ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Flóttinn úr fjárvana Gift

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:26 › 1. desember 2008

„Núna virðist félagið ekki eiga neinar eignir, aðeins skuldir,“ segir lögfræðingurinn Sigurður G. Guðjónsson, varðandi fjárfestingafélagið Gift sem er á barmi gjaldþrots. Félagið var stofnað á síðasta ári þegar fulltrúarráð Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga samþykkti að færa eignir Samvinnutrygginga inn í Gift. Gjörningurinn varð umdeildur, þá sérstaklega í ljósi þess að um fimmtíu þúsund manns eiga eignarrétt í félaginu í ljósi þess að þeir greiddu tryggingar í áravís. Heildarupphæðin sem almenningur á tilkall til er þrjátíu milljarðar, fé, sem nú virðist vera tapað.

Áttu að fá hlut í Gift
Samvinnutryggingar eru sennilega eitt umdeildasta fyrirbæri landsins. Tryggingafélagið Samvinnutryggingar var stofnað árið 1946 en það sameinaðist svo brunabótafélaginu í VÍS árið 1989. Þeir sem tryggðu hjá Samvinnutryggingum árið 1987 til 1988, og héldu áfram að tryggja hjá VÍS fram í júní 2006, áttu að fá hlut sinn greiddan í hlutabréfum Giftar.
VÍS varð verulega umdeilt þegar Finnur Ingólfsson, ásamt Helga S. Guðmundssyni og fleiri framsóknarmönnum, var sakaður um að misnota sjóðinn í fjárfestingar, þar á meðal til kaupa á Búnaðarbanka Íslands, síðar Kaupþing, árið 2003. Margir vildu meina að þar hefði átt sér stað stærsta bankarán sögunnar. Samvinnutryggingar urðu alræmdar í ljósi þess að framsóknarmenn stjórna sjóðnum, þar ber hæst, Finnur Ingólfsson, Helgi S. Guðmundsson, og svo Valgerður Sverrisdóttir sem nú situr í fulltrúaráðinu. Öll komu þau að einkavæðingarferli Búnaðarbankans, Valgerður var þá ráðherra, Helgi og Finnur kaupendur.

Þrjátíu milljarða skuld
Það var svo í júní á síðasta ári sem fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, samþykkti að stofna dótturfélagið Gift. Þá var jafnframt samþykkt að leggja allar eignir inn í félagið sem voru 60 milljarðar en eigið fé var 30 milljarðar. Í kjölfarið hefur Gift farið um víðan völl og fjárfest í mörgum félögum og fyrirtækjum. Þar ber hæst Exista og Kaupþing, en bankinn var þjóðnýttur í október. Þá átti Gift einnig í Landsbankanum og Glitni, sem einnig hafa verið þjóðnýttir. Gift átti síðan hluta í Straumi-Burðarás, sem skilaði nýlega tapi, vel yfir tuttugu milljarða. Því er ljóst að Gift er komið í veruleg vandræði með fé almennings. Kreppan er næstum búin að knésetja félagið áður en það kemst í hendur þeirra fimmtíu þúsund einstaklinga sem hafa eignarrétt í því.

Ólögleg skilanefnd
„Með því að samþykkja skilanefndina án þess að fá löggildingu, er fulltrúarráðið komið í þá stöðu að það gæti verið að brjóta lög,“ segir hæstaréttalögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson, sem gagnrýndi tilurð Gift á sínum tíma harðlega. Hann segir að skilanefndin svokallaða, sem átti að vinna að slitum Giftar, sé ekki lögleg. „Ég veit ekki til þess að það sé einhver löggilding sem þeir hafa fengið og því engar lagalegar forsendur til þess að annast þessi störf,“ segir Sigurður um skilanefndina en formaður hennar er Kristinn Hallgrímsson hæstaréttarlögmaður.
Samkvæmt heimasíðu Samvinnutrygginga þá kemur fram í pistli á síðasta ári að skilanefndin myndi slíta félaginu í fyrsta lagi í október á síðasta ári. Það var Þórólfur Gíslason, þáverandi formaður stjórnar Giftar, sem það skrifaði, en hann sagði sig úr stjórn í mars síðastliðnum. Ekkert bólar á skilum skilanefndarinnar og nú er raunveruleg hætta á að verðmætin hafi tapast í því efnhagslega fárviðri sem hefur ríkt hér á landi undanfarið.

Ekki leika sér með verðmæti
„Það á ekki að láta menn sem telja sig hafna yfir lög leika sér með verðmæti sem þeir eiga ekki,“ segir Sigurður ómyrkur í máli og bendir á að svokaölluð skilanefnd Giftar hefði átt að vera löngu búinn að skila félaginu og koma verðmætum í hendur þeirra sem raunverulega eiga þau. Nú er rúmt ár liðið, og peningurinn hefur tapast.
Aðspurður hver staða félagsins sé nú, segir Sigurður að félagið eigi ekkert nema skuldirnar, því eigi að taka það til gjaldþrotaskipta. Slíkt sé gert þegar félög eiga ekki fyrir sínum skuldum.
Spurður hvaða afleiðingar það hefði í för með sér, að taka félagið til gjaldþrotaskipta, svarar Sigurður: „Þá eru þeir búnir að baka sér skaðabótaskyldu og hugsanlega brjóta landslög.“

Skaðabótaskylda myndast
Samkvæmt 249. grein almennra hegningarlaga segir orðrétt: „Ef maður, sem fengið hefur aðstöðu til þess að gera eitthvað, sem annar maður verður bundinn við, eða hefur fjárreiður fyrir aðra á hendi, misnotar þessa aðstöðu sína, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum, og má þyngja refsinguna, ef mjög miklar sakir eru, allt að 6 ára fangelsi.“
Ekki er ljóst hvort sú grein eigi við, ef Gift verði tekið til gjaldþrotaskipta, og almenningur fái ekki þá fjármuni til baka sem þeir lögðu í sjóðinn. Hitt er þó ljóst, að skaðabótaskylda myndast. Ákvörðunin um að mynda Gift er á vegum fulltrúaráðsins, sem 24 einstaklingar sitja í, meðal annars formaður Framsóknarflokksins, Valgerður Sverrisdóttir.

Formaður Framsóknar í kuldanum
„Ég get bara ekkert sagt um það,“ svarar Valgerður Sverrissdóttir spurð út í alvarlega stöðu Giftar og þýðingu þess fyrir hana. Hún staðfesti hinsvegar við blaðmann að hún hefði verið stödd á fundi fulltrúaráðs Samvinnutrygginga þegar ákvörðunin um Gift var tekin í júní á síðasta ári. Hún segir að enginn hafi kallað til fundar vegna ástandsins núna, síðasti fundur hafi verið haldinn í upphafi árs. Þá komst hún ekki því hún var stödd erlendis á sama tíma.
Þegar haft var samband við framkvæmdarstjóra Giftar, Benedikt Sigurðsson, þá sagðist hann ekki gefa nein svör, þau yrði hægt að nálgast á vef Samvinnutrygginga í dag, föstudag. Hann vildi ekki svara spurningum um fjárhagsstöðu Giftar.

Stjórnarmenn flýja
Athygli vekur að verulega hefur kvarnast úr stjórn Giftar. Í ljós kom að Þórólfur Gíslason, Framsóknarmaður og kaupfélagsstjóri, sagði sig úr stjórn Giftar í mars síðastliðnum en þá var hann stjórnarformaður. Við honum tók Sigurbjörn Rúnar Rafnsson, sem hætti einnig sem stjórnarformaður nú fyrir stuttu. Þegar blaðamaður náði í Helga S. Guðmundsson sagðist hann hafa hætt í stjórn félagsins síðastliðið vor. Áður hafði hann verið varamaður, en datt inn sem stjórnarmaður eftir að annar stjórnarmaður hætti. Þá er Jafet Ólafsson nýr í stjórninni. Ekki náðist í stjórnarformennina tvo.

Framsóknarmenn flýja
Miðað við þá stöðu sem upp er kominn virðast þeir sem tengdust Framsóknarflokknum vera búnir að yfirgefa Gift. Þá er átt við þá Helga S. Guðmundssonar, Þórólf Gíslason og Finn Ingólfsson, sem sjaldan virtist vera langt undan. Þess má geta að viðskipti á milli Finns og Samvinnutrygginga hafa verið náin. Til að mynda keypti Finnur árið 2006 fjórðungshlut í Langflugi ehf., sem var félag í eigu Samvinnutrygginga og eignarhaldsfélags Finns, árið 2006. Eina eign þess var 32 prósenta hlutur í Icelandair Group Holding hf. Í kjölfarið varð Finnur stjórnarformaður Langflugs, sem og Icelandair.
Ári síðar gerði Finnur svokallaðan makaskiptasamning við Langflug um hlutabréf sín í Icelandair. Þá hagnaðist hann um rétt tæpa fimm milljarða. Og þess má geta að þá var Langflug í eigu Giftar.

Fulltrúaráðsfundur boðaður
Ljóst er að málefni Giftar eru alvarleg en staða fyrirtæksins er ekki ljós. Morgunblaðið fjallar um fjárfestingafyrirtækið í blaði sínu í gær þar sem fullyrt er að skuldir Giftar séu þrjátíu milljarða umfram virði eigna. Þá segir að eignastaða félagsins hafi verið sterk þegar Samvinnutryggingar samþykktu stofnun Giftar, en þá átti félagið eignir upp á sextíu milljarða og þrjátíu milljarða eiginfé. Fyrrum stjórnarformaður, Sigurbjörn Rúnar Rafnsson, sem er aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagafjarðar, staðfesti í viðtali við Morgunblaðið að Gift ætti í verulegum fjárhagsvandræðum.
Samkvæmt heimildum DV verður fundur fulltrúaráðs Samvinnutrygginga boðaður í dag og vonir standa til að hann verði haldinn um miðjan desember. Þá verða gögn einnig send á fulltrúa ráðsins um málefni Giftar.

valur@dv.is





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?