ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Mannvonskan í sinni verstu mynd

12:51 › 13. október 2009

Peter Connelly kom í heiminn fyrsta mars árið 2006. Þá grunaði engan að sautján mánuðum síðar ætti þessi heilbrigði drengur eftir að enda líf sitt vegna linnulausra barsmíða. Þremur mánuðum eftir að Peter fæddist eignaðist móðir hans, Tracey Connelly, nýjan kærasta, Steven Barker, sem hún hafði hitt á næturklúbbi. Hann flutti inn á heimili þeirra í nóvember árið 2006. Það var þá sem barsmíðarnar hófust fyrir alvöru og áttu næstu mánuðir eftir að verða skelfilegir fyrir hinn átta mánaða Peter.

Áverkar í andliti og á brjósti
Tracey Connelly bjó með föður Connellys þar til í júlí 2006 að þau skildu. Hann var ástríkur og sýndi syni sínum mikinn kærleik og umhyggju þann tíma sem Peter var á lífi. Hann var hins vegar varnarlaus gegn ofbeldinu sem sonur hans sætti.

Í desember 2006, þegar Peter var níu mánaða, fór móðir hans með hann til heimilislæknis. Læknirinn tók eftir áverkum sem voru á andliti og brjóstkassa hans og grunaði hann að ekki væri allt með felldu. Hann ákvað því að hafa samband við félagsmálayfirvöld sem leiddi til þess að móðir hans var handtekin, grunuð um að hafa veitt barninu áverka. Peter var í kjölfarið fjarlægður af heimili sínu og komið fyrir hjá vinkonu Tracey, Angelu Godfrey. Aðeins mánuði síðar, eða í janúar 2007, var Peter kominn aftur til móður sinnar, þó enn væri verið að rannsaka mál hennar hjá lögreglu.

Með skýringar á reiðum höndum
Næstu mánuði á eftir þurfti Peter í tvígang að fara til læknis vegna ýmiskonar áverka. Hann var meðal annars blár, marinn og bólginn á höfði og hafði rispur víðs vegar um líkamann. Móðir hans Tracey hafði hins vegar alltaf skýringar á reiðum höndum; hann hafði ýmist dottið og meitt sig eða rekið sig í eins og ung börn gera gjarnan. Engan virðist hins vegar hafa grunað að Peter sætti svívirðilegu ofbeldi á heimili sínu af hálfu móður sinnar og stjúpföður. Líffræðilegur faðir Peters reyndi eitt sinn að fjarlægja Peter af heimilinu en móðir hans hringdi í lögreglu sem kom að heimili þeirra. Faðirinn þurfti að láta hágrátandi son sinn aftur í hendurnar á barnsmóður sinni.

Aftur heim í ofbeldið
Það var svo í maí 2007 sem Tracey var aftur handtekin vegna gruns um ofbeldi en sleppt skömmu síðar. Í júní tók starfsmaður félagsmálayfirvalda eftir áverkum á Peter og hafði samband við lögreglu. Læknisskoðun leiddi í ljós að áverkarnir voru eftir barsmíðar. Fjórða júní var Peter komið fyrir hjá fjölskylduvini. Það var skammgóður vermir fyrir Peter og 25. júlí var hann aftur kominn til móður sinnar og stjúpföður eftir að félagsmálayfirvöld fengu í hendurnar lagalega greinagerð, þar sem ekki voru taldar nægjanlegar forsendur fyrir því að halda barninu frá móður sinni og stjúpföður.

Sárkvalinn og lamaður
Fyrsta ágúst var Peter enn eina ferðina fluttur á sjúkrahús vegna áverka. Læknir sem skoðaði hann gafst hins vegar upp þar sem Peter var of órólegur til að hægt væri að skoða hann. Læknirinn tók hins vegar eftir áverkum á líkama Peters. Það sem hann vissi hins vegar ekki var að í læknisskoðuninni var Peter bæði rifbeinsbrotinn og með brotna hryggjarliði sem lömuðu hann fyrir neðan mitti. Peter lést svo þriðja ágúst 2007. Eftir að hann kom frá lækninum tveimur dögum áður hafði honum verið hent ofan í vögguna sína, sárkvalinn, og virtu móðir hans og stjúpfaðir hann að vettugi. Grátur Peters varð að lokum til þess að stjúpfaðir hans gafst upp. Hann fór inn í herbergið hans, lokaði dyrunum á eftir sér og gaf honum svo þungt högg í höfuðið að tennur hans brotnuðu. Peter var látinn.

Viðurstyggilegt ofbeldi
Ofbeldið sem Peter sætti var viðurstyggilegt. Breskir fjölmiðlar hafa fjallað um málið og sýna gögn að stjúpfaðir hans hafi meðal annars notað Peter sem hálfgerða æfingabrúðu fyrir Rottweiler-hund sem hann átti. Bitför fundust á höfði og líkama Peters við krufningu sem talið er að hafi verið eftir hundinn. Þá hefur komið í ljós að neglur hans höfðu verið rifnar af fingrum hans, honum hafði verið hent hátt í loft upp og látinn skella á gólfinu auk þess sem hann hafði margsinnis verið barinn til óbóta. Við krufningu fundust tennur í maga drengsins sem voru eftir hnefahöggið sem batt enda á líf Peters. Þá voru átta rifbein brotin. Fyrr á þessu ári var Tracey Connelly dæmd í fimm ára fangelsi að lágmarki. Stjúpfaðir Peters, Steven Barker, var hins vegar dæmdur í lífstíðarfangelsi, annars vegar fyrir að nauðga tveggja ára stúlku og hins vegar fyrir að myrða Peter. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt dóminn og telja margir hann hafa verið of vægan. Þegar allt kemur til alls er mál Peters Connelly sorglegur vitnisburður um eftirlit sem fór gjörsamlega úrskeiðis.

Mamman ætlar að halda partí
Lítið virðist bera á eftirsjá hjá móður Peters. Í breska blaðinu Telegraph í sumar var haft eftir henni að þegar hún losnar úr fangelsi ætli hún að halda gott partí. Þá segist hún ganga með þann draum að ferðast til Grikklands, Rómar og Egyptalands í framtíðinni. „Mér liggur ekkert á að fara í samband með öðrum manni aftur. En mig langar að ferðast og halda eitt stórt og langt partí. Mig langar að heimsækja Egyptaland, Grikkland og Róm. Sjá pýramídana og fara niður ána Níl.“

Stjúpinn heillaðist af pyntingum
Steven Barker, stjúpfaðir Peters sem nú er 33 ára, virðist hafa verið yfir sig hrifinn af pyntingum. Breska blaðið The Sun greindi frá því í sumar að hann hafi haft sérstakt dálæti á að pynta dýr. Hann hafi verið hvattur áfram af bróður sínum, Jason, sem nú er 37 ára. Hann hafi leikið sér að því að pynta naggrísi og flegið froska lifandi og brotið svo á þeim lappirnar. Bræðurnir gengu meira að segja svo langt að ráðast á 82 ára gamla ömmu sína árið 1995.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?