Vinstri, hægri, snú!

Vinstri, hægri, snú!

Atli Þór Fanndal blaðamaður á DV, skrifar um stjórnmál og annað sem vekur áhuga hans. Atli er með latari bloggurum og ekki má gera ráð fyrir og reglulegum færslum. Þær færslur sem hann þó setur inn verða vafalaust alltof langar. Nafninu á þessu bloggi stal Atli frá frá grínframboðinu Vinstri, hægri snú sem bar flokkastafinn Æ, sama staf og Besti flokkurinn gerði út á mörgum árum síðar.

Ríkisreknar hækjur alræðisins

26. maí 2012 › 14:57
Ópólitísk meðvirkni í boði Íslendinga

„Við erum auðvitað bara komin hingað til að taka þátt í lagakeppninni og mannréttindabrot eru náttúlega ekki hluti af þessari keppni,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir Eurovisionkeppandi fyrir Íslands hönd í fréttum stöðvar tvö.  Gera má ráð fyrir að afstaða Jóns Jóseps Snæbjarnarsonar sé sú sama en við hann hefur ekki verið rætt. Það á þó ekki að útiloka hann frá umræðunni enda hefur hann ekki sýnt tilburði til að taka afstöðu með mannréttindum í keppninni.


Erinddrekar Ríkisútvarpsins eiga það mjög gjarnan til að afhjúpa heigulshátt og hækjuskap sinn með yfirlýsingum um eigin ópólitíska afstöðuleysi. Hver man til að mynda ekki eftir því þegar fréttastofa Ríkisútvarpsins gaf það út að þeir myndu ekki ræða við einn einasta frambjóðanda stjórnlagaþings af því að stofnunin kæmist ekki í að tala við alla í jafn margar mínútur. 


Þannig komust íbúar hins ópólitíska Efstaleitis að þeirri niðurstöðu að hlutleysi fælist í því að þegja jafnt um alla og um leið sleppa því að fjalla um framboð í kosningum sem þó voru yfirvofandi.


Sama á þá auðvitað við þegar kemur að Eurovision og mannréttindabrotum í Azerbaijan. Þá pakka erindrekar RÚV í þöggun enda hafi keppnin ekkert með pólitík að gera.


Vandinn er auðvitað sá að bullandi afstaða fellst í því að líta framhjá brotum á lágmarksréttindum fólks. Mannréttindi eru algjört og ófrávíkjanlegt lágmark sem meirihluti okkar hefur sameinast um að gilda skuli um alla. Þótt við höfum ekki enn náð því markmiði er óafsakanlegt að nýta ekki tækifæri þegar það gefst til að benda á brot sem eiga sér stað fyrir framan nefið á þér. Að lyfta ekki fingri til að andmæla ofbeldi er þannig ekki bara hörð pólitísk afstaða, slíkt er einnig mjög upplýsandi um innri mann þess sem um ræðir. 


Þeir samfélagsþegnar sem beita fyrir sér afstöðuleysi á tímapunktum þar sem þeim gefst færi á að andmæla ofbeldi er ekki bara hápólitískar gungur, heldur í raun gagnlausir þegnar fyrir lýðræðissamfélag. Þannig hefst aðförin að lýðræðinu - þegar fólk nennir ekki lengur að spilla teitinu með andmælum.


Auðvitað getum við ekki bjargað öllum og að sjálfsögðu er margt sem við gerum í daglegu lífi sem orkar tvímælis. Neysluvarningurinn okkar er í miklu mæli framleiddur við skelfilega aðstæður og af fólki sem aldrei mun sjá betra líf. Ekkert okkar getur haft hundrað prósent rétt fyrr sér alltaf. Það skipir máli að gera sitt þegar færi gefst. Velja rétt við sem flest tækifæri og einsetja sér að vera hluti af lausn vandans en ekki dragbítur á nýja tíma.


Það þjónar pólitískum hagsmunum yfirvalda í Azerbaijan að þaga um mannréttindabrot á vettvangi söngkeppninar. Ef frá eru taldir íþróttaviðburðir er engin sjónvarpsviðburður sem fær meira áhorf í heiminum en Eurovision. Hundruðir blaðamanna víða um heim koma til gistilandsins og ræða viðstöðulaust við keppendur, skrifa um þá og allt sem þeir segja. Eurovision er því tækifæri til að gefa hinum raddlausu rödd. Að hunsa slíkt færi er líklega stærsta stjórnmálaákvörðun sem nokkur getur tekið. Afstöðuleysi íslensku erinddreka RÚV er því ekki bara pólitísk, heldur um leið stuðningsyfirlýsing við alræðisstjórnina í Azerbaijan.


Við erum þó komin á hættulega braut þegar það er ópólitískt að þegja, hækjast meðvirk með og brosa framan í myndavélarnar á meðan barið er á mótmælendum fyrir utan kristalshöllina. Að syngja um ástina sem aldrei má gleymast þegar fólk er fangelsað vegna skoðanna sinna sem og heimili eru jöfnuð við jörðu, er ekki bara hræsni það er viðurstyggilegur heigulsháttur.


 


Umfjöllun Panorama um mannréttindabrot í Aserbaídsjan:




Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.