-
BORÐAÐU SPARIKONFEKTIÐ Á MEÐAN ÞÚ SKÚRAR OG FARÐU Í BATMANBÚNING Í JÓLABOÐ!
4. nóvember 2012
Lífið er dýrmæt gjöf. Okkur ber skylda til þess að njóta þess en festast ekki í pirringi og stanslausu niðurrifi. Afhverju er ekki hreint heima hjá mér? Ég get ekki einu sinni haldið bílnum hreinum. Ég heimsæki mömmu allt of sjaldan. Afhverju er ég ekki búin að kaupa allar jólagjafirnar?? Afhverju er ég ekki í kjörþyngd??? Ég er afleit móðir! Ekkert barn á að þurfa að borða pakkamat!
Þegar maður á síst von á því fær maður áminningu um hversu dýrmætt lífið er. Í því sem heilinn sýpur hveljur og reynir að finna rök og rænu í lífinu og hjartað berst fyrir tilverurétti tilfininga þinna – þá gerist eitthvað. Hjartað slær heilan utanundir og segir þér að hætta að hugsa svona mikið. Varðveita hvern dag og finna haminguna og fegrðina í hverjum degi.
Ég er ekki að tala um ofurhamingjusama facebookstatusa og jákvæðni sem á sér engan tilverurétt í oft helvíti köldu og erfiðu lífi. Nei ég á við að finna fegurð og flipp í annars venjulegum og oft tilbreytingarlausum dögum til að gera þetta allt saman skemmtilegra.
Því langaði mig að biðja ykkur um að njóta ykkar og flippa smá!
Notið sparistellið til að borða morgunmat á myrkum mánudagsmorgni.
Borðaðu sparikonfektið á meðan þú skúrar.
Farðu í jólakjólnum í bíó.
Taktu upp video að þér að rappa og sendu vinkonu þinni.
Mátaðu hallærislega hatta og taktu myndir
Farðu með fjölskylduna í piknik - drekkið heitt kakó og tínið köngla.
Hringdu í foreldra þína og bjóddu þeim í mat og panntaðu svo bara pizzu! Þeim er sama – þau vilja bara sjá þig!
Sendu gjafir eða jólakort í mars til einhvers sem þér finnst vænt um.
Búðu til konfekt í maí.
Farðu í fjölskylduboð í batmanbúning.
Hlustaðu á danstónlist og taktu sporin á meðan þú klæðir þig á þriðjudagsmorgni.
Bjóddu vinum þínum í mat þó það sé óskúrað og kannski bara frekar subbulegt!
Sendu ástinni þinni fallegan tölvupóst eða blóm – afþví bara!
Farðu í sumarkjól í vinnuna í hríð!
Fáðu þér rauðvínsglas og hringdu í vin þó að óhreinatauið sé farið að skríða sjálft upp úr körfunni .
Hlustaðu á jólalög í byrjun október og bakaðu smákökur.
Eyddu heilum degi í að labba um miðborgina og þykjast vera í útlöndum!
Taktu þér frídag til að gera "ekki neitt"
Gerðu það sem þig langar til – láttu þér þykja vænt um augnablikið og fólkið þitt. Vertu þakklát/ur fyrir hverja stund. Ekki gleyma þér í daglegu amstri. Þú viltl ekki þurfa að sjá eftir því síðar.
Byrjaðu fallegt flipplíf í dag!
Mynd: ég og vinkona mín að máta hatta - og já þetta der er með föstum sólgleraugum við! Snilld!
Skrifa athugasemd
-
FÆRÐ ÞÚ ALDREI BLÓM?
10. október 2012
Og átt fullt af tómum vösum inn í skáp? Þá er snilldarráð að nota þá undir ávexti og hressa þannig upp á eldhúsið með fallegum litum. Sumt grænmeti eins og tómata á alls ekki að geyma inn í ískáp - þeir tapa bragðinu og missa sætleika!
Svo er ekkert að því að kaupa sér sjálf blóm! Ég geri það oft - það er mikil snilld að fara á fimmtudögum í Blómaval þá eru þeir með mjög góð tilboð. Og nei þetta er ekki skot á Kalla - hann er dugelgur að gefa mér blóm! :)
Skrifa athugasemd
-
SJÚKLEGT GARÐPARTÍ - MYNDIR!
26. ágúst 2012
Litríkasta vinkona mín gifti sig í sumar. Þar sem eiginmaður hennar er af erlendu bergi brotinn reyndum við að heimta að hún tæki upp brúðarmeyjarsiðinn - þeas og notaðist við fullorðnar konur eins og til dæmis okkur! Hún var ekki alveg til í það en fann upp þá snilld að bjóða til brúðarmeyjar garðveislu stuttu fyrir brúðkaup þar sem vinkonurnar hittust og lökkuðu á sér neglurnar til að við yrðum jú allar hinar glæsilegustu í veislunni. Og já það verður ekki af henni Svövu minni skafið að hún kann að halda garðveislur! Dásamlegur dagur ! Freyðivín, súkkulaði, samlokur, naglalakk og hlátursköst.
Skrifa athugasemd
-
PIZZAVEISLA MEÐ MUN FÆRRI HITAEINIGNUM ! UUU JÁ TAKK!
23. ágúst 2012
Pizzu eru góðar - því miður. Mikið brauð og feitur ostur er ekki málið fyrir fólk sem hefur ekki í hyggju að hlaða á sig aukakílóum.Upp á síðkastið hef ég reynt að svala pizza þorstanum á hollari máta og verð að segja að þessi snilld er dásamlega góð, létt í maga og ekkert samviskubit eða uppþembdur brauðmagi í kjölfarið! Tilvalið til að mata konur með!Hveitikímspizza - fyrir 2120 gr hveitikím, 10 msk vatn, 2 saxaðir sólþurrkaðirtómatar, 1/2 tsk Maldon salt, 1 tsk pizza krydd. Öllu hrært saman í kúlu. Bökunarpappír settur undir og yfir kúluna og þungt skurðarbretti sett ofan á til að ná þunnbotna pizzu. Þrýst vel (fékk vísinn að þessari uppskrift hér - takk Ásta)Svo baka ég botninn í 5 mín áður en ég set gúmmelaðið ofan á. Td:Sykurlaus pizzasósaferskur hvítlaukur og chillispergilkálkjúklingaskinkasólþurrkaðir tómatarpaprikaSpínatlétt ostur - Sveitabiti 17% bestur og kannski nokkrir teningar léttfeta en passaðu að hér eru hitaeiningarnar fljótar að raðast inn!Einnig er hægt að nota - philadelphi light ost, ananas, rifinn kjúkling, lauk ..bara það sem þér dettur í hug! Spari er æði að setja smá sólþurrkaðantómatarjómaost! - vá langt orð!Æði að setja 1 tsk af leyniolíunni góðu (fullt af hvítlauk, rauðum chilli, olívuolíu og olíunni úr fetaost krukkunnNjótið vel - ps ef þú nennir ekki að baka er snilld að nota tortillaköku sem botn og nota salsasósu!Skrifa athugasemd
-
KARLAR SEM MATA KONUR!
22. ágúst 2012
Ég rakst á hrikalega fyndna síðu sem ég verð að deila með ykkur ...
Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- Næsta »
