ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

„Heiðar er gambler“

10:27 › 26. október 2010

Heiðar Már Guðjónss fjárfestir hefur verið nokkuð í umræðunni eftir að DV greindi frá því að hann hefði vitað af yfirvofandi árás vogunarsjóða á íslensku krónuna árið 2007 og tekið stöðu gegn henni. Heiðar Már þykir greindur, hrokafullur og ákafur og er hann sagður bíta í sig hugmyndir af mikilli sannfæringu. Heiðar Már er sá Íslendingur sem hefur náð hvað mestum tengslum við bandaríska vogunarsjóði.

Þegar DV hringdi í nokkra menn í fjármálalífinu til að bera undir þá tölvupósta þar sem íslenskur fjármálamaður lýsti fundum með tveimur þekktum bandarískum vogunarsjóðsmönnum, George Soros og Bruce Kovner í ársbyrjun 2007, til að ræða við þá um stöðu krónunnar og stöðutöku gegn henni, giskuðu þeir allir á að umræddur maður væri Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og þáverandi starfsmaður Novator. Blaðið sagði þeim sem hringt var í ekki frá því að viðkomandi væri Heiðar Már heldur las eingöngu upp póstinn. Samhengið leyndi sér hins vegar ekki þegar þeir heyrðu hvað stóð í póstinum: Aðeins einn maður gat hafa fundað með þessum aðilum á þessum tíma og komist að því að það freistaði þeirra að ráðast á íslensku krónuna.

Ástæðan er sú að Heiðar Már er þekktur í fjármálalífinu sem sá Íslendingur sem er hvað best tengdur við bandaríska vogunarsjóði en slíkir sjóðir hafa tiltölulega lítið verið í umræðunni hér á landi miðað við í öðrum löndum. Jafnframt hefur sá orðrómur lengi verið uppi að Heiðar Már hafi stundað það að taka stöðu gegn íslensku krónunni fyrir hrun því hann missti trúna á að Íslendingar gætu haldið áfram að nota hana sem gjaldmiðil fyrir löngu síðan. „Ég hef alltaf sagt að það sé synd að Ísland búi við ónýtan gjaldmiðil,“ sagði Heiðar Már til dæmis í samtali við DV í vikunni. Heiðar Már hótaði DV málsókn í kjölfarið á umfjöllun blaðsins ef það yrði ekki dregið til baka að hann hefði tekið stöðu gegn krónunni.

Af þessum sökum hefur Heiðar Már komið fram í fjölmiðlum síðastliðin ár og fært rök fyrir einhliða upptöku evru - að þjóðin taki upp evruna án þess að ganga í Evrópusambandið - í stað krónunnar.
Heiðar hefur einnig verið nefndur til sögunnar sem mögulegur kaupandi að tryggingafélaginu Sjóvá ásamt hópi fjárfesta. Viðræðurnar um kaupin standa enn yfir við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, samkvæmt heimildum DV. Heiðar Már býr og starfar í Sviss um þessar mundir þar sem hann vinnur fyrir vogunarsjóðinn Clarium, sem er í eigu bandaríska kaupsýslumannsins Peter Thiel, sem meðal annars stofnaði internetgreiðsluþjónustuna PayPal. Ekki er vitað nákvæmlega hvað Heiðar Már fæst við fyrir Clarium.

Áhrifamikill huldumaður
Heiðar er þrátt fyrir þessa vigt sína hálfgerður huldumaður í íslenskri þjóðfélagsumræðu. Nánast ekkert hefur farið fyrir nafni hans í uppgjörinu við íslenska efnhagshrunið. Ástæðan fyrir þessu er meðal annars sú að Heiðar er maður sem að mestu hefur unnið bak við tjöldin. Hann var starfsmaður Kaupþings í New York í kringum síðustu aldamót, þar sem hann meðal stýrði GIR-vogunarsjóðnum sem átti að tryggja mönnum 40 til 50 prósent ávöxtun, en fór þaðan til Glitnis áður en hann gerðist handgenginn Novator, félagi Björgólfs Thors Björgólfssonar, í London árið 2005.

Tölvupóstar sem DV hefur undir höndum sýna að Heiðar Már var líklega einn helsti ráðgjafi Björgólfsfeðga fram að bankahruninu og varaði hann þá við árás vogunarsjóða á íslensku krónuna í ársbyrjun 2007 og benti þeim á að verja sig fyrir lækkuninni með því að auka gengisvarnir sínar, taka stöðu gegn krónunni. Heiðar reyndist ekki sannspár um þetta atriði árið 2007 þegar krónan hækkaði í verði og Björgólfsfeðgar töpuðu milljörðum króna, til dæmis í eignarhaldsfélaginu Samson, með því að veðja á lækkun krónunnar á því ári. Krónan hrundi svo auðvitað árið 2008.

Sá bandaríski vogunarsjóðsmaður sem gaf út fyrirmæli til samtaka vogunarsjóða í febrúar árið 2006 að skynsamlegt væri að ráðast á krónuna, James Leitner, er vinur fjölskyldu Heiðars Más, samkvæmt því sem hann segir sjálfur, og kynnti Heiðar Leitner fyrir Björgólf Thor. Krónan hríðféll á árinu 2006 og segr Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá Kaupþingi, að árás vogunarsjóðanna hafi leitt til gengislækkunarinnar. Leitner settist síðar í stjórn Straums-Burðaráss eftir að hafa keypt hlut í bankanum. Hann fékk síðar verðlaun fyrir það í október 2006 að stinga upp á árás á íslensku krónuna. Ekki er vitað hvort Heiðar Már hafi vitað af þessari árás líkt og þeirri sem hann taldi yfirvofandi árið 2007 og tengsl hans og Leitner liggja fyrir. Líklegt verður að teljast að Leitner hafi því leitað til Heiðars eftir ráðleggingum.

Áhrif Heiðars Más á gang íslenska fjármálalífs og hagnað og tap stórra fjármálafyrirtækja og eignarhaldsfélaga eins og Landsbankans og Novators, og jafnvel stöðu íslensku krónunnar, munu því sennilega aldrei liggja ljós fyrir. Ljóst er hins vegar að Heiðar Már hefur verið verulega áhrifmikill undir yfirborðinu í íslensku viðskiptalífinu og í gegnum fyrirtæki Björgólfs Thors. „Hann er samt mjög þekktur í fjármálalífinu og orðspor hans er nokkuð gott. Hann er hálfgert legend,“ segir einn af heimildarmönnum DV.

Þykir eldklár
Ástæðan fyrir því að Heiðar Már hefur verið í þessari stöðu sem áhrifamikill ráðgjafi er sú að hann þykir vera mjög greindur og hafa góða þekkingu á fjármálaheiminum. Einn innanbúðarmaður í fjármálaheiminum á Íslandi lýsir honum á eftirfarandi: „Heiðar er virkilega klár maður. Hann er mjög góður að tala og sannfæra fólk. Hann getur talað gríðarlega hátt, hratt og skýrt og verið gríðarlega mælskur. Þetta kom sér mjög vel fyrir hann þegar hann starfaði sem verðbréfamiðlari. Góðir miðlarar eru oft þeir sem eru mjög góðir í kjaftinum.“

Meðal þess sem sagt er um að Heiðar er að Björgólfur Thor hafi gjarnan sent hann á fjölmenna fundi þar sem talsmaður Björgólfs þurfti að koma vel fyrir. „Þetta er maður sem getur staðið upp í þúsund mann sal innan um fullt af fjármálamönnum og tjáð sig, rifið kjaft og komið vel fyrir. Hann er bæði mjög rökfastur og mjög góður í ensku. Og þegar hann verður æstur þá stendur bunann bara út úr honum. Hann er eins og vélbyssukjaftur. Það er ótrúlegt að sjá þetta,“ segir viðmælandi blaðsins.
Annar heimildarmaður blaðsins, sem er fyrrverandi skólafélagi Heiðars, segir einnig að hann sé mjög vel gefinn „Þetta er bráðgáfað kvikindi með mikla þekkingu á fjármálaheiminum. Ég veit hins vegar ekkert hvernig rekstrarmaður hann er. Hann var dúx eða semidúx þegar hann var í Versló og tvíburabróðir hans var á svipuðum slóðum. Þeir hafa báðir alltaf skarað fram úr því námi sem þeir hafa verið í. Hann þurfti samt ekkert að hafa mikið fyrir því og tók mikinn þátt í skemmtanalífinu samhliða náminu og fannst gaman að fá sér í glas.“

Heiðar fór í hagfræði í Háskóla Íslands eftir Verslunarskólann. Hann er giftur Sigríði Sól Björnsdóttur, sem er dóttir Björns Bjarnasonar, fyrrverandi þingmanns og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, og eiga þau saman tvo drengi.

Auk þess að hafa mikla þekkingu á fjármálaheiminum bendir einn heimildarmaður DV á að Heiðar Már sé dýpri en margir aðrir verðbréfamiðlarar og hafi yfir meiri þekkingu að ráða. „Þetta er gaur sem er til dæmis vel lesinn í bókmenntum. Hann er svo miklu dýpri en margir af þessum verðbréfamiðlurum sem hafa bara vit og þekkingu á einhverjum bissnesmálum. Hann er með ansi mikla þekkingu á breiðum grunni og getur kvótað í bókmenntir og annað slíkt án þess að blikna.“

Ákafur og hrokafullur
Heiðar Már hefur það orðspor að vera mjög ákafur og hrokafullur maður. „Hann segir það bara beint framan í þig að þú sért fífl ef honum finnst það. Hann er ansi hrokafullur,“ segir innanbúðarmaðurinn. Fyrrverandi samstarfsmaður Heiðars Más í Kaupþingi segir jafnframt að Heiðari Má finnist hann vera yfir allt og alla hafinn og láti vita af því.

Þeir undirstrika þó að sjálfsöryggi sé mjög mikilvægt hjá verðbréfamiðlurum og mönnum í fjármálalífinu. Innanbúðarmaðurinn segir: „Ef þú ert ekki öruggur með sjálfan þig hvernig ætlar þú þó að fara að því að sannfæra aðra? Hann er gríðarlega ákafur. Ef hann fær hugmynd þá talar hann fyrir henni alveg eins og predikari og segir mönnum til syndanna.“ Heiðar Már þykir afar góður í þessu.
Annar heimildarmaður blaðsins segir að Heiðar Már hafi ákveðið að hætta hjá Novator skömmu eftir hrun vegna þess að hann vilji vera sinn eigin herra. „Hann auðvitað gekk út úr þessu Novator-dæmi tiltölulega skömmu eftir hrun. Hann er ekki „follower“; hann vill vera sinn eigin herra og sá ekki ástæðu til að vera þarna lengur eftir hrunið. Ég held að hann hafi farið í góðu og veit ekki til þess að hann sé tengdur Novator í dag. Hann hefur alveg þá þekkingu og þá hæfileika sem til þarf að vera óháður öðrum.“

Hann segir að ákefð og sannfæring Heiðars Más kristallist meðal annars í baráttu hans fyrir því að Ísland taki upp evru í stað krónunnar. „Hann virðist mjög snemma hafa áttað sig á því að gengi krónunnar hafi verið ofmetið og virðist hafa haft efasemdir um að við gætum haldið þessu [íslenska efnahagsundrinu, innskot blaðamanns] áfram með krónuna. Hann vissi að þetta gengi ekki upp sem við vorum að gera. Það má gefa honum kredit fyrir þetta,“ segir viðmælandi blaðsins.

Þó alveg ljóst sé að þetta sé rétt mat hjá heimildarmanni blaðsins þá var skarpskyggni Heiðars Más þó ekki það mikil að hann teldi að fjármálakerfið myndi hrynja nokkrum mánuðum síðar þegar hann var spurður um skoðun sína á stöðunni sumarið 2008. Þetta sýnir kannski að hversu fáir voru á þessari skoðun rétt fyrir hrun fyrst ekki einu sinni Heiðar Már, einn helsti ráðgjafi Björgólfs Thors og mjög klókur fjármálamaður, taldi bankana að hruni komna þá um sumarið.

Þrátt fyrir þennan ákafa og þennan hroka, sem allir viðmælendur benda á, segja þeir líka að Heiðar Már sé almennt séð vel liðinn innan fjármálageirans og hafi gott orðspor. „Það tala nefnilega allir frekar vel um hann. Hann er vel liðinn, skemmtilegur og vel lesinn.“

Hefur efnast vel
Heiðar Már hefur efnast vel eftir að hafa starfað lengi á fjármálamarkaðnum. Fjármálamenn sem eru eins hátt skrifaðir og Heiðar Már eru yfirleitt á árangurstengdum launum og bónusum og geta auðvitað sjálfir verið í fjárfestingum samhliða störfum sínum hjá þeim fyrirtækjum sem þeir vinna hjá hverju sinni. Einhver orðrómur hefur um að Heiðar sitji á milljörðum króna sem hann geymi í Sviss og ætli meðal annars að nota hluta þessara fjármuna til að kaupa Sjóvá. Þetta hefur vitanlega ekki fengist staðfest.

Skiptar skoðanir eru hins vegar uppi um hvort Heiðar Már sé rétti maðurinn til að eiga og reka Sjóva, meðal annars vegna þess að hann sé í eðli sínu ákafur og nokkuð áhættusækinn og vilji mjög háa ávöxtun af fjárfestingum sínum, en það er einmitt eitt einkenni vogunarsjóða. Einn heimildarmaður DV segir: „Ég er ekkert viss um að hann sé rétta týpan inn í Sjóvá. Það þarf ekki svona „flashy“ mann eins og Heiðar Már til að koma inn í tryggingafélag, einhvern fjármálasnilling. Tryggingastærðfræðin er þess eðlis að þú þarft ekki þannig mann til að hafa yfirumsjón með henni. Heiðar er gambler og ég hugsa með hrolli til þess að han eignist tryggingafélagið. Hann er af sömu kynslóð og þeir sem skildu Sjóvá eftir í sárum, Milestone.“

Stýrði GIR-sjóðnum
Vogunarsjóðurinn, sem stundum var nefndur Gír-sjóðurinn meðal manna í fjármálalífinu, var skrásettur á Caymaneyju í Karabíska hafinu. Heiðar Már stýrði sjóðnum þegar hann starfsmaður Kaupþings í New York. Hann fékkst meðal annars við að kaupa íslensk skuldabréf og koma þeim í verð í Bandaríkjunum. Þetta er það sem Heiðar Már var snemma á starfsferli sínum hvað frægastur fyrir: Að ná að selja íslensk skuldabréf til erlendra aðila. Heiðar Már náði meiri árangri í þessu en aðrir íslenskir fjármálamenn. GIR-sjóðurinn komst í fréttirnar eftir hrunið 2008 í tengslum við upplýsingar sem Ari Matthíasson hagfræðingur lagði fram hjá skattayfirvöldum um einkennilega kynningu á starfsemi sjóðsins á Hótel Holti fyrir um áratug. Gert var ráð fyrir að sjóðurinn færi aldrei niður fyrir 2 milljarða króna. Lofað var 40 til 50 prósenta árlegri ávöxtun og að hann yrði greiddur út tvisvar ári. Ari sat þennan kynningarfund ásamt þekktum og ríkum íslenskum fjárfestum. Hann segist hafa undrast það mest að forsvarsmenn sjóðsins hafi fullyrt að fjárfestar gætu fengið arð sinn greiddan inn á reikninga hvar sem er í heiminum. Hann lét skattayfirvöld vita um þessar yfirlýsingar eftir bankahrunið þegar umræða hófst um undanskot íslenskra útrásarvíkinga og háar upphæðir í skattaskjólum. Skattayfirvöld hófu rannsókn á málinu í kjölfarið.

Heiðar og Björn ósammála
Heiðar Már er tengdasonur Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra. Þeir virðast vera sammála um að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópusambandið en höfðu mjög ólíkar skoðanir á því árið 2006 hvort Ísland ætti að kasta krónunni eða ekki og taka upp evru. Heiðar Már var byrjaður að tjá sig um það á mjög afdráttarlausan hátt árið 2006, þegar Björn skrifaði eftir færslu inn á heimasíðuna sína, að Ísland þyrfti að taka upp evru. Sömuleiðis hafði hann gert alls kyna ráðstafanir til að verja sig og tengda aðila fyrir gengislækkun krónunnar.

„Það verður spennandi að sjá, hvernig Björgólfi Thor og samstarfsmönnum hans tekst að nýta sér tækifærin á heimsvísu á komandi árum. Við Íslendingar þurfum allir og sameiginlega sem þjóð að átta okkur á þessum tækifærum og leggja á ráðin um þau. Það er augljóst á öllum samanburði við önnur lönd, að á undanförnum árum hefur tekist frábærlega vel við að styrkja efnahag og stöðu þjóðarbúsins, innviði þess og styrk til að takast á við ný og krefjandi verkefni. Þetta hefur tekist með íslenska krónu að vopni og með því að standa utan Evrópusambandsins, svo að tvö álitamál líðandi stundar séu nefnd. Leiðir velgengni síðustu ára til þeirrar niðurstöðu, að við eigum að kasta krónunni fyrir róða og ganga í Evrópusambandið?“





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?