-
SVALA PÍAN Í SPORTHÚSINU!
29. janúar 2010
Ég var án efa svala pían í Sporthúsinu í morgun. Þetta hefur verið karma að bíta mig í rassinn fyrir að hlæja af unglingsslánanum sem labbaði á ruslatunnu í miðjum lyftingasalnum í gær.
Ég byrjaði á því að setja löppina vitlaust upp á pall og detta yfir hann. Mjög sexí. Litla systir sparaði ekki hláturgusurnar. Það er föstudagur og ég nennti ekki að fara hjá mér. Hló bara.
Svo fór ég að gera einhverja sérlega þríhöfðaæfingu. Maðurinn hliðinn á mér var að vesenast eitthvað í tæki sem heyrðist ógurlegt ískur í. Ég stóðst ekki mátið og blikkaði hann og sagði:
- Þetta er uppáhaldshljóðið mitt númer 4.
Maðurinn brosti. Ég kláraði æfinguna mín og tók svo nokkur skref aftur á bak ..
beint á bekk og datt þannig slow motion aftur fyrir mig. Fór að skellihlæja. Hrikalega er það alltaf klassískt að detta. Næst þegar það kemur óþæginleg þögn á stefnumóti ætla ég að láta mig detta ...
eða bara slá viðkomandi fast utan undir og segja svo hátt: sorrí ég ætlaði ekki að gera þetta. Var bara svo stressuð.
Eða nei. Líklega best bara að láta gaurinn um að redda þögninni. Tel hann samt góðan ef hann nær að þagga í mér. Helsta ráðið til þess er að rétta mér ísskál ...
:)Skrifa athugasemd
-
ERTU ÞROSKAHEFTUR? ÆTLARU EKKERT AÐ KYSSA MIG?
28. janúar 2010

Ja hérna hér....
Ég hef um nokkurn tíma dáðst af ansi myndarlegum manni .....eða frekar nammi. Hann er það.. nammi.
Hrikalega djúsí gaur. En það borgar sig ekkert að spá of mikið í hlutunum, þá er mómentið stundum bara farið og þið komin í einhver vina/kunningja fíling og þá er oft erfitt að koma sér aftur þaðan á réttu brautina .. það er að segja slurp og slef.
Any way ... ég hitti Namma um daginn út í búð. Við spjölluðum kurteisilega eins og við gerum þegar við hittumst og svo fórum við hvort okkar leið. Ég fann að ég var alveg að fara að detta í vinkonufílinginn hjá honum (hann á milljón vinkonur) en ég hafði hrikalega takmarkaðan áhuga á því að verða númer milljón og eitt! Ég tékkaði því á honum á facebook fyrir helgina og jújú kjéllinn ætlaði að kíkja á lífið. Ég kom því þannig fyrir að við hittumst á djamminu (fékk alveg í magann Þegar Nammi labbaði inn á Austur seint á laugardagsnóttu) Hrikalega var hann flottur í dökkum gallabuxum, svörtum langermabol (held það allavega) og svörtum frakka! Ég slefaði á sjálfa mig þegar ég sá hann!
Við ákváðum að rölta saman á rólegri stað eftir að ég var búin að blikka augunum hægt og brosa mikið í korter.
Ég var ekki alveg að þora að fara bara að ulla upp í hann þarna inn á Austur. Dáldið slísí eitthvað.
Labbi, labbi, labbi.
Tali, tali, tali.
Staðirnir virtust flestir vera að loka eða ansi sveitt stemming.
Við vorum búin að labba og tala í 3 ár held ég þegar hann stoppaði og snéri sér að mér.
- Ég er á bíl á ég að skutla þér heim?
Já takk svaraði ég og ákvað. Now or never!
Við sátum lengi fyrir utan hjá mér og spjölluðum.
BLA BLA BLA!
Shitt hvað menn eru þroskaheftir! Ætlar hann ekkert að kyssa mig!
Ég var að spá í að segja eitthvað .. enn veit ekki hvað, þegar hann hallaði sér að mér og lagði sínar varir mjúklega ofan á mínar.
SKOR! hugsaði ég. BIG SKOR! Mig vantar sko like button núna.
LIKE!
Nei bíddu ha? Hvað er að ske?
Ojj!
Maðurinn sleikti yfir varirnar á mér, alla leið upp á kinn og fór svo að sjúga á mér tunguna af öllum mætti eins og hann væri að leita sér að varahlutum. Hvaða djöfulsins rugl er þetta! Er Nammi blautari ??? (STRÁKUR SEM SLEFAR ÓVENJU MIKIÐ OG SLEIKIR HELST HÁLFT ANDLITIÐ Á ÞÉR ÞEGAR ÞIÐ KYSSIST!)
Vonbrigðin helltust yfir mig. Nammi er ekker nema slefari! Ég dró tunguna mína til baka með herkjum og horfði á hann helsærð á sál og munni.
- Ég þarf að fara. Ég er með Beinkröm. Bæjj.
Ég opnaði hurðina og skellti henni á Namma sármóðguð. Dró brostnar væntingar mínar með mér og ákvað að vara vinkonur mínar við Namma. Hann væri tungumisþyrmir og líklega með ofvirka slefkirtla.
Þvílík vonbrigði! Þvílíkt slef, hugsaði ég og þurrkaði mér með handabakinu í framan.
En nú get ég allavega strokað hann út af Hot listanum mínum og sett hann á Not listann minn!
Ef menn yfir þrítugt kunna ekki að kyssa er eitthvað meira en lítið að. Konur eiga ekki að vera að deita menn á þessum aldri sem þarf bara að kenna þetta og koma þeim í skilning um hitt! Auðvitað er enginn fullkominn en við eigum ekki að velja okkur potential dating material sem þarf að endurvinna upp á nýtt!
Ef hann meika ekki sens eins og þú finnur hann .. then keep on walking! Nema að þú viljir vera gellan sem dressar upp gæja og kennir honum rómantík ... og umyggjusemi .. sem hann notar svo til að næla sér í Siggu á Næsta Bar .. djók! Main point .. gerum meiri kröfur! Ekki bara auka disk á borðið og meiri þvott til að sofa ekki ein! Betra er autt rúm en illa skipað .. sorry Slef Nammi ... you are out!Skrifa athugasemd
-
ER FACEBOOKIÐ ÞITT MEGA SLOW OG LEIÐINLEGT?
27. janúar 2010
Ég fann þetta á netinu og komst að því að það var einhver vírus inn á prófílnum mínum. Endilega tékkið á þessu!
Has your facebook been running slow lately? Go to "Settings/stillingar" and select "application settings/stillingar fyrir viðbætur," change the dropdown box to "added to profile" or "(bætt við í yfirlit)." If you see one in there called "un named app/ónefnd" delete it... Its an internal spybot.!!!Skrifa athugasemd
-
ERT ÞÚ AÐ LEITA, DEITA?
27. janúar 2010
Þá er skráning í The Deep Pool byrjuð!
Við erum að leita að hressleika og einlægni.
Fólki sem er að leita að ástinni og er tilbúið í samband!
Koma svo ... skrá sig á skjárinn.is!
http://skjarinn.is/einn/veftivi/djupa-laugin/trailer/
Og nei þú þarft ekki að eiga hlaupajakka og kreisí augu!Skrifa athugasemd
-
HVER ER ÞINN BESTI KOSTUR?
26. janúar 2010

Ég velti þessu lengi fyrir mér um daginn. Hugsaði um hvað vinir mínir og fjölskylda ætti með því að eiga mig að.
Ég veit allavega hvað ég vil vera og hef einsett mér það eftir mikla umhugsun. Orðið er umburðarlyndi.
Ef einhver segir eitthvað sem mér mislíkar eða gerir eitthvað sem særir mig er þetta orðið sem fær mig til að hugsa áður en ég geri eitthvað.
- Uuu kannski ekki alltaf en batnandi fólki er best að lifa. Telja upp á tíu og hugsa hvað "umburðarlynda" Tobba ætlar að gera.
Við vitum það öll að við eigum að vera góð og ekki dæma fólk en það gleymist, sérstaklega í hita leiksins. Ég reyni líka að minna sjálfa mig á að ég veit aldrei hvað aðrir eru að ganga í gegnum.
Dónalega konan í búðinni er líklega ekki hamingjusöm. Hún gæti verið að skilja eða bara liði illa. Hún gæti haft áhyggjur.
Vinkonan sem brosir mest og er alltaf hressust gæti verið sorgmæddust í hópnum. Margir eiga um sárt að binda þó þú vitir það ekki en jafnvel þó það sé ekki svo er betra að vera umburðarlyndur.
Ekki dæma því þú veist ekki hvenær þú verður hinu megin við borðið.
Ekki skella svo fast á eftir þér að þú getir ekki opnað dyrnar aftur. Við búum á Íslandi. Þú þarft að feisa flest alla aftur. Jafnvel starfa með sama fólkinu og þú kallaðir niðurgang helvítis fyrir nokkrum mánuðum!
Reynum að vera umburðarlynd. Það auðveldar svo margt... bæði daginn þinn og annarra.Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- Næsta »
