Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

  • HÖSSL Á KAFFIHÚSI!

    29. mars 2009

    Sit á kaffihúsinu í Mál og menningu. Maðurinn fyrir framan mig talar í gríð og erg við tölvuna sína.
    Færði mig aðeins nær og sé að hann er að með vídjó samtal í gangi við svarta konu og talar á ensku.
    Internetið er frábært.
    Ég held að þau séu ástfangin. 
    Svona fara þau á kaffihús saman. Hún út í heimi og hann á Máli og menningu.
    Það er menning! 

    3 athugasemdir

  • Á STEFNUMÓTI MEÐ AUÐKÝFING!

    27. mars 2009

    Ég var einu sinni að deita auðkýfing.
    Hann átti dýra bíla og enn dýrari rauðvín.
    Hárið á honum glansaði og tennurnar líka.
    Efast um að hann eigi eins vel straujaðan 5000 kall og Lalli Jones, þaes ef hann á 5000 kall!
    Eitthvað hefur goggunarröðin breyst.
    Ætli Lalli sé á lausu ?

    Skrifa athugasemd

  • KYNÞOKKAFULLUR KOKKUR .... Á LAUSU!

    27. mars 2009


    Árni Björn félagi minn er mikið hönk og hugvitsmaður.
    Drengurinn gaf út í gær fyrsta þáttinn af Svangur en það eru net þættir um eldamennsku sem munu án efa slá í gegn.
    Auðvelt, fljótlegt og ekkert snobb. Alvöru íslenskur matur.
    Árni gæti hugsanlega með þessu framtaki sínu gert íslenska karlmenn sambúðarhæfa.
    Enda er ég ákaflega ánægð með hann Árna minn.
    Svo er hann svo myndarlegur.
    Algjört augnakonfekt.
    Svo skemmir ekki fyrir að hann er 33 ára! úff næs árgerð!

    Endilega kíkið á þættina hans inn á www.svangur.is
     , þó ekki sé nema til að bera gripinn augum.


    Burt séð frá því þá lumar hann á grunsamlega góðum ráðum, til dæmis hverning eigi að gera uppstúf!

    Skrifa athugasemd

  • KONUR YFIR FERTUGU!

    26. mars 2009

    Andy Rooney í 60 mínútum lét gamminn geysa um konur á þessum ágæta aldri:

    Eftir því sem ég eldist, kann ég betur að meta konur yfir fertugu og hér eru nokkrar
    ástæður fyrir því:

    Kona yfir fertugu mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu

    að hugsa?"

    Henni gæti ekki verið meira sama.
     

    GERUM VIÐ YNGRI KONURNAR ÞAÐ??? EFAST UM AÐ ANDY HAFI SOFIÐ NÝLEGA HJÁ UNGRI KONU OG GETI TALAÐ AF EIGIN REYNSLU!!!

    Ef kona yfir fertugu vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir

    því.
    Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn.

    IF YOU ONLY KNEW!!

    Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við

    þig í óperunni eða á fínum veitingastað. Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að
    þær komist upp með það.

    HÆGT AÐ VERA VIRÐULEG EN SKEMMTILEG. MYNDI SNÚA UPP Á ÓÆÐRI KÚLURNAR UNDIR BORÐINU OG SJÁ HVER ÖSKRAR ÞÁ!

    Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að

    vera ekki metin að verðleikum.

    ÚFFF HELDURU AÐ ÞEGAR UNGAR KONUR HRÓSI ÞÉR, AÐ ÞÆR MEINI ÞAÐ ??

    Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti
    þína fyrir þeim.

    JÁ EN EKKI HVAÐ!

    Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40

    langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.

    ÞAÐ ER NÚ EINS MISJAFNT OG ÞÆR ERU MARGAR!

    Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért

    asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.


    Já, við dásömum konur yfir fertugu af mörgum ástæðum.

    Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel

    greinda konu yfir fertugu, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára
    gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar.

    Já sæll Andy minn! Konur um fertugt eru yndislegar, en myndi ekki ganga svo langt að segja að yngri konur séu eitthvað verri! Þær eru bara yngri! Það hefur bæði kosti og galla. Hvet Andy til að opna augun og stíga út af MacDonalds og kynnast vel gefini ungri konu. Þær eru til!

    ps: má maður með þessar augabrúnir tala um kynþokka!

    6 athugasemdir

  • LADDI MEÐ LOSTAKÚST!

    26. mars 2009

    Laddi bauð upp á dýrari týpuna í gamla daga.
    Flottur með mottu!
    Mörg konan hefði ekki sparkað honum fram úr með slíkan lostakúst!

    mynd: Valþór óla

    Skrifa athugasemd