Bloggararnir og þjóðfélagsrýnarnir láta sig allt varða og sífellt fjölgar þeim sem sjá sig knúna til þess að láta skoðanir sínar í ljós á netinu. Vinsælustu bloggararnir einskorðast ekki við stétt og eru allt frá ungum, fátækum námsönnum til ráðherra og sjónvarpsmanna. DV tekur hér saman laun nokkurra bloggara sem náð hafa vinsældum á síðustu árum. Launin eru byggð á útsvarstölum þeirra.
Anna K.Kristjánsdóttir 503.182 krónur
Vélstýran Anna er reyndar hætt á sjónum en hún er tvímælalaust einn vinsælasti bloggarinn á Moggablogginu. Þegar hún er ekki að blogga starfar hún á vöktum í stjórnstöð Orkuveitunnar og hefur það ágætt.
Ármann Jakobsson 611.696 krónur
Ármann gegnir stöðu lektors í íslensku við Háskóla Íslands og trónir nú um stundir á toppi Gáttarinnar, yfir vinsælustu bloggara landsins. Hann hefur rúmar sex hundruð þúsund krónur í mánaðarlaun.
Gaukur Úlfarsson 35.338 krónur
Hann er sennilega einn umdeildasti bloggari landsins, jafnvel þó hann hafi ekki bloggað neitt að ráði síðustu mánuði. Gaukur komst á spjöld bloggsögunar með því að verða fyrsti bloggarinn sem er dæmdur er fyrir bloggskrif sín. Kvikmyndagerðamaðurinn virðist þó lepja dauðann úr skel, með rétt rúmlega 35 þúsund krónur á mánuði.
Gunnar L. Hjálmarsson 263.820 krónur
Dr. Gunni starfar sem blaðamaður á Fréttablaðinu, dagskrárgerðamaður á RÚV, tónlistarmaður og vafalaust margt fleira. Dr. Gunni er tvímælalaust í hópi vinsælustu bloggara landsins og vekur jafnan athygli fyrir frumleg efnistök. Bloggið hans er einskonar samkomustaður fyrir fúla neytendur, gagnagrunnur fyrir sundlaugagesti og fjallgöngumenn. Hann þénar 263 þúsund krónur á mánuði.
Katrín Anna Guðmundsdóttir 153.894 krónur
Katrín Anna var mikið í fjölmiðlum á tímabili, enda starfaði hún sem talskona Femínistafélagsins. Hún stundar nú meistaranám í kynjafræði. Þá skrifar hún pistla í Viðskiptablaðið og rekur fyrirtækið Hugsaðu ehf. Síðast en ekki síst bloggar hún reglulega á hugsadu.blogspot.com. Þessi annasama kona hefur tæplega 154 þúsund krónur á mánuði.
Kolbrún Baldursdóttir 326.673 krónur
Kolbrún starfar sem sálfræðingur á Sálfræðistofunni. Þá hefur hún einnig tekið virkan þátt í stjórnmálum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og er meðal annars varaþingmaður flokksins. Hún hefur auk þess stýrt sjónvarpsþáttum á sjónvarpstöðinni ÍNN. Kolbrún hefur 326 þúsund í mánaðarlaun.
Sóley Tómasdóttir 562.962 krónur
Sóley er ritari Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og varaborgarfulltrúi í Reykjavík. Hún gegnir auk þess ýmsum nefndarstörfum. Hún er róttækur femínisti og það er sjaldan lognmolla í kringum hana þegar jafnrétti kynjana verða umræðuefni í bloggheimum. Bloggarinn og varaborgarfulltrúinn Sóley, hefur 562 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Stefán Friðrik Stefánsson 2.923 krónur
Óumdeilanlega einn afkastamesti bloggari landsins. Þegar Stebbi er í stuði geta lesendur hans átt von á því að á hann framleiði á annan tug bloggfærslna á dag. Stefán hefur oft legið undir ámæli fyrir að endursegja hreinlega fréttir og hafa afar litlu að bæta við þær. Það hefur hins vegar kveðið við annan tón hjá Stefáni undanfarnar vikur, því hann á til að verða beittur í skrifum sínum. Stefán hafði 2.923 krónur í mánaðarlaun á síðasta ári, samkvæmt útsvarstölum hans og er því lægst launaðist bloggarinn í úttekt DV.
Stefán Pálsson 367.044 krónur
Sagnfræðinginn Stefán, má kalla yfirbloggara vinstri manna á Íslandi. Hann hefur verið lengi í faginu og bloggið hans um tilgangsleysi allra hluta, er víðlesið. Hann er líkt og Dr. Gunni, þúsund þjalasmiður, en starfar sem safnvörður í safni Orkuveitunnar í Elliðárdal. Hann hefur 367 þúsund krónur á mánuði upp úr krafsinu.
Björn Bjarnason 1.078.594 krónur
Dómsmálaráðherra er afi bloggsins á Íslandi. Hann hefur í meira en áratug haldið úti dagbók á netinu og notar bloggið til þess láta skoðanir sínar á mönnum og málefnum í ljós. Vafalaust er Björn áhrifamesti bloggari landsins, því minnstu bloggskrif hans verða iðulega tilefni til frétta. Hann hefur tekjur sínar þó ekki af blogginu, heldur er það stjórnmálaþáttaka hans sem færir honum um 1.078 þúsund krónur í laun á mánuði. Hann skipar sér þannig í sess hæst launuðust bloggarana.
Össur Skarphéðinsson 947.477 krónur
Næturbröltarinn og iðnaðarráðherrann á mjög auðvelt með að setja allt á annan endann í samfélaginu, með bloggfærslum sínum. Á sama tíma og Björn Bjarnason hefur mjög agaðan bloggstíl og er lítið fyrir að færa í stílinn, þá er Össur gjarn á að fara hreinlega hamförum á Eyjublogginu sínu í skjóli nætur. Hann hefur 947 þúsund krónur í laun á mánuði.
Egill Helgason 943.418 krónur
Egill hefur sérstakan sess á Eyjunni og gnæfir yfir alla aðra bloggara. Hann er þjóðfélagsrýnir númer eitt. Hann stýrir sjónvarpsþáttunum Silfri Egils og Kiljunni í Ríkissjónvarpinu, auk þess sem hann greinir samfélagið og pólitíkina á blogginu. Egill hefur 943 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Pétur Gunnarson 421.000 krónur
Hux-arinn hefur verið einn helsti skúbbari og best yddaðasti blýanturinn í bloggheimum undanfarin ár. Hann hefur komið víða við í fjölmiðlum, en hans síðasta starf var að ritstýra og koma á fót Eyjunni. Til marks um vinsældir Péturs sem bloggara, þá var hann einn af örfáum sem fékk greiddar um það bil 50 þúsund krónur frá Byr, gegn því að fyrirtækið fengi að auglýsa á blogginu hans.Pétur hafði 421 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Jónas Kristjánsson 677.831 krónur
Ritstjórinn fyrrverandi, er með afkastameiri bloggurum landsins og fylgir þeirri föstu reglu að blogga stutt og hnitmiðuð blogg. Hann er einn mest lesni bloggari landsins og vafalaust í hópi þeirra áhrifamestu. Hann hefur kennt blaðamennsku í Háskólanum í Reykjavík síðustu ár og hefur 677 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Guðríður Haraldsdóttir 335.000 krónur
Guðríður er aðstoðarritstjóri Vikunnar og virðist hafa mikla og óseðjandi ritþrá. Auk þess að starfa í blaðamennskunni, bloggar hún á tveimur vígstöðvum, á Moggablogginu og nú nýlega bættist hún í hóp bloggara á DV.is. Guðríður hefur 335 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Bubbi Morthens 477.610 krónur
Bubbi Morthens er kannski ekki bloggari í hefðbundnum skilningi, en hann er öflugur að færa lesendum fréttir úr eigin lífi á spjallborðinu á bubbi.is. Íslendingar fá ekki nóg af Bubba, því hann er í hópi valinna bloggara sem má ekki bjóða góðan daginn á blogginu, án þess að fjölmiðlar séu búnir að segja frá því. Bubbi er eins og flestir vita dáður tónlistarmaður og í seinni tíð rithöfundur. Kóngurinn hefur 477 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Hafrún Kristjánsdóttir 372.434 krónur
Sálfræðingurinn og þingmannssystirin bloggar einnig á Eyjunni. Þrátt fyrir að hafa sterk tengsl inn í Sjálfstæðisflokkinn, þá er hún ekki þekkt fyrir að liggja á skoðunum sínum og lætur alla flokka heyra það. Fyrir vikið hefur hún aflað sér mikilla vinsælda í bloggheiminum. Hún er með rúmar 370 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Jenný Anna Baldursdóttir 182.343 krónur
Jenný Anna lýsir sjálfri sér sem bloggara með róttæka vinstri slagsíðu og feminíska takta. Hún er ein af drottningum Moggabloggsins og bloggar að meðaltali tvær til þrjár bloggfærslur á dag. Hún hefur 182 þúsund krónur í mánaðarlaun
Jón Valur Jensson 116.352 krónur
Jón Valur er forstöðumaður Ættfræðistofnunar og rithöfundur. Moggabloggið er auk þess hans vettvangur. Hann hefur rúmlega 116 þúsund krónur í laun á mánuði.
Tómas Hafliðason 336.008 krónur
Tómas er betur þekktur á Eyjunni, sem Potturinn. Hann er tengdur inn í Sjálfstæðisflokkinn og heldur gjarnan uppi fimlegum vörnum fyrir sína menn. Þegar hann er ekki að blogga, þá starfar hann sem framkvæmdastjóri Íshússins. Hann hefur 336 þúsund krónur í laun á mánuði.
Guðmundur Rúnar Svansson 269.534 krónur
Guðmundur er sennilega betur þekktur í bloggheimum undir nafninu Svansson. Hann skeiðar fram ritvöllinn á Eyjunni og er einn ötulasti bloggarinn. Auk þess starfar sem útgefandi og hefur upp úr krafsinu um 270 þúsund krónur á mánuði.





Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars