Gunnar Rúnar Sigurþórsson lýsti í smáatriðum aðdraganda og undirbúningi á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni við yfirheyrslu lögreglu. DV birtir hér yfirheyrsluna í heild sinni en lýsingar Gunnars á hrottafengnu morðinu eru þó ekki birtar.
Dagsetning 07.09.2010
Yfirheyrður: Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sakborningur. Lögreglumaður: Kristján Ingi Kristjánsson, lögreglufulltrúi. Aðrir viðstaddir: Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi. Staðsetning: Viðtalsherbergi rannsóknardeildar Hverfisgötu 113–115.
K: Kristján Ingi Kristjánsson, lögreglufulltrúi.
G: Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sakborningur.
B: Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.
GS: Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi
K: Nú er þriðjudagurinn 7. september 2010 og klukkan er 12:25. Við erum stödd í viðtalsherbergi rannsóknardeildar 3 til þess að yfirheyra sakborning í máli 007-2010-52207. Nú heiti ég Kristján Ingi Kristjánsson og ég starfa sem lögreglufulltrúi hjá LRH. Þá ætla ég að biðja starfsfélaga minn um að kynna sig.
B: Já, það er Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.
K: Og verjandann um að kynna sig hérna?
GS: Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögmaður.
K: Hvað heitir þú fullu nafni?
G: Gunnar Rúnar Sigurþórsson.
K: Hver er kennitala þín Gunnar?
G: Það er XXXXXX-XXXX
K: XXXXXX-XXXX, hvar áttu lögheimili?
G: Klapparholti 6.
K: Og hvað er póstnúmerið þar?
G: 220 Hafnarfjörður.
K: Klapparholt 6, 220 Hafnarfirði?
G: Já.
K: Nú, eitthvað sem þú vilt spyrja um áður en við höldum lengra?
G: Nei.
K: Nú, ég þarf að gera þér grein fyrir því að það er verið að taka okkur upp á hljóð og mynd, hefur þú einhverjar athugasemdir fram að færa í því sambandi?
G: Nei.
K: Nú, Gunnar, þú ert hérna til yfirheyrslu en þú ert í gæsluvarðhaldi, en þú ert grunaður um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í Háabergi 23, sunnudaginn 15. ágúst 2010.
G: Já, já.
K: Þér er óskylt að svara spurningum varðandi sakarefnið en kjósir þú að tjá þig ertu áminntur um að segja satt og rétt frá.
G: Ok.
K: Nú þú mátt ekki ráðfæra þig við verjanda um hvernig þú eigir að svara einstökum spurningum sem við beinum til þín í yfirheyrslunni en þér er þó heimilt að ráðgast við hana um réttarstöðu þína.
G: Ok.
K: Enda trufli það ekki yfirheyrsluna, þetta er svona í stuttu máli að við gerum ráð fyrir að þú svarir spurningunum áður en við gerum hlé á yfirheyrslu vegna?
G: Ok.
K: Nú, þú varst yfirheyrður hérna síðast laugardaginn 4. september sl.?
G: Já.
K: Og í þeirri yfirheyrslu viðurkenndir þú að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana, er það ekki rétt?
G: Jú.
K: Nú og í yfirheyrslunni þá greindir þú frá því að þú hefðir myrt Hannes, nánar tiltekið stungið hann með hníf [...] .
G: Já.
K: Þú hafðir orð á því að það hefði verið blóð út um allt og það kom fram að Hannes hefði verið sofandi [...]?
G: Já.
K: Þetta er rétt eftir þér haft?
G: Já.
K: Þú varst jafnframt spurður síðast af hverju þú hefðir gert þetta og þá sagðir þú „Að það hafi verið af því að þú elskaðir Hildi og Hildur hefði átt að vera hjá þér“, er þetta rétt með farið hjá mér?
G: Já.
K: Eitthvað sem þú vilt bæta við þetta áður en við höldum lengra?
G: Nei, þetta var rétt.
K: Þetta var rétt. Það sem ég ætla að gera núna er að ég ætla að biðja þig að greina frá öllu því sem gerðist frá því að þú fórst heiman frá þér laugardagskvöldið 14. ágúst 2010 og það er að segja greina frá þessu öllu og greina frá öllu sem gerðist á sunnudeginum?
G: Ok, ég fór út fyrir tólf í bíltúr og hérna ég keyrði um Hafnarfjörðinn og ég keyrði eins og ég segi niður í bæ, niður í Firðinum, upp á Ásvellina og bara í kringum bæinn og svo hérna stoppaði ég í 10/11 uppi á Setberginu og það hefur kannski verið eitthvað upp úr tólf held ég. Svo fór ég í göngutúr um Setbergið og hérna ég labbaði um í kringum hverfið og var þar... ég var að skoða hverfið, það er að segja kíkja á hverfið á labbaði aðeins um það en svo ákvað ég bara að fara í bæinn og fá mér í glas og hérna.
B: Má ég stoppa þig aðeins þarna augnablik?
G: Já.
B: Hvað ertu að velta vöngum um, hvað er það sem þú ert að gera í raun og veru, það er betra að...?
G: Ég er að reyna að stoppa sjálfan mig, mér langaði, ég var, ég var með hnífinn á mér þegar ég var í göngunni og var að labba um hverfið en svo vissi ég að það var enginn heima, þannig að ég stoppaði og fór síðan niður í bæ og ætlaði að fá mér í glas og gleyma þessu.
B: Þú sagðir að þú hefðir verið með hnífinn á þér, hvað ertu að velta vöngum yfir þú verður að segja okkur það?
G: Ég er að pæla hvort ég eigi að gera þetta eða hvort ég eigi ekki að gera þetta. Ég hef verið að pæla í þessu mjög mikið hvort ég ætti að drepa hann Hannes, en ég hef alltaf stoppað mig, en samt er ég farinn að ganga lengra og lengra. Þetta kvöld á þessum tíma þegar ég er á þessum göngutúr þá náði ég að stoppa mig og líka það að ég vissi það að það var örugglega enginn heima. Þannig að ég hætti við, fór í bílinn minn, keyrði síðan niður í bæ og ætlaði að fá mér í glas.
B: Þannig að í stuttu máli að þá ertu að velta vöngum yfir því að drepa Hannes þarna en þú hættir við, af því þú vissir að það var enginn heima, ef ég að skil þig rétt?
G: Jú, mér skildist að Hildur og Hannes hefðu verið á einhverri skemmtun og ég... já ég vildi ekki, ég stoppaði ég vissi að það myndi ekki þýða neitt og ég ætlaði að reyna að gleyma þessu með því að fá mér í glas þetta kvöld, þess vegna fór ég einn í bæinn.
B: Gott og vel þá höldum við bara áfram frásögninni þinni.
G: Ég snéri við og fer í bílinn minn og keyrði beinustu leið niður í bæinn, nei, ég stoppaði uppi á Granda, hvort að það séu einhverjir, eitthvað fólk sem ég þekki þar sem getur fengið sér í glas með mér. Svo legg ég bílnum mínum við Kolaportið og læsi bílnum og ég fer og labba á milli bara og fá mér í glas og sjá hvort sé eitthvað fólk sem ég þekki, ætla bara að skemmta mér. Eftir, þegar að ég er búinn að vera í smástund niðri í bænum, ég held að ég hafi verið kominn niður bæinn kringum eitt, þá hringdi Hildur í mig í kringum tvöleytið og spurði hvort ég væri í bænum og hvort að hérna, hvar ég væri og hvort ég væri að drekka og hvar ég væri. Ég sagði henni að ég væri á Hressó og ég væri að fá mér í glas. Hún vildi endilega hitta mig og fara koma og drekka og ég var svona alveg til í það sko. Það var enginn þarna niðri í bænum sem ég þekkti þannig að þetta já, passaði þannig að hún kom niður í bæ svona hálftíma seinna og já við förum og skemmtum okkur og förum að drekka og löbbum inn á bari og fáum okkur meira að drekka og já töluðum um ýmislegt og ég var bara að reyna að gleyma þessu sem ég hafði verið að gera áður og það hjálpaði rosalega að hafa Hildi þarna. Já, svo hérna þegar við vorum komin inn á Amsterdam, það var í kringum fjögur, þá hérna, þá byrjum við að drekka meira, það er að segja stífar, það er að segja nokkur Tequila skot eða hún keypti tvö Tequila skot. Eitt handa mér og eitt handa sér og svo seinna kaupir hún aftur Tequlia sko. Meðan þessu er þá eins og ég segi erum við bara að drekka og skemmta okkur og ég er bara að reyna að gleyma öllu og bara reyna að skemmta mér. Svo hérna svo var svona seint um morguninn, það er að segja hún var orðin mjög seint og hérna Hildur er búin að fá sér að drekka mjög, mjög mikið. Það er að segja að ég hef aldrei séð hana vera hálfsofnaða við borðið sem hún var og ég hérna ætlaði að reyna að koma henni í taxa heim. Þá var ég bara að koma henni heim í leigubíl og það er að segja heim til Hannesar en hérna ég leiði hana út af barnum og hún vill hérna ekki fara heim hún vill fá sér meira í glas og við stoppum í smá stund inni á Dubliner [...] þá er okkur algjörlega hent út af Dubliner og við löbbum eftir götunni, sem Dubliner er á, og upp að torginu í leigubílaröðina þar. Þar er rosalega biðröð, það er að segja það var það sást ekki, bara fólk, röð, það var kannski 20–30 manns eitthvað að bíða eftir strætó og hérna hún nennti ekki að bíða, nei ég, við nenntum ekki að bíða eftir leigubíl og ég var með bílinn minn lagðan bara næstum við hliðina það er að segja hjá Kolaportinu og við settumst upp í bíl hjá mér og hún eiginlega bara fór að sofa í sætinu hjá mér og fyrst ætlaði ég bara að reyna sofna sjálfur, reyna sofa smá úr mér en svo vildi ég það ekki, ég vildi bara komast heim sjálfur þannig ég keyrði heim fullur frá Kolaportinu og bara beint heim til mín í Klapparholtið. Ég opnaði framhurðina á húsinu og opna síðan farþegasætið og ég held á Hildi heim til mín og upp í rúm hjá mér. Ég legg hana í rúmið og set koddann undir hausinn á henni og leggst svo upp í sófa hjá mér og ætlaði bara að fara að sofa. En ég gat ekki sofið, ég var að hugsa og ég var að hugsa og þá fór ég að sem rann upp fyrir mér að þetta er besta tækifærið sem ég, sem ég myndi fá til að, til þess að hérna drepa Hannes og ég var með allt tilbúið, það var allt, allt sem ég þurfti í skottinu á bílnum og hafði verið þar mjög lengi. Þannig ég dreif mig og skipti um föt úti í bíl og keyrði upp að Setberginu. Ég lagði bílnum að leikskólanum sem er uppi í Setberginu, fór í úlpuna sem var í skottinu og setti hettuna sem ég var með á hausinn á mér og svo tók ég pokann sem var með öllu dótinu mínu.
Ég labbaði þennan stíg upp, upp Setbergið og svo fann ég einhvern ljósastaur þar og ég setti pokana á lappirnar á mér og tape-aði þær og setti tape-ið í vasann á úlpunni, svo setti ég hanskana, latexhanskana á mig, setti síðan pokana í vasann á úlpunni og svo tók ég hnífinn úr hulstrinu og setti hulstrið í vasann líka. Ég labbaði síðan upp að Háaberginu og í áttina að húsinu hans Hannesar, ég... mér fannst ég vera... mér fannst ég bíða eftir að ég myndi stoppa en ég stoppaði mig ekki, ég vildi, ég vildi þetta en ég reyndi samt og ég hélt að ég myndi stoppa mig en það gerðist ekki og ég fór upp að framhurðinni og hún var læst og svo mundi ég eftir hurðinni á bílskúrnum sem ekki svo ég viti er aldrei læst. Ég labbaði inn um hana og labba upp stigann og inn til Hannesar, þar er hann sofandi. Ég stóð þar í smá stund, ég held ég hafi staðið í nokkra mínútur og svo stakk ég hann [...] Svo labbaði ég út, ég hljóp út, aftur út um hurðina í bílskúrnum og svo fór ég aftur að ljósastaurnum og hérna fór úr. Fór úr húfunni, ég tók húfuna af mér, tók pokana af löppunum á mér og notaði einn pokann til að setja allt dótið mitt aftur í hann og svo labbaði ég aftur að bílnum mínum og setti úlpuna og pokann í skottið svo keyrði ég burt. Svo fór ég að bryggjunni í Hafnarfirði og ég henti pokanum og úlpunni undir bryggjuna og ég var, og ég var hágrenjandi og ég ráfaði smá í kringum bryggjuna og ég fór síðan bara aftur og keyrði heim, ég keyrði heim og fór inn og náði í poka og setti buxurnar mínar og úlpuna í pokann og svo labbaði ég út, labbaði til Eyrarholtsins og henti pokanum í ruslatunnu þar og svo labbaði aftur heim. Svo fór ég inn til mín þar sem Hildur lá sofandi og kyssti hana á muninn og fór síðan og lagðist frammi í sófa. Ég grét og grét og grét, ég gat ekkert sofið, ég lá þarna og svo þegar ég var búinn að liggja þarna ég veit ekki hvað lengi þá vaknaði X (yngri bróðir Gunnars, innskot blm.) og fór að horfa á teiknimyndir og ég lagðist inn til X og vonaðist til að geta hvílt mig eitthvað inni hjá
honum og ég lá uppi í rúminu hans X þar til Hildur vaknaði og svo skutlaði ég henni heim. Ég... ég vildi helst ekki hleypa henni út úr bílnum, ég gat ekki sagt neitt við hana, ég þorði ekki að segja neitt. Svo fór hún út úr bílnum þegar ég var búinn að skutla henni heim og ég keyrði heim. Ég lá uppi í rúmi, ég veit ekki ég lá uppi í rúmi mjög lengi þar til ég fór í ræktina, ég ætlaði að reyna að gleyma þessu en það gekk ekki. Svo reyndi ég að fylgjast með fréttunum, ég sá eina og eina frétt og svo kom sjónvarpið og mamma kallaði á mig og þá vissi ég að Hannes væri dáinn. Ég vissi að honum blæddi en ég vissi ekki að hann væri dáinn fyrr en ég heyrði það í fréttunum en mig grunaði það. Ég var bara ekki, ég vissi ekki hvað ég átti að hugsa. Svo heyrði ég ekki nema (óskýrt.)
K: Þú varst kominn að þeim punkti að mamma þín sé að horfa á fréttirnar og þig hefði grunað að hann væri dáinn og þarna færðu staðfestingu á því að hann væri dáinn er það ekki rétt?
G: Jú.
K: Ef þú heldur áfram frá þessum tímapunkti, þú sagðist ekki geta sofið. Við erum ennþá að tala um sunnudaginn?
G: Ok og ég bara reyni að gera eitthvað á sunnudaginn, ég reyndi hvað sem er til þess að grafa niður, að reyna einhvern veginn að gleyma þessu og fer bara að spila tölvuleiki og reyni hvað ég get til þess að gleyma þessu og svo bara gat ég ekki sofið. Svo vaknaði ég og ég ákvað að senda tölvupóst í vinnuna og segja að ég myndi ekki mæta á morgun, ég var svo þreyttur en ég átti svo erfitt með að sofa en svo já sofnaði ég á endanum og ég tók mér frí á mánudaginn.
K: Takk fyrir þetta að þú skulir deila þessu með okkur. Ég ætla svona aðeins bara að renna yfir þetta og þú leiðréttir eins og áður ef ég fer rangt með?
G: Ok
K: Þú lýstir því að þú hefðir farið í bíltúr?
G: Já.
K: Og þú lýstir að þú hefðir ekið um Hafnarfjörð, Fjörðinn, Ásvellina og kringum bæinn og svo rétt eftir miðnætti sagðir þú að þú hefðir farið þarna að 10/11 og farið í göngutúr um Setbergslandið, þú labbaðir í kringum hverfið að skoða hverfið og þá kemur fram hjá þér að þú varst byrjaður að pæla í því að drepa Hannes.
G: Já.
K: Og það kom fram að dótið hefði verið í skottinu á bílnum. Nú þú nærð að bægja þessu einhvern veginn frá og talaðir um það að Hannes væri trúlega ekki heima.
G: Nei.
K: Þú ferð síðan í bæinn til þess að fá þér í glas, þú ókst fyrst út á Granda og varst þar um eittleytið?
G: Já.
K: Og ef ég skildi þig rétt þá var enginn þarna til að hitta?
G: Nei.
K: Og þú ferð síðan í bæinn og leggur bílnum við Kolaportið og ferð að labba á milli bara og ferð að skemmta þér.
G: Já og fá mér í glas, já.
K: Þú sagðir að Hildur hefði hringt í þig kringum tvöleytið og hún hefði komið í bæinn og þið hefðuð hist svo hálftíma síðar á Hressó.
G: Já.
K: Já og þið eruð á börunum að drekka og svona að ert svona að reyna að gleyma þessum áformum um að drepa Hannes og þið farið meðal annars á Amsterdam og þar eruð þið byrjuð að drekka svolítið stíft sagðir þú?
G: Já.
K: Og þið eruð að skemmta ykkur og þú heldur áfram að reyna að gleyma þessu og Þið faið út og Hildur vill fá meira í glas og þið farið inn á Dubliner [...]
G: Já.
K: Svo eruð þið að ganga þarna framhjá leigubílaröðinni og þú segir alveg rosaleg biðröð og nenntir ekki að bíða þannig þið fóruð í bílinn og settust þar og þar ætluðuð þið að fara að sofa, varst svona að spá í að fara að sofa í bílnum sko.
G: Ég var að pæla í að sofa í bílnum þar til ég gæti keyrt heim, það er að segja.
K: En svo ókstu fullur heim sagðir þú þarna heim í Klapparhlíð, þú hélst á Hildi upp í rúm og hagræddir svona koddanum undir hana og fórst sjálfur í sófann en gast þá ekki sofið.
G: Nei.
K: Þessar hugsanir fara að sækja á þig með að drepa Hannes?
G: Já.
K: Og þú sérð að þarna er upplagt tækifæri til þess og þú ert með allt tilbúið í skottinu segir þú og þú sagðir að þú hefðir verið tilbúinn með það mjög lengi?
G: Já.
K: Og þú fórst út í bíl og lagðir þarna við leikskólann í Setbergshverfinu og tókst úlpu úr skottinu, hettu, og poka með dóti sagðir þú og það er úr að þú gengur af stað og við ljósastaur þá setur þú poka yfir lappirnar á þér, tape-ar þá fasta og setur á þig latexhanska og nærð í hnífinn og setur hulstrið í vasann og þú gengur áleiðis í Háaberg og þú stoppar þig ekki af, varst allan tímann að reyna að stoppa þig samt af. Ferð að framhurðinni og þar er allt læst og þá ferðu að hurðinni í bílskúrnum. Þú labbar upp stigann og ferð að Hannesi sofandi, stóðst þarna í smá stund og...
[...]
K: Síðan hleypur þú út sagðir þú, ferð að ljósastaur. Er það sami ljósastaur og við töluðum um fyrr?
G: Já.
K: Þar tekur þú húfuna af þér og pokana af löppunum og þú ferð síðan að bílnum og setur úlpuna og pokana í skottið og ekur í burtu. Þú ferð að bryggjunni í Hafnarfirði og þar tekur þú pokann og úlpuna og hendir því undir bryggjuna. Þú varst reyndar svolítið tvísaga með úlpuna, þú sagðir að þú hefðir tekið úlpuna og farið með í ruslið við Eyrarholtið?
G: Nei, ég tók.
K: Hvaða föt fóru í ruslið við Eyrarholtið?
G: Það var bolurinn minn og buxurnar.
K: Já, þannig að þú hefur ruglast bara. Þú sagðir að þú hefðir ráfað eitthvað í kringum bryggjuna í Hafnarfirði. Síðan hefðir þú ekið heim og farið inn, sett buxurnar og úlpu, sagðir þú, en hvað var það, bolur?
G: Bolur.
K: Bolur, þannig að það er ekki rétt með úlpuna? Þú sagðir nefnilega úlpu, þess vegna spurði ég.
G: Ok.
K: Þú gekkst að Eyrarholti og hentir þessu í ruslið þar. Þú kysstir svo Hildi og lagðist í sófann, þú grést og grést og gast ekki sofið. Þú verður var við að X bróðir þinn vaknar og fer að horfa á teiknimyndir og leggst hjá honum og svo einhverju seinna þá vaknar Hildur og þú skutlar henni heim og þú vildir helst ekki hleypa henni út úr bílnum sagðir þú, þegar heim var komið.
G: Nei.
K: Svo ferðu heim, lást í rúminu og ef að ég skil þig rétt þá bara sofnaðir þú ekki, hreyfðir þig ekki, fórst í ræktina og reynir að gleyma þessu. Þú kemur heim og ferð að fylgjast með fréttunum á miðlunum. Er það netmiðlunum náttúrulega?
G: Já.
K:Síðan þegar sjónvarpið byrjar þá segir mamma þín að Hannes sé dáinn?
G: Já.
K: Og þú segir að þig hafi grunað að hann væri dáinn en þarna fengið endanlega staðfestingu er það ekki rétt skilið?
G: Jú.
K: Og þú segir að þú hafir ekki sofið almennilega síðan og þú fórst í tölvuleiki og reyndir að gleyma þessu. Og þú gast ekki sofið og þú sendir meðal annars þarna daginn eftir tölvupóst í vinnuna um að þú gætir ekki mætt.
G: Ég sendi tölvupóstinn um kvöldið.
K: Um kvöldið, var það um kvöldið?
G: Það var sunnudagskvöldið.
K: Er þetta rétt með farið sem ég hef farið með núna?
G: Já.
K: Ok, þá ætla ég svona að spyrja þig kannski, þú sagðir áðan að allt hefði verið tilbúið í skottinu mjög lengi, skýrðu það nánar.
G: Sko ég hafði verið að pæla hvað ég ætti að gera í þessu. Eins og ég segi, ég elskaði Hildi. Eins og ég segi, ég pældi í því að hvað ég ætti að gera, hvort ég ætti að reyna að gleyma þessu, hvort ég ætti að reyna að finna bara einhverja aðra stelpu sem ég gæti verið hrifinn af og ég pældi alltaf í því hvort að ég ætti að bara að reyna að drepa Hannes og ég svona hægt og rólega byrjaði að safna hlutum í skottið hjá mér. Ég átti hníf og átti úlpuna. Svo einhvern tímann þá fór ég og keypti límband og svo held ég að ég hafi einhvern tímann stolið einhverjum poka af latexhönskum í vinnunni minni og svo held ég að ég hafi keypt þessa lambhúshettu í, ég held að það hafi verið 66°Norður, og ég hafi bara verið að safna þessu öllu í skottinu hjá mér.
K: Þú ert búinn að safna þessu, hvenær varstu búinn að safna þessum hlutum í skottið endanlega?
G: Öllu?
K: Já.
B: Eða hvenær byrjaðir þú, manstu það ?
G: Það var alveg bara 2009 sko.
B: Og hvenær var þetta tilbúið í skottinu?
G: Svona í byrjun 2010.
K: Og ertu búinn að ganga með þessa hugsun að drepa?
G: Já, en... ég var alltaf að finna afsakanir til að gera það ekki og stoppa mig af en þetta kvöld, þetta var bara allt svo fullkomið.
K: Hvað var fullkomið við þetta kvöld?
G: Hildur var með mér allt kvöldið og hún fór heim með mér, heim til mín. Hannes var einn heima. Mér fannst, að Hannes væri ekki þá myndi Hildur bara vera áfram hjá mér.
K: Fannst þér þú vera búinn að ná henni frá honum þarna þetta kvöld eða?
G: Ég veit það ekki, ég veit það ekki frekar, en ég kannski bara plataði sjálfan mig til að halda það, já, að núna væri hún mín... ég var samt fljótur að fatta eftir að Hannes var dáinn að það var enginn séns á því.
K: Hvernig fattaðir þú það?
G: Ég bara, það var ljóst að ég myndi ekki komast upp með þetta, að það myndi fattast og Hildur myndi aldrei tala við mig aftur.
K: Það er kannski eitt, af hverju safnaðir þú þessum hlutum, í hvaða tilgangi voru þeir?
G: Ég veit það ekki, ég hélt bara að, ég gat ekki losnað við þessa hugsun úr hausnum á mér og bara við það að finna einn hlut og koma honum í skottið að þá náði ég einhvern veginn að, að ljúka hugsuninni, um kannski að halda áfram. Það er að segja að taka hana og halda áfram seinna með hana. Ef ég gerði ekki neitt þá leið mér rosalega illa, ég varð að gera eitthvað, mér fannst nóg að setja eitthvað í skottið hjá mér og vera með það tilbúið, þá náði ég að ýta því til hliðar en það kom bara alltaf aftur.
K: Hvað kom þessari hugsun af stað?
G: Það var bara Hildur. Hún hjálpaði mér svo mikið og ég bara, ég bara algjörlega misskildi allt í kringum hana Hildi greinilega. Ég hélt eins og ég segi hún hjálpaði mér með mitt líf. Ég hafði alltaf bara verið einn heima í tölvunni. Fyrst var ég þakklátur en svo varð ég ástfanginn og svo hefur þetta bara orðið að þráhyggju, ég gat aldrei hætt að hugsa um hana, hvað ég gæti gert til þess að fá hana til mín.
B: Gerir þú þér grein fyrir þessu núna, eða gerðir þú þér grein fyrir þessu áður?
G: Ég geri mér grein fyrir þessu núna, ég sé að það er helling af hlutum sem ég gerði mér ekki grein fyrir en núna.
[...]
K: Þá er það kannski, hvaða tilfinningar barstu til Hannesar áður en þetta gerðist?
G: Það var eiginlega ekkert, hann var rosalega fínn gaur þegar ég hitti hann fyrst sko. Hann var rosalega almennilegur og fínn gaur og hérna bauð mér í glas og svona, svolítið bara hjálpaði mér, það er að þegar við vorum á djamminu. Eins og ég segi ég hafði aldrei farið, og farið niður í miðbæinn, það var samt meira Hildur en hann, en hann var þarna líka sko.
[...]
K: Hvaða tilfinningar berðu þá til hans, mannsins sem þú ætlar að drepa?
G: Ég vildi, ég vildi bara losna við hann til að fá hana, ég var aldrei reiður út í hann en ég vildi samt... bara eina leiðin hélt ég var að losna við hann. Hvort hann hafi bara sett upp einhverja falska grímu og brosað þegar hann var nálægt henni, ég man aldrei eftir að hata hann, ég man aldrei eftir því.
K: Þannig að ef ég tek þetta svona heilt saman að þú ert búinn að ganga með þessa tilfinningu svona eitthvað frá 2009 eitthvað eftir að ástarjátningin birtist þarna á YouTube.
[...]
K: Og þessar hugsanir sækja á þig að drepa hann og ef ég skil þig rétt, til þess að fá Hildi til þín?
G: Já.
K: Það kemur fram, þú lýsir því að þú hafir sett poka á lappirnar, tape og latex, og þú hafir sett á þig hettu og fleira. Af hverju gerðir þú þetta, af hverju bjóstu þig út með þessum hætti?
G: Ég var búinn að hugsa um þetta svo lengi, ég var búinn að hugsa um þetta svo lengi og byrjaður að plana þetta í hausnum á mér og hérna hugsa um allar þessar bíómyndir og allt þetta. Eins og ég segi hefði mig langað til þess að komast upp með þetta en ...
K: Þú hefðir ætlað að komast upp með þennan glæp, að drepa mann?
G: Ég ætlaði að reyna það, já.
K: En þú talaðir um kvikmyndir og annað slíkt, skýrðu það nánar hvernig?
G: Maður horfir á CSI eða eitthvað svoleiðis og maður sér alla þessa rannsóknarlögregluþætti, ég veit það ekki en ég bara, maður fékk kannski bara hugmynd að bara ef ég myndi bara labba inn eins og ég er væri ég bara gómaður á staðnum. Ég hélt að ef að ég myndi þrauka og bara neita öllu þá myndi þetta fara af því að ég hélt að ég hefði ekki skilið neitt eftir. Þá gæti ég einhvern veginn vonast til að seinna meir fá Hildi til mín, en það gekk ekki.
K: Þannig að svona heilt yfir litið, ég dreg þetta saman, þá varstu að gera þetta með þennan útbúnað til þess að fela slóða þína?
G: Ég var að reyna það, já.
K: Þú varst að reyna það.
B: Kannski eitt í þessu sambandi að skórnir, sem þú varst tekinn í... ?
G: Já.
B: Þeir sem sagt gáfu það af sér að það væri sem sagt mjög líklega blóð undir þeim, nú ertu búinn að segja okkur að þú settir poka yfir fæturna. Getur þú útskýrt það hvers vegna að... ?
G: Ekki hugmynd.
B: Þú gerðir þér ekki grein fyrir því að kannski pokinn hefði rifnað eða?
G: Nei, ég var ekkert að kíkja á það, hann hefur örugglega rifnað eða eitthvað.
B: Það er líka annað sem mig langar til þess að spyrja þig að. Þú segir að þú hafir staðið þarna yfir rúmi Hannesar og hann hafi verið sofandi, þú hafir staðið í einhver smá tíma og hugsað, síðan tekur þú þessa ákvörðun að stinga Hannes?
G: Já.
B: Hann liggur á bakinu þá í rúminu er það ekki?
G: Hann liggur á maganum eða hann liggur á bakinu, jú, með magann upp, jú.
B: Hann liggur á bakinu með magann upp?
G: Já.
B: Þú segist hafa stungið hann, lýstir því og spurningin er: Gerðir þú þér ekki grein fyrir því að þú varst að drepa manninn?
G: Jú, ég held ég hafi gert það. [...]
B: En þegar þú labbaðir í burtu sem sagt frá vettvangi og skilur Hannes þarna eftir [...], var þér ekki ljóst að maðurinn var látinn?
G: Nei.
B: Ertu ekki öruggur á því?
G: Ég vildi bara komast í burt, ég vildi ekki vera þarna. [...]
K: Heyrðu það kom í ljós að hnífurinn svona fannst á svolítið öðrum stað heldur en úlpan við höfnina, hvaða skýringu hefur þú á því?
G: Fannst hnífurinn?
K: Já.
G: Ja, hann var ofan í pokanum, en var hann búinn að stinga gat á pokann.
K: Hver var búinn að stinga gat á pokann?
G: Hnífurinn, hann stakkst út.
K: Hann stakkst út, þú sagðir að þú hefðir ráfað um bryggjuna, varstu eitthvað að ráfa um með hnífinn?
G: Nei, ég var bara sjálfur þarna.
K: Hann fannst aðeins frá sko, 200–300 metra frá þessum stað sem úlpan var, eða frá þessari bryggju þar sem þú sagðist dorga.
G: Hann var ofan í pokanum, ég man eftir að hafa sett hann ofan í pokann.
B: Þannig að þú hefur enga skýringu á því af hverju hann finnst þarna annar staðar?
G: Ekki nema hann hafi dottið úr pokanum?
K: Við eigum sko myndband frá höfninni þar sem þú sést labba úr bílnum með eitthvað í hendinni en við sjáum það kannski ekki alveg en þú hendir einhverju undir bryggjuna eins og þú hefur skýrt frá. Hverju hentir þú undir bryggjuna, var það bara úlpan eða var það eitthvað meira?
G: Fyrst henti ég pokanum svo henti ég úlpunni ofan á pokann, það var bara grjót þarna niðri undir bryggjunni.
K: Varstu bæði með pokann og úlpuna þegar þú ferð út úr bílnum?
G: Úlpan var í skottinu, úlpan og pokinn voru bæði í skottinu, ég hélt á því bæði.
K: Þreifstu bílinn eftir þetta?
G: Nei, ég hef aldrei þrifið bílinn.
K: Þú hefur aldrei þrifið bílinn. Þú sagði mér að þú sankaðir þessum hlutum að þér sko og þú varst búinn að greina frá því að þú hefðir fengið hnífinn út í Húsasmiðjunni, stolið honum þar. Hvaðan kemur úlpan?
G: Ég held að mamma hafi keypt hana handa mér einhvern tímann, ég man ekkert hvenær, hún vara bara heima hjá mér.
K: En límbandið hvar keyptir þú það eða tape-ið?
G: Húsasmiðjunni.
K: Manstu hvenær það var sem þú keyptir það?
G: Nei.
K: En latexhanskarnir hvenær stalstu þeim úr vinnunni?
G: Það var einhvern tímann eftir að við fluttum í Borgartúnið.
K: Hvenær fluttuð þið í Borgartúnið?
G: Í apríl held ég.
K: Og svo sagðir þú að þú hefðir keypt lambhúsettuna í 66°Norður, hvenær var það?
G: Ég man ekkert hvenær það var.
K: Var það á þessu ári eða síðasta?
G: Það var, það var það síðasta sem ég keypti held ég.
K: Síðasta sem þú keyptir?
G: Já.
K: Hvaða 66°Norður ?
G: Hafnarfirði.
K: Þarna, þarna sem... ?
G: Eða ég held að þetta sé í Kópavogi, þetta er þarna sem Sorpan er og hérna Latibær. 66°Norður.
K: Við höfum rætt sko um þessa Vestmannaeyjaferð, voru þessi áform byrjuð þegar þú varst í Vestmannaeyjum?
G: Nei, ég vildi bara gleyma öllu þá, ég vildi bara drekka þá.
B: Svo það er bara eitt líka sem mig langaði til að spyrja þig um. Þessir hlutir sem þú nærð í smátt og smátt og á einhverjum tíma. Þeir eru þá liðir í því að undirbúa þig til þess að drepa Hannes?
G: Já.
B: Það var ekkert annað sem kom upp í hugann þinn?
G: Fyrst var þetta bara eins og ég var að segja, ég var að reyna að ýta þessu til hliðar bara til þess að gera eitthvað í því, þá fékk ég þessa hugsun og einhvern veginn fór hún þegar ég bara byrjaði að gera eitthvað í sambandi við hana, þegar ég byrjaði að plana þá fór hún svo kom hún aftur og þá hélt ég áfram það sem ég var komin. Ég reyndi eins og ég gat að ýta henni frá mér en hún kom alltaf aftur.
K: Nú er þessi hugsun eða þrjáhyggja að sækja á þig, reyndir þú að fá einhverja svona aðstoð við henni hjá einhverjum sérfræðingum?
G: Nei, ég vissi ekki að það væri eitthvað að hjá mér sko, ég pældi ekkert í því.
K: Þú pældir ekkert í því.
G: Ég hélt ég gæti séð um þetta sjálfur sko. Eins og ég sagði ég hafði stoppað mig áður, ég hélt ég gæti bara stoppað mig.
K: Hvernig leið þér þegar þú varst búinn að koma þessu í kring svona, sem sagt búinn að verða Hannesi að bana?
G: Mér leið illa, mér leið svo rosalega illa...en bara einhvern veginn, fannst heimurinn hrynja í kringum mig, ég reyndi að halda áfram og vonaðist til að mæta í vinnuna, ég fór á æfingar, annað fór ég ekki.
K: Nú ertu búinn að lýsa æfingunum þarna þar sem þú varst í þessu Jiu Jitsu?
G: Já.
K: Hvenær byrjaðir þú að æfa Jiu Jitsu?
G: Fjórir mánuðir síðan, held ég.
K: Fjórir mánuðir. Fórstu að æfa Jiu Jitsu í tengslum við þessi plön?
G: Nei, ég fór á japönskunámskeið í janúar eða febrúar, mig langaði að læra japönsku, Ég hitti þar einn strák sem var að æfa Jiu Jitsu og mig langaði eiginlega bara, þetta er meira bara partur af náminu ég hef hrifist mjög af japönsku og öllu japönsku og mig langaði bara að læra þessa bardagaíþrótt. Það tengdist ekkert Hannesi.
K: En þegar þú varst að æfa bardagaíþróttina vikuna áður en þú varðst Hannesi að bana, var það í tengslum við þessi áform um að verða honum að bana?
G: Nei, ég bara æfði, ég æfi og æfi og mætti alltaf á æfingar og tek þjálfunina mína í gegn, ég vildi bara koma mér í form. [...]
B: Kannski eitt sem að mig langar til að tala við þig um. Þegar að hérna, þú vissir það að þegar að tæknideildin skoðaði skottið á bílnum þá gaf þar svörun um blóð.
G: Já.
B: Var það á þeim stað sem þú hafðir sett pokana?
G: Ég veit ekkert hvar sá staður var en ég setti það vinstra megin í vinstra horninu.
B: Þannig að þú stóðst yfir skottinu, þá var það vinstra megin?
G: Já.
K: Vinstra megin í skottinu þá miðað við að þú standir fyrir aftan skottið.
G: Ef ég stend og horfi á skottið.
K: Já.
G: Inn í skottið þá var það vinstra megin.
B: Þú segist ekki hafa talað um þetta við nokkurn mann eða leitað eftir hjálp, skrifaðir þú eitthvað um þetta, þessar óskir þínar?
G: Þetta var allt í hausnum á mér.
B: Var allt í höfðinu.
K: Þú hefur ekkert bloggað eða skrifað þessi áform niður eða?
G: Nei.
K: Varstu einn að verki eða var einhver með þér?
G: Ég var bara einn.
K: Hverju viltu bæta við þetta?
G: Ég... það er auðvitað allt of seint að fara að sjá eftir eftir núna, ég vona bara að ég nái einhvern tímann að sigrast á hvaða veg sem ég (óskýrt)... Ég vona að mínir nánustu geti fyrirgefið mér.
K: Við ætlum að taka hlé á yfirheyrslu núna. 13:19.... Yfirheyrslan er komin í gang aftur og og klukkan er 13:38 og það er eins og áður að þú ert grunaður um að hafa orðið Hannesi Helgasyni að bana, sunndaginn 15. ágúst 2010 í Háabergi 23, þér er óskylt að svara spurningum varðandi sakarefnið en kjósir þú að tjá þig ertu áminntur að segja satt og rétt frá. Nú það sem ég var að hugsa um að gera núna, ef að þú treystir þér til þess, er að teikna svona herbergið hjá Hannesi og rúmið og inn í herbergið og hvar Hannes lá í rúminu þegar þú sást hann fyrst. Þá er bara að nota blaðið svona hvernig herbergið er. [...]
K: Það er ein spurning kannski, hvernig vissir þú að enginn var heima þarna fyrr um kvöldið þegar þú fórst í þennan könnunarleiðangur... kvöldið áður sem sagt?
G: Ég byrjaði að labba og svo man ég að Hildur sagðist ætla að fara á einhverja tónleika með honum Hannesi.
K: Og hvenær sagði hún þér það?
G: Hún sagði mér það kvöldið áður.
K: Kvöldið áður, tónleika með Hannesi hvert?
G: Í Vogunum, einhverja Bubbatónleika.
K: En þegar að þú ert þarna um nóttina, hvernig vissir þú að Hannes var einn heima?
G: Ég bara hélt það eins og ég segi, Hildur fór að djamma og þegar Hannes er ekki með henni þá er hann oftast bara sofandi. [...]
G: Ég frétti þegar ég var þarna í Eurovision að einhver væri að sofa þarna niðri í kjallaranum hjá þeim en ég vissi ekkert að það væri einhver annar að búa þarna niðri þegar ég fór.
K: Segðu mér annað þegar þú keyptir lambhúshettuna, þú sagðist hafa keypt á í 66°Norður, með hverju borgaðir þú hana?
G: Peningum.
K: Með peningum, hvað kostaði hún?
G: Tvö þúsund kall eða eitthvað.
K: Keyptir þú lambhúshettuna fyrir eða eftir þjóðhátíð?
G: Fyrr.
K: Fyrr, fyrir eða eftir Eurovision?
G: Held ég eftir Eurovision.
K: Eftir Eurovision.
G: Bara um sumarið held ég.
K: Núna um sumarið?
G: Já.
K: Þannig að þú keyptir hana á milli Eurovision og eyjahátíðarinnar um verslunarmannahelgina?
G: Já, ég held það, ég er nokkuð viss um það, já. [...]
K: Hverju viltu bæta við þetta?
G: Ekkert.
K: Eitthvað meira?
B: Nei, ég held að þetta sé komið nokkurn veginn.
K: Þá ætla ég að segja skýrslu, yfirheyrslu lokið og klukkan er 13:48.
K: Það er kannski smá viðbót og klukkan 13:49 þegar yfirheyrslu er framhaldið. Heyrðu við ætlum að sýna þér mynd af hnífnum sem fannst í Hafnarfjarðarhöfn.
G: Ok.
GS: Það er að segja sem að þessir...?
K: Þessir piltar fundu við Hafnarfjarðarhöfn?
G: Þetta er hann.
K: Þetta er hnífurinn, ertu alveg viss?
G: Hann er blár, þetta er hann.
K: Þú ert búinn að teikna hann fyrir okkur, þú kannast við þennan hníf?
G: Já.
K: Er þetta sami hnífurinn sem þú notaðir til að verða Hannesi Þór Helgasyni að bana?
G: Já.
K: Eitthvað sem að, þekkir þú einhver séreinkenni á hnífnum?
G: Hann er blár og með rönd hérna, hún fór af.
K: Og þetta er sá hnífur sem þú fékkst í Húsasmiðjunni þegar þú varst að vinna þar?
G: Já.
B: Það er kannski eitt bara, var hann einhvern tíma brýndur?
G: Nei, ég hef aldrei brýnt hann.
K: Heyrðu þá ætla ég bara, er eitthvað sem þú vilt bæta við?
G: Nei.
K: Þá segjum við yfirheyrslu lokið og klukkan er 13:52.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi