-
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR SKILDI OG GERÐIST HÁTÍSKUTÖFFARI!
8. febrúar 2011
Ég rakst á þessar myndir á facebook og stóðst ekki mátið að forvitnast um þessar fallegu peysur sem Hrafnhildur Björk Baldursdóttir er að handprjóna. Myndirnar tók Sigtryggur Ari einn af uppáhalds ljósmyndurum mínum en fyrirsæturnar heita Magdalena Dubik og Ingibjörg Egilsdóttir.
„Eftir áratuga langa prjónamennsku langaði mig að gera eitthvað meira úr þeim áhuga mínum og leyfa öðrum að njóta með mér. Fyrir einu og hálfu ári síðan kviknaði sú hugmynd að setja upp sölusíðu á netinu og hóf ég undirbúning að því. Ég var í fullu námi á þeim tíma (í stjórnmálafræði) og var við það ákveða að ég vildi skilja eftir 25 ára hjónaband. Ég skildi svo fyrir rétt rúmu ári síðan og fór í kjölfarið í gegnum allan tilfinninga- og ruglpakkann sem slíkum breytingunum fylgir en kláraði námið mitt engu að síður,“ segir Hrafnhildur alsæl með árangurinn og blómstrar í dag.
„Nú þegar ég er öll að komast í gott jafnvægi blasir fullkomlega nýtt líf við mér. Ég er á algjörum krossgötum, sama hvernig á það er litið og ég er búin að ákveða að ég ætla hér eftir að láta drauma mína rætast og einn af þeim draumum er einmitt sá að prófa að selja peysurnar mínar og leyfa öðrum að njóta þess sem ég hef svo gaman að því að gera. Ég hanna mikið af sniðum en nota mjög mikið munstur sem ég finn í blöðum og mér þykja falleg og passa því sem ég er að gera. “
„Ég hef hugsað mér að byrja á að leggja áherslu á barnapeysurnar mínar og vinsælastar þar eru brúnu og svörtu peysurnar með munsturbekkjunum – þessi ljósbrúna með stjörnunum er t.d. rosa vinsæl,“ segir Hrafnhildur sem reynir reglulega að búa til nýjar týpur af peysum því hönnunin sjálf er það skemmtilegasta við þetta allt saman.
„Hvað fullorðinspeysurnar varðar þá prjóna ég þær eftir pöntunum (og reyndar barnapeysurnar líka eigi ég þær ekki á lager) og vinsælust þar er peysan sem Magdalena fyrirsæta er í á profile-myndinni. Næst vinsælust er gráa, munstraða, rennda peysan sem Ingibjörg er í á forsíðumyndinni á albúminu með fullorðinspeysunum. Svarti kjóllinn er líka vinsæll en ég er frekar nýbúin að gera rauða kjólinn og eina aðra peysu og því ekki komin reynsla á þær flíkur,“ segir þessi skemmtilega og fjölhæfa kona sem minnir svo skemmtilega á að ull er og verður alltaf töff!Endilega kíkið á síðu hennar á facebook undir Ullarpeysur – hane made with love by Hrafnhildur Bjork.
Skrifa athugasemd
-
ÍSLENSKUR TVÍFARI KURT RUSSEL!
31. janúar 2011
Einar Örn leikari er ekki lítið líkur Kurt Russel! Og hvað er að frétta af því stelpur að þessi fallegi maður er á lausu? Hann starfar í Herragarðinum og er alltaf stífbónaður í tauinu en er einstaklega silkislakur og ljúfur karakter. Sú stelpa sem krækir í þennan sóma pilt er á grænni grein.
Mynd 1 - Einar.
Mynd 2 -Kurt.Skrifa athugasemd
-
KEYPTI SKÓ FYRIR 73 ÞÚS Á 17 ÞÚS! Smáralind má lifa !
29. janúar 2011
Ég slysaðist inn í Smáralind áðan og gerði alveg brilliant góð kaup. Þetta kennir manni enn og aftur að kíkja bara á útsölulokin.
Keypti hnéhá leðurstígvél á platform á 6000 þús - áður 34.990. - Top Shop.
Ég keypti önnur leðurstígvél með lægri hæl á 6000 þús - áður 29.990. - Top Shop.
Og fyrir dömuna í mér - þá keypti ég skærbleika hæla í Bata sem mig hefur lengi langað í á rétt rúmlega 5000 krónur en þeir voru upprunalega á 17 990! Ahhhh lovely!Skrifa athugasemd
-
ÉG FÆ GÆSAHÚÐ!
29. janúar 2011
Mikið er gaman að sjá pilot þáttinn fæðast!
Fyrir þá sem ekki vita eru Makalaus þættir sem byggðir eru á samnefndri metsölubók minni og fjalla um Lilju Sigurðardóttir sem er einhleyp stúlka í Reykjavík. Hún er nokkrum kílóum of þung (heldur hún) og alltaf nokkrum mínútum of sein. Vinkonur Lilju gera líf hennar bærilegra enda eru þær einstaklega litríkar og skemmtilegar. Eins og margar aðrar stelpur er hún að leita að ástinni sem oft á tíðum getur reynst erfitt. Þekktar persónur úr íslenskum samtíma skjóta upp kollinum ásamt aðstæðum sem margar konur þekkja.Skrifa athugasemd
-
ÞETTA ER LILJA SIGURÐARDÓTTIR - STJARNAN Í MAKALAUS!
27. janúar 2011
Allt um nýjustu stjörnuna á Skjánum í brakandi ferskri Viku sem kom út í dag.
Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- Næsta »
