„Við fórum af stað með þetta þegar Istorrent var lokað, nánar tiltekið daginn eftir lokun vefsíðunnar. Við fórum samt hægt í framkvæmdir á torrent vefsvæði. DCi opnaði aftur og svo kom tengdur.com. DCi lokaði og tengdur.com breyttist í icetorrent.net og þær síður voru lokaðar. Þá kom mikil pressa frá notendum að opna torrent vefsvæðið og fórum við þá að vinna í því. TheVikingBay.org opnaði svo skömmu fyrir jól og var vistuð í Bandaríkjunum samkvæmt mínum upplýsingum. Eftir að gerð var ping árás á þá var svo pressan enn meiri á okkur að opna. Á aðfangadag opnuðum við vefsvæði www.rip-torrent.net til prufu,“ segir stjórnandi nýju deiliskráasíðunnar www.rip-torrent.net um tilurð síðunnar við fyrirspurnum dv.is. Hann vill ekki koma fram undir nafni, en kýs að kalla sig The Ice Fox.
Upphaflegir samningar í Kanada
Stjórnandinn segir að Rip-Torrent hafi upphaflega fengið samninga í Kanada til starfseminnar á sínum tíma, en hætt hafi verið við þá daginn sem áætlað var að opna síðuna. Síðan er vistuð á Íslandi og hefur þá stefnu að banna allt höfundarréttarvarið efni. Stjórnandinn segir að vefurinn hafi upphaflega verið settur á laggirnar þann 20. nóvember 2007 sem spjallborð um Istorrent málið, en lokað var fyrir starfsemi deiliskráasíðunnar torrent.is að beiðni íslenskra höfundarréttarsamtaka í nóvember sl. Rip-Torrent þróaðist síðan með þeim hætti sem fyrr segir og eru notendur nú um þúsund talsins.
The Ice Fox segir Torrent samfélagið hafa orðið sterkara og þéttara fyrir vikið eftir að lokað var fyrir torrent.is. Hann bendir á að DCi hafi verið lokað af persónulegum ástæðum en icetorrent.net að beiðni móður drengsins sem átti síðuna. Hinsvegar sé það samfélag sem nú sé til staðar sterkt, til að mynda með tilkomu TheVikingBay. Hann segir þó ekkert beint samstarf vera á milli síðanna. Hann segir frekar samkeppni vera þar á milli. Hann segir þá hafa komið sér í mjög góða stöðu en að hann treysti þó ekki leynd þeirra með starfsemina.
Banna höfundarréttarvarið efni
Stjórnandi Rip-Torrent segist ekki hafa haft samband við höfundarréttarsamtök vegna síðunnar. „Gaman væri að hafa samband við þá og gera samning við þá. Núna er ekkert efni sem íslensk höfundarréttarfélög eiga rétt á, en annars tökum við ekki ábyrgð á því sem sent er inn. Við leyfum íslenskt efni, ef þú hefur dreifingarrétt á því. En við erum á Íslandi og þá hafa höfundarréttarsamtök dreifingarrétt á vissu efni sem við höfum ekki. Ef við sjáum eitthvað tökum við það samstundis út,“ segir hann.
Hugmyndir um Holland
Aðspurður hvort hann hyggist fara sömu leið og aðrir stjórnendur deiliskráasíða og færa starfsemina út fyrir landsteinana, segir hann það liggja beinast við ef síðan eigi að stækka frekar. „Hugmyndir eru með Holland þar sem við getum fengið netþjóna, en TheVikingBay.org er með langflestu notendurna og þá fá þeir náttúrulega mestu styrkina,“ segir The Ice Fox.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Ég er rómantískur“
Saknar fjölskyldunnar
Örn Árnason í opinskáu viðtali: Afþreying er iðnaður
Myndi missa vitið án húmorsins
Þakklátur og glaður
