Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

  • LOGI EKKI LEIÐINLEGUR!

    16. apríl 2009

    Logi er greinilega ekki leiðilegur ....

    þetta er æðislegt

    ef þú þarft að hlæja þarftu að hlæja...

    fæ aldrei leið á þessu



     http://www.youtube.com/watch?v=egIPNUI_K4o


     

    1 athugasemdir

  • KONUR SEM ELSKA "BAD BOYS"!

    16. apríl 2009

    Ég var að hitta æðislegan strák.
    Hann er vel menntaður, í góðu starfi, barnlaus, búinn að koma sér vel fyrir, metnaðarfullur, traustur, myndarlegur, í góðu formi, fyndinn og ljúfur!
    og.... mjög skotinn í mér!

    Þetta bara gekk alls ekki!

    Hvað er að konum? allavega mér..
    Hvað er það sem gerir okkur svona æstar í bad boys?
    Gaura sem sýna okkur lítinn áhuga, eru sjálfselskir, eiga 12 börn með 15 konum og eru stór skuldugir?

    Já maður spyr sig. Þetta valdi ég fram yfir draumaprinsinn í straujuðu skyrtunni á bónaða jeppanum.

    Ég hefði líklega fallið fyrir honum ef hann hefði ekki svarað öllum sms-unum, verið svona duglegur að hringja og senda skilaboð.
    Hvaða hálfvitaskapur er þetta eiginlega?
    Að verða sjúk í einhverja aula?

    Ef hann hefði ekki verið svona "auðveldur" hefði ég líklega kolfallið fyrir honum. Það er eitthvað við þennan eltingarleik. Allavega fyrstu vikurnar.
    Þá vill ég ekki vita 100% hvar ég hef manninn.
    Halda spennunni.
    Barnalegt ég veit.

    Það er hægt að halda kúlinu en samt vera skotin í hinum aðilanum.
    Bara ekki vera of available!

    3 athugasemdir

  • DAVÍÐ ODDSON Í DULAGERVI!

    15. apríl 2009

    Við nánari athugun hefur komið í ljós að keppandinn sem sló svo rækilega í gegn í Brittain´s got talent um daginn (http://www.youtube.com/watch?v=nox2DRCAKxk )
    er okkar eigin Davíð Oddson!

    takk fyrir að vekja athygli mína á þessu Doddi.

    Hægt er kjósa Davíð, eða Susan eins og hann kallar sig núna inn á:

    www.susanforbrittainsnexttopmodelorbanker.com


    ps: sá sem finnur fimm villur fær verðlaun!



    Skrifa athugasemd

  • DULBÚIN DROTTNING!

    15. apríl 2009

    Ekki dæma of fljótt, gefðu fólki séns.

    http://www.youtube.com/watch?v=nox2DRCAKxk

    Eitt orð: STÓRKOSTLEGT!

    1 athugasemdir

  • FULLT RAUÐVÍNSGLAS!

    15. apríl 2009

    Fór út að borða með bestu vinkonum mínum í gær.
    Fórum á Santa Maria, Mexíkóskan stað á Laugavegi.

    Tvær þeirra eru óléttar þannig að við Íris drukkum margaríturnar þeirra.
    Sjaldan að maður sér margarítu á 600 kall!
    Aðalrétt á 990 kall og wait for it ...
    rauðvínsglas á 600 kall! Hef ekki keypt rauðvínsglas á undir 800 kall í mörg ár.
    Það merkilegasta var þó að glasið var fullt! Ekki þetta fashionable hálf tóma glas sem er serverað um allan bæ.

    Maturinn var kannski ekki fabjúlús en félagskapurinn var það.
    Hlógum mikið og við það varð maturinn mjög góður.
    Annars góður.
    Frábær þjónusta, ekki 12 ára svöng afgreiðsludama sem vildi mun frekar vera heima að horfa á Friends en að aðstoða okkur!

    Over all, good shitt köld!

    1 athugasemdir