-
KYNLÍF RAUÐHÆRÐRA!
7. september 2010
Ég var í pæjupartíi þar sem ein ákaflega falleg rauðhærð vinkona mín játaði að hún gæti ekki sofið hjá rauðhærðum strákum. Það væri bara eins og að sofa hjá frænda sínum.
- Við erum okkar eigin kynþáttur og einhvernvegin svo tengd. Það meikar bara ekki sens.
Við hinar hlógum hátt og fullvissuðum hana um að ef eitt sjóðheitt blússandi hært stykki (rauðhærðir eru oft kallaðir blússandi hærðir í mínu vinahóp) myndi reyna við hana myndi hún ekki setja það fyrir sig.
Hún var sko viss um að hún myndi ekki falla fyrir því jafnvel þó að við töldum upp hinar ýmsu útfærslur eins og rauðhærðan Clooney eða Pitt! Nú eða bara Gnarrinn! Allt kom fyrir ekki - hún vill alls ekki eiga samfarir við rauðhærðan einstakling.
Við komumst yfir það og komumst jafnvel alla leið niður í bæ. Þar rákumst við á mjög svo rauðhærðan og dásamlegan dreng. Hann tók undir þetta.
- YOU MUST NOT SLEEP WITH ONE OF YOUR OWN! sagði hann háalvarlegur á svip. Hélt því jafnvel fram að þá sendi Íslensk erfðagreining fólki reikning.
En það er bara ágætt fyrir okkur hin... eða er það ekki ? Minni samkeppni.
En hvernig ætli þetta virki með dverga ?Skrifa athugasemd
-
ORÐABÓK SKINKUNAR!
6. september 2010
Vinkona mín skinkaði sig upp fyrir sérlegt pæjupartí sem ég fór með hana í um helgina. Hún fékk lánaða háa hæla og slétti á sér hárið.
Þegar leið á kvöldið komu sérlega skinkuspurningar sem hún þurfti að fá á hreint.
Hvað er skinkubréf?
Dömubindi svaraði ég um hæl.
Ó ekki brúnkuklútur?
Nei það er klósettpappír.
Ó!
Þarna kom hláturskast og við bættum kokteil í glösin. Það er gott að vera skinka.Skrifa athugasemd
-
RAUÐHÆRÐIR MEGA LÍKA LIFA !
4. september 2010
Þessi gaur er priceless! Ætli hann sé að djóka með þessum sérlega ofleik eða er hann í alvörunni retharður ?
Skrifa athugasemd
-
BARIBIE ERÓBIKK VÍDJÓ! PRICELESS!
3. september 2010
Amma mín - sama amma og drap gullfiskinn minn hafði greinilega áhyggjur af því hvað ég var feitt barn. Hún brá því á það ráð að gefa mér Barbie æfingarmyndband ! Allar vinkonur mínar fengu dúkkur en ég litla feitakrúttið fékk svitaband og eróbikk myndband.
Ég setti því bandið á feitt forehead-ið á mér og byrjaði að hamast með litlu feitu fótunum mínum inn í stofu - skælbrosandi og bleik í framan.
Þetta ár þyngdist ég um 6 kíló og hækkaði um 4 cm. Regína frænka fékk líka myndbandið og fór síðan að læra freestæl dans og varð svo fegurðardrottning.
Ps: Hver man ekki eftir þessari dínamísku auglýsingu: Gallafatabarbí er að fara út! Flott hár, margir vinir, ekkert mál!
Mynd: Spaðinn ég með rúllur - mar var hrikalega lekker í litlu prjónapilsi á jólaballi.
Og við erum sko að tala um að Jennifer Love Hewitt lék í þessu dásamlega myndbandi! Hún er í bláuhjarta leggingsinu þessi elska.
Skrifa athugasemd
-
RÁÐIST Á GAMLA KONU Í MELABÚÐINNI!
3. september 2010
Eiríkur Jónsson getur ekki hætt að dásama vesturbæinn. Sundlaugina, Melabúðina, fólkið, lyktina, sjávarandvaran og göturnar.
Ég ákvað að kanna þessa dásemdar líf sem vinnufélagi minn talar svo mikið um.
Byrjaði á að kíkja í sund. Mér leið hálf illa í mjög svo frumstæðri fangasturtunni umkring Elísabet Salanderum - var snögg út í heita pottinn. Potturinn og gufan var kósí en þessi sundlaug heillaði mig ekkert sérstaklega enda bý ég í Kópavogi sem sátar af einni bestu sundlaug landsins.
Næst var það Melabúðin. Ég gekk inn í hana rétt fyrir sex. Búðin virkar lítil og krúttleg utan frá en mér brá þegar ég kom inn. Hún var smekkfull af fólki. Samt er þetta svona kaupmaðurinn á horninu stemming en Hagkaupsfjöldi af fólki. Hægt að kaupa allt milli himins og jarðar þarna.
Ég horfði dolfallinn á fólkið sem hamaðist við að týna ofan í körfurnar og spjallaði þess á milli við fólkið sem það mætti. Allir virtust þekkja alla. Þetta minnti helst á félagsmiðstöð. Ég þekkti engan þarna og leið því hálfpartinn eins og laumufarþega.
Ég rölti milli rekkana og skoðaði vöruúrvalið, Ákvað svo að kaupa fisk til að fá smá hollustu í kroppinn.
JESÚS MINN EINI! Kjöt og fiskiborðið þarna er syndsamlega fallegt! Risa laxasteikur fylltar með parmesan og lax í appelsínuunaði. Stórar steikur og sjúklegir fiskréttir góndu á mig.
Ég slefaði á sex ára strák sem rogaðist um með kornflexpakka.
- Appelsínulax takk! kallaði ég súper excited á afgreiðslugæjann við borðið.
Keypti svo brakandi ferskar gulrætur, papriku og spergilkál með þessum sérlega unaði (ekki kartöflur eða hrísgrjón - það þarf engin böns af kolvetni (orku) fyrir svefnin). Stóð svo í röðinni að kassanum með fullt fangið og spáði í vinalegu umhverfinu. Þá hringir síminn. Ég smeygi hendinni ofan í veskið mitt til að leita að símanum en við það kasta ég einhvernvegin spergilkálinu af fullu afli í bakið á gamalli konu fyrir framan mig og missi síman í gólfið. Ég tek kálið skömmustulega upp og afsaka mig við greyið konuna sem brosir blítt þrátt fyrir barsmíðarnar enda stend ég eldrauð í framan og held á spergilkálinu eins og blómvendi.
Einhvernvegin lifði ég þetta af. Fór heim og henti laxinum inn í ofn og steikti grænmetið upp úr smá olíu, fersku chillí og hvítlaukssalti.
OMG ÞROLLAHEFT GOTT! Og sjúklega hollt! Mæli með að þið testið þennan appelsínulax hjá þeim. Mmm get ekki beðið eftir að prufa parmesan geðveikina. Kannski heilsar gamla konan mér eða kallinn sem afgreiddi mig. Þá er ég kom inn í mafíuna hans Eiríks! Víí!Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- Næsta »
