ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

Ríkisforstjórar á ofurlaunum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:44 › 11. desember 2008

Geir H. Haarde forsætisráðherra lagði í gær fram frumvarp um að Kjararáð kveði upp úrskurð sem feli í sér 5 til 15 prósenta launalækkun þingmanna og ráðherra frá 1. janúar 2009. Gerir frumvarpið ráð fyrir að óheimilt verði að endurskoða þann úrskurð til hækkunar fyrr en í árslok 2009. Þá verða kjör annarra sem undir Kjararáð heyra endurskoðuð.

Forseti Íslands verður undanskilinn þessu ákvæði enda bannar stjórnarskráin slíkt. Forstjórar ríkisstofnana og fyrirtækja sem eru í meirihlutaeigu ríkisins eru oft á tíðum með himinhá laun sem skáka ráðherrum. Þeir hæst launuðu þéna meira en forsetinn. DV rýnir í laun forstjóranna á framfæri ríkisins. Launahæstu forstjórarnir eiga það sameiginlegt að laun þeirra eru ekki ákvörðuð einhliða af Kjararáði heldur geta þeir samið við stjórnir stofnana sinna um kaup og kjör.

Geir Haarde á að vera launahæstur
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Árna Mathiesen fjármálaráðherra út í laun forstjóra ríkisstofnana og fyrirtækja í meirihlutaeigu ríkisins á Alþingi í gær. Vakti Helgi athygli á því að ríkisforstjórar séu oftar en ekki með hærri laun en forsætisráðherra. Er það mat Helga að forsætisráðherra eigi að vera launahæsti ríkisstarfsmaðurinn, að forseta Íslands undanskildum. Samkvæmt úttekt DV á launum þingmanna og ráðherra á dögunum er Geir H. Haarde með 1.226.008 krónur á mánuði. Þá eru hvort tveggja talin hrein laun hans upp á 1.098 þúsund og fastar starfskostnaðar- og ferðagreiðslur. Hvora töluna sem stuðst er við er ljóst að laun forsætisráðherra eru talsvert lægri en laun margra ríkisforstjóra miðað við fyrirliggjandi gögn.
Árni Mathiesen boðaði viðræður um svipaðar breytingar, og kveðið er á um í bréfi forsætisráðherra til Kjararáðs, á launum ríkisstofnana og fyrirtækja sem ríkið á meira en helmingshlut í. Árni sagði þó erfitt að segja hversu langt ætti að ganga í launalækkununum en þær væru sennilega í svipuðum dúr og Helgi ræddi um.

Skýrist á næstu dögum
Kjararáð bíður þess nú að Alþingi afgreiði frumvarp forsætisráðherra um breytingarnar. Eins og fram kom í fjölmiðlum gat ráðið ekki orðið við upphaflegu beiðni hans um endurskoðun kjara þingmanna, ráðherra, forseta Íslands og annarra toppa hjá ríkisstofnunum sem heyra undir það þar sem þörf væri á lagabreytingum fyrir slíkar aðgerðir. „Þetta hlýtur að skýrast á næstu dögum,“ segir Guðrún Zoëga, formaður Kjararáðs, um málið þegar DV spurðist fyrir um gang mála.
Eins og áður hefur komið fram er Ólafur Ragnar Grímsson undanskilinn öllum breytingum Kjararáðs á launakjörum. Íslenska stjórnarskráin heimilar ekki að lækka launagreiðslur til forseta á kjörtímabili hans, þó hann geti sjálfviljugur afsalað sér hluta launa sinna.

Allir þættir til skoðunar
„Að sjálfsögðu kemur það til álita eins og hvað annað en það hefur ekki verið rætt innan stjórnarinnar. Rekstur allra ríkisstofnana eru til skoðunar, allir þættir. Þannig að þetta mál verður skoðað heildstætt ásamt öðrum,“ segir Jóhann R. Benediktsson, stjórnarmaður hjá Samkeppniseftirlitinu, um hugsanlegar launalækkanir hjá stofnuninni. Samkvæmt tekjublaði Mannlífs var Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, með ríflega 1,2 milljónir króna í laun á mánuði á síðasta ári. Samkeppniseftirlitið heyrir undir viðskiptaráðherra en forstjórinn er ráðinn af stjórninni sem jafnframt ákveður starfskjör hans. „Samkeppniseftirlitið mun að sjálfsögðu skoða öll slík tilmæli með jákvæðum augum.“ sagði Jóhann aðspurður hvort málin yrðu skoðuð í kjölfarið.

Ekki rætt hjá Landsvirkjun
„Slíkt hefur ekki komið til tals á stjórnarfundum Landsvirkjunar,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir, varaformaður stjórnar Landsvirkjunar, aðspurð hvort launalækkun forstjóra fyrirtækisins, Friðriks Sophussonar, hafi verið rædd í stjórninni í kjölfar umræðunnar í samfélaginu undanfarið. Friðrik Sophusson er launahæsti forstjóri ríkisfyrirtækis en ráðherrann fyrrverandi er með ríflega 2,1 milljón krónur á mánuði. Rétt tæplega helmingi hærri laun en forsætisráðherra Íslands. Landsvirkjun er sameignarfélag í fullri eign ríkisins og á forræði fjármálaráðuneytisins en laun forstjórans eru ákvörðuð af stjórninni.

Ríkisforstjórar á ráðherralaunum
Nú þegar liggur fyrir að laun þeirra forstjóra og æðstu stjórnenda sem heyra undir Kjararáð munu skerðast tímabundið á næstunni um allt að fimmtán prósent að beiðni ríkisstjórnarinnar. Gerðu tilmæli forsætisráðherra ráð fyrir því að þeir launahæstu myndu taka á sig mestu lækkunina en hún skyldi vera hófstilltari eftir því sem neðar er komið í launastiga Kjararáðs. Meðal þeirra tekjuháu forstjóra sem koma til með að falla undir þann flokk er Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, sem þénaði ríflega 994 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári. Steingrímur Ari Arason, fyrrverandi forstjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna, var með rúmlega 916 þúsund krónur á mánuði í fyrra og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tæpar 800 þúsund krónur. Forstjórar Vinnueftirlits ríkisins og Vinnumálastofnunar falla líka undir fyrirhugaðan niðurskurð Kjararáðs á vegum ríkisstjórnarinnar sem og fjölmargir aðrir.

Fylliríinu lokið
„Þetta er bara hið besta mál,“ segir Aðalsteinn Baldursson, verkalýðsforingi á Húsavík, spurður um ummæli Árna Mathiesen um endurskoðun launastefnu forstjóra á vegum ríkisins. „Menn eru búnir að vera á fylliríi í nokkur ár og nú er kominn tími á afvötnun. Hluti af því er að endurskoða þessi laun alveg frá grunni. Persónulega finnst mér að forsætisráðherra eigi að vera á hæstu launum ríkisstarfsmanna. Svo geta menn hreiðrað um sig þar fyrir neðan,“ segir Aðalsteinn, og vonast til að sjá aldrei aftur ofurlaun í líkingu við það sem verið hefur í góðærinu.
„Ég ætla að vona að við sjáum aldrei aftur tíma ofurlaunanna á nýjan leik í kjölfar þeirrar enduruppbyggingar sem nú fer í hönd. En það er nú einu sinni þannig að við Íslendingar erum fljótir að gleyma, þannig að maður veit nú aldrei.“

Laun forstjóra ríkisstofnana

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar 2.157.201
Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs 1.976.546
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins 1.589.5990
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins 1.224.978
Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar 1.027.442

Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar* 994.359
Steingrímur Ari Arason, fyrrv. forstjóri LÍN 916.330
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar* 797.932
Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins* 791.515
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar* 780.934

* Heyrir undir Kjararáð.
Heimild: Tekjublað Mannlífs 2008.

Bein laun æðstu ráðamanna hjá Kjararáði

Ólafur Ragnar Grímsson 1.827.143
Geir H. Haarde 1.098.208
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 992.512
Árni M. Mathiesen 992.512



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.