Hollenskur fangi sem sat á Litla-Hrauni í rúmt ár fullyrðir í bréfi sem hann sendi frá sér að samfangi hans sé í raun saklaus. Mögulegt er þó að hann hafi verið beittur þrýstingi við ritun bréfsins, sem komst í hendur fjölmiðla eftir að hann var fluttur úr landi. Bréfið er mjög tilfinningaþrungið og þar segist fanginn vilja hreinsa samvisku sína áður en hann verður sendur til Hollands.
Dauðvona fangi, Jakob van Hinte sem sat á Litla-Hrauni í rúmlega ár, fullyrðir í bréfi sem hann sendi frá sér að samfangi hans, Þorsteinn Kragh, sé saklaus og í raun fórnarlamb hollensks glæpagengis. Fullyrt hefur verið að Jacob hafi verið beittur þrýstingi af Þorsteini Kragh sjálfum við ritun bréfsins og að jafnvel geti verið að Þorsteinn hafi sjálfur ritað bréfið. Það hefur þó ekki fengist staðfest. Jakob er sagður ekki vera sleipur í ensku og rennir það stoðum undir að hann hafi notið hjálpar við gerð bréfsins, sem ritað er á ensku. Verjandi Þorsteins, Helgi Jóhannesson hæstaréttarlögmaður, segist ekki vita neitt meira um málið annað en það sem hann sá í fréttum Stöðvar 2 á laugardagskvöldið.
Margbreytilegur framburður
Hæstiréttur dæmdi þá Þorstein Kragh og Jacob van Hinte fyrir um ári en þeir voru sakfelldir fyrir að hafa í sameiningu staðið að innflutningi á um tvö hundruð kílóum af kannabisefnum og kókaíni ætluðu til sölu í ágóðaskyni. Þeir fengu báðir þunga dóma, Þorsteinn fékk níu ár og Jacob sjö og hálft ár. Jacob, sem tekinn var í húsbíl sínum við komu til landsins með Norrænu, viðurkenndi strax innflutning á kannabisefnum og benti lögreglu á hvar mætti finna efnin, hann þóttist þó ekki hafa vitað af kókaíninu. Í skýrslutökum hjá lögreglu sagðist hann hafa verið í sambandi við íslenskan mann en ekki vita hvað hann héti. Í sakbendingu benti hann svo á Þorstein Kragh.
Þorsteinn breytti einnig framburði sínum eftir framvindu málsins en hann hefur þó frá upphafi staðfastlega haldið fram sakleysi sínu.
Fékk fyrirmæli um að varpa sök á Þorstein
Í bréfinu, sem DV barst á föstudaginn, staðfestir Jacob sakleysi Þorsteins og segir hann hafa fyrir tilviljun lent inni í málinu og í framhaldinu verið notaður til að varpa sök á hann. Jacob segist hafa verið mótfallinn því að flækja saklausan mann inn í málið, en hollenska glæpagengið sem hann segir hafa skipulagt innflutning fíkniefnanna hafi viljað hafa þetta svona. Hann fékk þau fyrirmæli að minnast aldrei á glæpagengið en að hann ætti að benda á Þorstein Kragh ef það færi svo að hann næðist. Jacob þorði ekki öðru en að hlýða þessum fyrirmælum enda meðlimir glæpagengisins engin lömb að leika sér við. Þeir hafi jafnframt gert honum grein fyrir því að ef hann færi ekki eftir fyrirmælum yrði gengið frá honum.
Vill fara í friði við guð og menn
Í bréfinu, sem er mjög tilfinningaþrungið, segist Jacob vilja koma þessu á framfæri núna því hann verði bráðum fluttur til Hollands og hann vilji hreinsa samvisku sína. Þá sé hann heilsuveill og heilsu hans fari stöðugt hrakandi. Hann segist finna að hann eigi ekki langt eftir ólifað og vill geta farið í friði við guð og menn. Hann vill biðja alla, sem hafa þjáðst fyrir hans sakir, afsökunar og þá sérstaklega Þorstein Kragh. Jacob segist jafnframt vona að Þorsteinn skilji hvaða aðstæðum hann hafi verið í og að líf hans hafi verið í húfi.
Í lok bréfsins kemur fram að það sé skrifað beint frá hjartanu og ekki undir þrýstingi eða hótunum frá neinum. Jacob segist hafa haft bréfið í fórum sínum í langan tíma en að nú sé kominn tími til að opinbera það. Hann vonast til að sannleikurinn um sakleysi Þorsteins Kragh verði loksins leiddur í ljós.
Samkvæmt heimildum DV var Jacob van Hinte fluttur til Hollands síðastliðinn þriðjudag þar sem hann mun afplána það sem eftir er dómsins.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars
