Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

  • HELGA BRAGA SELUR ALLT!

    17. september 2010

    Helga er snillingur ..var að fá þennan póst frá henni.

    "Tískusýningardaman" Helga Braga ætlar selja skvísuföt í stærðum 40-46 í Kolaportinu bás A21 um helgina. Föt, skór (stærðir 37-39) glingur, töskur, belti, bækur, dvd´s ofl. Endilega kíkið á mig og gerið góð kaup! Ef þið þekkið skvísur, sem eru í þessum stærðum, viljið þið þá vera svo væn að láta þær vita?! Hlakka til að sjá ykkur, bestu kveðjur, Helga Braga.

    Skrifa athugasemd

  • LYKILINN AÐ FALLEGUM LEGGJUM OG GÓÐU KYNLÍFI!

    14. september 2010

    Ég elska olíur. Er að testa þessa núna og ó mæ! Ekki bara dásamlega að raka leggina upp úr henni heldur flytur hún kynlífið upp á annað level.

    Olíur skal samt ekki bera mikið á líkamann nema að húðin sé rök - td í sturtu. Annars getur olían raskað rakastigi húðarinnar og gert hana þurra.

    Öss - næs stöff. Fæst í Signitures of Nature í Smáralind - 100% náttúruleg.

    Skrifa athugasemd

  • STÓRA PIZZUMÁLIÐ!

    14. september 2010

    Ég ákvað að gefa Eldsmiðjunni annan séns eftir stóra pizzumálið sem yfir 7000 manns lásu og því greinilega mikill áhugi á barmaskinku hérlendis. Ég ákvað að panta ekki - heldur mæta bara og svei mér þá - hún var bara drullu góð.

    Þannig að Eldsmiðjan má lifa - bara ekki senda heim!

    Skrifa athugasemd

  • SLEFAÐ ÚR HLÁTRI!

    13. september 2010

    Ég horfði á bresku útgáfuna af Death at a funeral í gær og ætlaði aldrei að geta sofnað vegna hláturskasts yfir þessu atriði. Ó mæ! Mæli með grilluðum appelsínu lax og þessari snilld í kvöld!

    Unaðslegur hláturlax - fyrir 2. BORÐA ÁÐUR EN HORFT ER Á MYND! (það er sko kúkaatriði sem er ekki lystaukandi)

    400-500 gr beinlaus lax. Lagður í þessa marineringu:

    2 msk rifinn appelsínubörkur.

    2 msk hunang

    1 Rautt fræhreinað chillí - sakað

    1/2 rifin appelsína - kjötið.

    Svo er laxinn létt grillaður eða settur inn í ofn í tíu mín í 180 gráður. Með þessu er snilld að vera með léttsteikt grænmeti og henda nokkrum hvetum með á pönnuna, hvítlauk og sesamfræjum! 

    Góðar stundir ! 





    Skrifa athugasemd

  • OF FYNDIÐ!

    9. september 2010

    Skrifa athugasemd