslenska eignarhaldsfélagið sem átti Stoke, réð Tony Pulis til starfa í nóvember 2003 þegar Steve Cotterill, sá er tók við af Guðjóni Þórðarsyni, sagði upp störfum. Í byrjun tímabilsins 2004/2005 var mikil kergja á milli Pulis og íslensku stjórnarinnar sem fékk að bitna á íslensku leikmönnunum. Pulis var rekinn frá liðinu en ráðinn aftur um leið og Peter Coates, sá sem seldi Íslendingunum félagið, keypti það aftur.

Rándýr á bekknum
Eftir komu Eiðs til Stoke gagnrýndi Pulis hann harkalega í fjölmiðlum fyrir það í hversu slæmu formi hann væri. „Ég veit ekki hvað hann var að gera í sumar,“ sagði Pulis um Eið og bætti því við að einhver tími þyrfti að líða þar til Eiður gæti spilað heilan leik með Stoke. Eiður hefur nú æft með Stoke í tvo mánuði og spilað þrjá varaliðsleiki. Sú afsökun að Eiður sé í slæmu formi hlýtur að vera orðin úldin af elli en um miðjan október sagðist Eiður vera tilbúinn til að spila heilan leik.
Knattspyrnuspekingum hefur komið á óvart hversu mikið Eiður er látinn dúsa á bekknum, sérstaklega vegna launa hans. Enskir miðlar greindu frá því að Eiður hafi tekið á sig launalækkun upp á tíu þúsund pund eða 1,8 milljónir króna svo samningar gætu náðst. Er því Eiður með 65.000 pund í vikulaun eða því sem nemur ellefu og hálfri milljón króna.

Veikur Kenwyne Jones í stað Eiðs
Fyrir viku héldu margir að Eiður Smári fengi loks að byrja leik með Stoke þegar liðið fékk West Ham í heimsókn í deildarbikarnum. Er deildarbikarinn oft nýttur til að gefa leikmönnum á bekknum tækifæri og bárust þær fréttir frá Englandi að nú væri loks komið að Eiði. Svo var þó ekki. Langtímauppáhald Pulis, framherjinn Kenwyne Jones, var látinn spila leikinn í stað Eiðs. Jones var veikur en samt tekinn fram yfir Eið.
„Kenwyne vildi ekki spila leikinn en ég stappaði í hann stálinu og sendi hann út á völlinn. Hann var sveittur og kaldur og sagðist hafa verið slappur í viku,“ sagði Pulis eftir leikinn sem tapaðist, 3-1. Kom Eiður inn á sem varamaður á 58. mínútu og þar sem leikurinn fór í framlengingu fékk hann að spila í rétt rúma klukkustund. Töluvert meira en áður hefur þekkst á stuttum ferli hans hjá Stoke.

Peð í rifrildi Pulis og stjórnarinnar
Eiður hefur lítið tjáð sig um bekkjarsetuna og þar sem hann hefur skrúfað á öll samskipti við íslenska blaðamenn hefur ekki verið hægt að fá viðbrögð hans við ákvörðunum Pulis hingað til. Án efa hefur form Eiðs eitthvað haft að segja til að byrja með en hvaða fótboltaáhugamaður sem er hlýtur að spyrja sig hvers vegna Eiður Smári er ekki einu sinni sendur til að hita upp þegar liðið er að tapa 1-0 fyrir Everton og vantar svo sannarlega einhverja töfra inn á völlinn.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tony Pulis fer illa með íslenska leikmenn en íslenskir eigendur Stoke fengu á sínum tíma Tryggva Guðmundsson og Þórð Guðjónsson til liðsins sem þá var í næstefstu deild, en þeim var fljótt gerð grein fyrir stöðu sinni hjá liðinu. „Hann tilkynnti mér nánast um leið og við mættum að hann myndi aldrei nota mig nema í ítrustu neyð,“ segir Þórður Guðjónsson. „Þegar við komum inn var mikill ágreiningur á milli stjórnarinnar og Pulis og við vorum svolítið eins og peð í tafli þeirra,“ útskýrir Tryggvi Guðmundsson.

Talaði illa um Íslendingana
Þórður Guðjónsson kom til Stoke frá Bochum fyrir tilmæli Ásgeirs Sigurvinssonar sem mælti með Skagamanninum. „Pulis sagði mér að hann hefði aldrei ætlað að fá mig. Hann samþykkti þetta bara fyrir eigendurnar en lét mig vita að ég myndi aldrei spila fyrir hann,“ segir Þórður Guðjónsson. Hann og Tryggvi Guðmundsson voru lítið meira en æfingadýr hjá liðinu þar sem þeir fengu nánast aldrei að vera í hópnum. Það var ljóst að Pulis var ekki vel við íslenska eignarhaldið og fengu þeir félagarnir að súpa seyðið af því.
„Það sem sló mig mest var hversu illa hann talaði um Íslendingana. Í fjölmiðlum var hann duglegur að skjóta þá í kaf og svo var sláandi hvernig Pulis talaði um eigendurnar fyrir framan leikmennina. Það kom svo í ljós að hann var að vinna með fyrrverandi eigandanum [Peter Coates, innsk. blm]. Um leið og hann keypti klúbbinn aftur 2006 var Pulis ráðinn til starfa. Ég get alveg tekið undir það að við vorum bara peð í þessari skák hans við stjórnina,“ segir Þórður sem var kominn heim til ÍA ári síðar.
Frá degi til dags var Pulis þó ekki leiðinlegur við hann og Tryggva. „Hann kom alltaf mjög hreint fram við mig. Hann sagði mér að sama hversu góður ég væri í fótbolta fengi ég aldrei að spila undir hans stjórn. Ég vissi því alltaf hvernig staða mín var hjá félaginu,“ segir Þórður en segir þó ekki að Pulis hafi verið heiðarlegur. „Hann var hreinskilinn, ekki heiðarlegur. Við skulum orða það þannig.“

Látinn keyra bíl annars leikmanns
„Pulis neitaði bara að nota okkur Dodda og tók frekar unglingsstráka upp í liðið og ég veit ekki hvað,“ segir Tryggvi Guðmundsson sem var samtíma Þórði hjá Stoke en dvaldi ekki lengi þar sem hann var búinn að gera samning við FH-inga um að ganga í raðir þeirra fyrir árið 2005. Pulis tókst þó að brydda upp á einu því ótrúlegasta sem íslenskur atvinnumaður hefur lent í en Tryggvi var látinn keyra bíl Kenwynes Jones á útileik, en það er einmitt sami maður og var settur í liðið í stað Eiðs í síðustu viku.
„Pulis var nú stundum góður við okkur og leyfði okkur að vera í hópnum,“ grínast Tryggvi. „Eitt sinn áttum við útileik gegn Úlfunum suður frá í Wolverhampton. Við vorum allir mættir, flottir í ferðagallanum fyrir utan Brittania-völlinn og ég búinn að tylla mér á minn stað, aftast í rútuna. Kenwyne Jones var í láni frá Southampton og hann mætti á bílnum sínum. Southampton er ekki langt frá Wolverhampton og hann spyr Tony Pulis hvort hann megi ekki bara elta rútuna á bílnum því hann ætli beint heim eftir leikinn. Pulis leist ekki vel á þetta því hann vill að menn séu saman í rútunni og komi saman út úr henni á leikstað, svona upp á stemninguna. Hann brá þá á það ráð að kalla á mig og spyrja hvort ég gæti ekki bara keyrt bílinn. Ég játti því að sjálfsögðu en þetta sýndi manni nú hversu rosalega mikilvægur maður var eða þannig,“ segir Tryggvi.

Fóru heim í hálfleik
„Svo lenti ég náttúrulega í bölvuðu veseni,“ segir Tryggvi um bílferðina á BMW-inum hans Kenwynes Jones. „Rútan fékk náttúrulega að keyra inn um hliðið hjá vellinum en ég þurfti að sveima um allan völlinn að leita að bílastæði. Það var mjög erfitt að finna stæði því Bretarnir mæta svo löngu fyrir leik á völlinn. Á endanum fann ég nú stæði en það kostaði mig tíu pund. Ekki vildi ég nú að Kenwyne vinur minn myndi fá sekt,“ segir Tryggvi léttur. „Þegar ég kom svo inn í klefa var búið að tilkynna að þeir tveir sem væru utan hóps væru ég og Doddi. Það kom alveg gríðarlega á óvart,“ segir Tryggvi sem horfði því á leikinn upp í stúku með Þórði.
„Okkur Dodda var nú bara nóg boðið og tókum við leigubíl heim í hálfleik. Við fengum okkur bara að borða og skemmtum okkur vel um kvöldið,“ segir Tryggvi en tekur þó undir orð Þórðar að Pulis hafi aldrei komið illa fram við þá á æfingum. „Hann var ótrúlega góður við okkur en það var alveg ljóst frá byrjun að við myndum aldrei fá neinn séns á grasinu. Ætli hann hafi ekki vorkennt okkur bara fyrir að detta inn í þetta hjá Stoke þegar kergjan var að byrja,“ segir Tryggvi.

Gaman að stinga upp í kallinn
Sá leikmaður sem fór hvað verst út úr viðskiptum sínum við Tony Pulis var Skagamaðurinn Bjarni Guðjónsson. Bjarni var 23 ára og fastur byrjunarliðsmaður í Stoke-liði Steves Cotterill áður en Tony Pulis tók til starfa. „Þegar Pulis tók við var alveg ljóst í hvað stefndi,“ segir Bjarni. „Hann ætlaði ekki að nota mig en málið var að mér gekk svo vel þarna að það var erfitt fyrir hann að halda mér fyrir utan liðið. Oft og tíðum var ég einfaldlega kallaður inn á völlinn af áhorfendum. Það var mjög gaman að stinga þannig upp í kallinn,“ segir Bjarni. „Verst var hvað hann talaði rosalega vel til manns. Hann talaði alltaf um að íslensku strákarnir væru svo vel uppaldir en svo kom á daginn að hann sjálfur var ekki jafnvel uppalinn því hann talaði ekki jafnvel um okkur þegar við heyrðum ekki til. Það var mikill tvískinnungur í honum,“ segir Bjarni.

Pakkaði strax niður í tösku
Bjarni hvarf á braut vegna Pulis til Þýskalands í eitt ár en var síðan fenginn til Coventry sumarið 2004. Bjarna gekk mjög vel með Coventry þar til Peter Reid var ráðinn stjóri liðsins. „Þegar Reid tekur við hættir hann bara að velja mig í hópinn. Ég fékk mig því lausan þaðan og fór til Plymouth en þar var maður sem heitir Bobby Williamson sem fékk mig. Þegar hann var rekinn frétti ég að valið stæði á milli tveggja manna. Peters Reid og Tonys Pulis. Þá fór ég nú bara strax að pakka niður í tösku,“ segir Bjarni og hlær.
Það fór líka svo að Pulis frysti Bjarna um leið og hann mætti. Hann vildi einfaldlega ekki nota hann þar sem Bjarni þótti of smár og góður með boltann. Pulis vill stóra og sterka menn í sín lið. „Hann var afskaplega viðkunnalegur samt alltaf við mig og yfirleitt þegar hann hitti mig þá knúsaði hann mig. Hann er eini þjálfarinn sem hefur gert það við mig,“ segir Bjarni og vitnar þar til tvískinnungsins.
Pulis vildi koma Bjarna á lán til annars af þeim tveimur liðum sem höfðu áhuga á honum. Bjarni vildi frekar fara til Bristol City eða Helsingborgar sem höfðu áhuga en þau lið gátu ekki keypt hann. Fór svo á endanum eftir nokkurra mánaða bekkjarsetu að Bjarni gerði starfslokasamning við Plymouth og kom heim til ÍA. Hann lék því sinn síðasta leik í atvinnumennsku undir stjórn Tonys Pulis, aðeins 27 ára gamall „Hann fór helvíti illa með mig þarna undir lokin,“ segir Bjarni Guðjónsson um Tony Pulis sem á eitthvað óuppgert við Íslendinga.

Ferill Eiðs hjá Stoke til þessa
30. okt. Everton 1–0 Stoke, úrvalsdeildin (Ónotaður varamaður)
27. okt. West Ham 3–1 Stoke, deildarbikarinn (Varamaður, spilar 32 mínútur í venjulegum leiktíma, framlengt um aðrar 30)
24. okt. Man. United 2–1 Stoke, úrvalsdeildin (Varamaður, spilar 11 mínútur)
16. okt. Bolton 2–1 Stoke, úrvalsdeildin (Varamaður - Spilar 17 mínútur)
2. okt. Stoke 1–0 Blackburn, úrvalsdeildin (Ónotaður varamaður)
26. sept. Newcastle 1–2 Stoke, úrvalsdeildin (Varamaður, spilar 23 mínútur)
21. sept. Stoke 2–0 Fulham, deildarbikarinn (Ónotaður varamaður)
18. sept. Stoke 1–1 West Ham, úrvalsdeildin (Varamaður, spilar 17 mínútur)
13. sept. Stoke 2–1 Aston Villa, úrvalsdeildin (Ónotaður varamaður)

Leikir í hóp: 9
Byrjunarlið: 0
Varamaður: 5
Ónotaður varamaður: 4
Spiltími í mínútum: 130

Fyrst birt á síðum 24-25 í DV 3. nóvember






Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?