Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

  • SILVÍA NÓTT Á SÓDÓMA!

    24. apríl 2009

    Ágústa Eva og slatti tónlistarmanna kemur fram á tónleikum til styrktar málefnum flóttamanna á Íslandi í kvöld.

    Gæti verið stuð!

    Fram koma á Sódóma í kvöld:


    Megasukk&Ágústa Eva
    Tóta&Djazzbandið
    Þrjár Raddir og Beatur
    AMFJ
    Skorpulifur
    Bad Carburator
    Vicky
    Nour Al-din og

    1000 kall inn

    2 athugasemdir

  • AFHVERJU ERU POST IT MIÐAR GULIR?

    24. apríl 2009

    Já maður spyr sig!

    Skrifa athugasemd

  • HÖSSLAÐ MEÐ HREFNUKJÖTI!

    24. apríl 2009

    Ég kíkti í heimsókn til vinar míns um daginn.
    Ætluðum að horfa á vídjó.
    Vinurinn vildi endilega bjóða mér upp á eitthvað með myndinni:

    - viltu kók?

    - nei takk.

    -Langar þig í snakk eða eitthva?

    -nei takk, ég hef það fínt, ýttu bara á play.

    Þá færði þessi dásamlegi vinu minn út kvígarnar...

    - en Hrefnukjöt? hann horfði á mig skælbrosandi enda hafði hann boðið mér heiminn á silfurfati.

    - Nei takk, ýttu á play elskan.


    Íslenskir karlmenn eru snillingar!

    1 athugasemdir

  • UNAÐSLEG ÝSA!

    24. apríl 2009

    á eftir að prufa þessa uppskrift en vinkona sver að kallinn hennar verði einstaklega ástleitin af þessari uppskrift ...

    600 gr ýsa
    100 gr blaðlaukur
    1 stk rauð paprika
    200 gr rækjur
    180 gr sýrður rjómi
    200 gr kotasæla með hvítlauk
    2 dl söxuð basilíka
    gratínostur
    salt og pipar

    Skera fiskinn í bita og raða í smurt eldfast mót, bæta rækjum, fíntskornum blaðlauk og papriku yfir. Krydda með salti og pipar. Hræra saman sýrða rjómanum, kotasælunni og basilíkunni. Hella yfir fiskinn og strá svo gratínosti yfir. Henda í ofninn á 180 gráður í ca.20 mín


    Verði ykkur að góðu ... víííí

    1 athugasemdir

  • VEISTU EKKI HVAÐ ÞÚ ÁTT AÐ KJÓSA?

    23. apríl 2009

    1 athugasemdir