Sigþór Ari Sigþórsson, núverandi framkvæmdastjóri og einn af eigendum verktakafyrirtækisins Klæðningar, segir að sömu eigendur og eigi BYGG hafi átt fjórðungshlutinn í Klæðningu sem var í vörslu Kaupþings banka í Lúxemborg. Um var að ræða fjórðungshlut í fyrirtækinu sem metinn var á 15 milljónir króna að nafnvirði. Gunnar Þorláksson, annar eigandi BYGG, sagði í DV í gær að fyrirtækið hefði ekki átt hlutinn.
Sigþór segist hins vegar ekki vita betur en að BYGG hafi átt hlutinn. „Gunnar Þorláksson presenteraði hlutinn í fyrirtækinu að minnsta kosti en hann er eigandi BYGG. Ég var alltaf í sambandi við Gunnar út af hlutnum. Ég hef hins vegar aldrei séð neitt skjalfest um hver eigi þennan hlut en það kæmi mér á óvart ef það var einhver annar,“ segir Sigþór.
Staðfest af Lómasölum
Samkvæmt heimildum DV seldi BYGG hlutinn til nýs hluthafa í Klæðningu, Lómasala ehf., þegar eigendaskipti urðu á fyrirtækinu á seinni hluta síðasta árs.
Sigurður Sigurgeirsson hjá Lómasölum staðfestir þetta því hann segir að fyrirtækið hafi á seinni hluta síðasta árs keypt eignarhluta í Klæðningu sem áður hafi verið í eigu BYGG. Hann segir að Lómasalir hafi keypt hlutinn af þriðja aðila en að hann viti ekki betur en að hluturinn hafi verið kominn frá BYGG sem átt hafi hlut í Klæðningu.
Kaupþing þegir
Halldór Þorleifs Stefánsson, starfsmaður Kaupþings banka í Lúxemborg, segist ekki vita hvort eignarhluturinn í Klæðningu hafi verið færður úr vörslu bankans og yfir til nýrra eigenda á liðnum mánuðum. „Ég bara veit það ekki, satt að segja,“ segir Halldór. Hann dregur svo í land og segist hvorki geta, mega né vilja greina frá því hvort hluturinn í Klæðningu hafi verið færður frá bankanum nýlega vegna eigendaskiptanna.
Við eigendaskiptin í lok árs 2008 lét Guðmundur Ingi Karlsson af störfum sem stjórnarformaður í fyrirtækinu og Bjarni Már Bjarnason tók við, samkvæmt upplýsingum frá hlutafélagaskrá. Guðmundur Ingi er mágur Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra Kópavogs.
Veit ekki hver átti hlutinn
Samkvæmt heimildum DV sat Guðmundur Ingi Karlsson, fráfarandi stjórnarformaður Klæðningar, í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd BYGG. Guðmundur Ingi segist hins vegar ekki vita hver átti leynihlutinn í fyrirtækinu sem Kaupþing banki sá um. „Ég hef ekki hugmynd um það og hef ekkert um málið að segja,“ segir Guðmundur. Hann segist ekki vita hvort eða til hvers leynihluturinn í Lúxemborg hafi verið seldur þegar hann lét af stjórnarformennsku í fyrirtækinu.
Spurður hvort það sé ekki ótrúverðugt að hann sem stjórnarformaður í Klæðningu hafi ekki vitað hver átti fjórðungshlut í fyrirtækinu, segir Guðmundur hlutinn hafa verið í vörslu Kaupþings og „hann hafi ekki hugmynd um hver hafi átt hann.“
Borgaði BYGG fyrir hlutinn?
Í skjölum frá Klæðningu sem DV hefur undir höndum kemur nokkrum sinnum fram að BYGG hafi lagt fram 15 milljónir króna sem fóru í 60 milljóna króna endurfjármögnun fyrirtækisins árið 2003. Upphæðin er jafnhá og nafnvirði eignarhlutans sem geymdur var í Lúxemborg og eigendur BYGG áttu. BYGG var hins vegar ekki skráð fyrir hlutnum í Lúxemborg né sem einn af hluthöfunum í Klæðningu í tilkynningu frá fyrirtækinu til Hagstofu Íslands um hlutafjáraukninguna árið 2003.
Hlutafjáraukningin sem var tilkynnt til Hagstofu Íslands er sú sama og á minnisblöðunum nema að ekki er minnst á frá hvaða fyrirtækjum féð er komið. Öll fyrirtækin, nema BYGG, sem á minnisblöðunum frá Klæðningu eru sögð leggja hlutafé í fyrirtækið urðu síðar hluthafar í því samkvæmt skjali yfir hluthafa Klæðningar.
Hugmynd Gunnars Birgissonar
Nafn BYGG er hvergi tekið fram á opinberum pappírum frá Klæðningu en í vinnuskjölunum frá fyrirtækinu frá árinu 2003 er nokkrum sinnum gert ráð fyrir að það leggi fram 15 milljónir til endurfjármögnunarinnar og er sú hugmynd sögð vera komin frá Gunnari Birgissyni, núverandi bæjarstjóra Kópavogs.
Gunnar Birgisson var á þeim tíma bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, framkvæmdastjóri Klæðningar og einn af eigendum fyrirtækisins. Klæðning hefur alla tíð unnið mikið fyrir Kópavogsbæ. Fyrirtækið stóð afar illa fjárhagslega árið 2003 og þurfti að endurfjármagna það. Skuldir fyrirtækisins voru á þeim tíma um 270 milljónir. Í fundargerðum frá fyrirtækinu kemur fram að um 60 milljóna króna hlutafjáraukningu hafi þurft til að ná skuldum fyrirtækisins niður í um 70 milljónir því verkefnastaða fyrirtækisins hafi verið góð.
Við endurfjármögnunina árið 2003 seldi Gunnar hlut sinn í fyrirtækinu og lét af störfum sem framkvæmdastjóri. En við endurfjármögnunina varð leynihlutur BYGG í fyrirtækinu jafnframt til og hefur alla tíð hvílt yfir því mikil leynd hver átti hann.





Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars