Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

  • MAN BOOBS!

    26. janúar 2010

    eru líklega einu brjóstin sem verða aldrei elskuð ...

    Ég sá þátt um daginn þar sem ungur maður hafði átt ansi erfitt uppdráttar vegna þess að hann var með man boobs. Hann fór í aðgerð og gat allt í einu klætt sig í stuttermaboli án þes að vera eins og kjáni.

    Fyrir utan að þú hösslar ekki með tvær frænkur framan á þér!

    shæse... mér finnst að man boobs aðgerðir ættu að vera ókeypis!


    ps: dont worry þessi gaur er ekki íslenskur og mun ekki líða fyrir þessa myndbirtingu!

    Skrifa athugasemd

  • MAGGI SCHEV Í THE SPY NEXT DOOR! MYNDBAND .. ATH OF FYNDIÐ!

    21. janúar 2010



    Ég veit ekki hvað ég á að segja ...

    SOME BODY STOLE MY SECRET ..er ódauðleg lína ..meinti hann ekki my money?

    En kallinn er í þrusuformi .. það er ekki hægt að dissa það!

    http://www.youtube.com/watch?v=kxchtX14hMo&feature=player_embedded

    Skrifa athugasemd

  • NOTUÐ KYNLÍFSRÓLA TIL SÖLU VEGNA FLUTNINGA!

    21. janúar 2010

    Nei nú tryllist ég! á hinu geðþekka Barnalandi er að finna NÁNAST ónotaða kynlífsrólu til sölu!
    Þið verðið að lesa kommentin þau eru hrikalega fyndin!

    Ein spyr hvort hún eigi nokkuð kynlífsstól þar sem hún sé lofthrædd!

    http://www.black.is/tengill/?ID=30962

    Skrifa athugasemd

  • DÝRAST EKKI ALLTAF BEST!

    21. janúar 2010

    Ég rakst á þessa skemmtilegu mynd af heimatilbúnum i-phone haldara sem er aðeins forlátt kasettuhylki og virkar líka svona vel!

    Skrifa athugasemd

  • ÞEIR SEM ÞORA, SKORA!

    20. janúar 2010



    Ég ákvað að útskýra færsluna hérna á undan ( http://www.dv.is/blogg/verold-tobbu/2010/1/19/karlmenn-sem-thora/ ) aðeins betur þar sem mörgum er þetta hugleikið efni.

    Málið er sum sé það að karlmenn .. og konur eiga að þora meira. Við höfum engu að tapa! Þó að þú tjattir einhvern upp sem hefur ekki áhuga eða er í sambandi! So fokking what! Það er betra að reyna og mistakast en að reyna aldrei. Viðkomandi tekur tjattinu líklega bara sem hrósi og hver hatar hrós?

    Allavega ekki ég og Geir Ólafs!


    Mergur (oj ógeðslegt orð) málsins er sá að við eigum að daðra eins og enginn sé morgundagurinn. Smá daður er bara fallegt og hressir upp á sjálfstraustið. Íslendingar eru svo feimnir. Hræddir við að vera hallærislegir en gott fólk það að búa í einhverjum glerkassa og þora aldrei neinu er hallærislegt! og drepleiðinlegt!

    Pikkaðu upp hvar sem er, hvenær sem er. Talaðu við sjarmerandi fólk. Hösslaðu grimmt! Þú getur verið að hössla þér vin til frambúðar, elskhuga eða tilvonandi eiginmann!

    Ég er ekki að tala um einhverjar cheese pikk up línur heldur bara plein sætt HÆ! Vinkona mín er ansi heit fyrir einum sem er að æfa á sama stað og hún. Þau sjást oft í viku en ekkert gerist þó þau horfi bæði. Svona gæti þetta gengið í ár þess vegna.

    Ég spurði af hverju hún væri ekki búin að heilsa honum?

    - Hva ég get það ekkert, svaraði hún hneyksluð!

    - Afhverju ekki? spurði ég á mót. Bara eitt saklaust hæ!

    Hún hnyklaði brúnirnar. Herpti varirnar. Hugsaði.

    -Þú hefur engu að tapa en allt að vinna, skaut ég inn.

    -Ég þori ekki, sagði hún og setti upp niðurgangssvipinn sinn.

    -Þeir sem þora, skora, svaraði ég. Hún kinkaði kolli.

    Þetta er nefnilega málið! Ef það er heit pía í vinnunni þá bara spyrðu hvort hún sé til í löns í vikunni!
    Ef að þú kannast við einhvern mann en langar að kynnast honum betur ..slærðu honum upp á Facebook og sendir honum skilaboð!

    Ef þig langar í eitthvað þá sækir þú það! Ekki reikna með að alheimsfæribandi rúllu því upp í lúkurnar á þér!

    SÆKTU ÞAÐ SJÁLF/UR!!!


    Skrifa athugasemd