-
LESBLINDI BLAÐAMAÐURINN!
6. júní 2009
Sé að margir hafa áhyggjur af stafsetningu minni.Þakka ykkur fyrir auðsýnda samúð en málið er sem sé að ég er lesblind.
Ákvað fyrir löngu að það myndi ekki stoppa mig og var auðvitað ekki að auglýsa það þegar ég sótti um sem blaðamaður.
Mæli með að þið látið aldrei neinn segja ykkur hvað þið getið gert!
The sky is the limit!
Tala reyndar líka portúgölsku, kannski betra að ég skrifi á henni?
en í guðs bænum ekki láta það stoppa ykkur í að kommenta svo skemmtilega eins og þið gerið!
later
Gossip Girl!7 athugasemdir
-
HÖSSL Í JARÐAFÖR!
5. júní 2009
Ég var að þjóna í erfðardrykkju pabba vinkonu minnar í dag.Stend kófsveitt inn í eldhúsi að raða rjómapönnsum á disk þegar inn kemur þessi hávaxni fallegi karlmaður.
Ég þorði varla að líta upp.
Íris vinkona fékk hláturskast þegar hún sá hvað ég roðnaði.
Hann kynnir sig sem kirkjuvörðinn.
Ég muldra eitthvað og raða pönsunum enn ákafar á diskinn og spái í því hvort það sé ekki ólöglegt að vera með svona kynþokkafullan kirkjuvörð!
Spurning hvort ég skrái mig sem meðhjálpara?
Hann var útitekinn í svörtum jakkafötum með strákslegt andlit og blá augu.
Svo hvarf hann.
Íris gat ekki á sér setið þegar hún sá hvað ég var vandræðaleg og kallaði á vinkonu okkar sem skellihló og hvessti svo á mig augun og sagði:
Tobba ertu að hössla í jarðaförinni hans pabba??13 athugasemdir
-
55 KÚPIKA STEFNUMÓT - VÚMMMM!
4. júní 2009
Þetta er sko alger snilld!
Ásgeir hjá Lundavespum (á Reykjarvíkurhöfn) var að segja mér að fólk væri mikið að leigja vespur á deit.
Rúntaði svo skellihlæjandi um bæinn.
Eini gallinn er að þú þarft próf á stærri týpuna af vespum (þá má hafa einn aftan á) en bara bílpróf á 50cc vespurnar.
Þá er bara að leigja tvö stykki og öss ...stelpur svo bara gefa í...
Ekki dýr rómantík, hálfur dagur kostar 4900 (4 klst) en klukkutími 2800 krónur.
Svo er bara að rúnta um bæinn og skoða sig um.
Taka kaffi stopp...
og kyssu stopp...
alveg málið í sumar!
sjáumst á rúntinum!2 athugasemdir
-
FÁRÁNLEG Í RÆKTINNI ... FYRIR FRAMAN ALLA FOLANA!
3. júní 2009
Fór í World Class í gær til að koma í veg fyrir "muffin top" (hliðarspik) og fá útrás.Hljóp eins og vindurinn með fótboltalið að þjálfa byssurnar allt í kringum mig.
Næsss!
Tók svo nokkrar bakfettur á skáhallandi bekk.
Not so næs!
Allt í einu festist eitthvað í bakinu á mér og mig svimaði. Stóð upp af bekknum og fann að ég gat varla hreyft mig. Náði einhvernvegin, últra hægt og skringilega að koma mér út.
Studdi mig við allt sem ég sá og horfði skömmustulega niður að farast úr sársauka.
Allir horfðu á mig!
týpískt!
and so not cool!
ligg núna heima á klakapoka eins og gömul kona sem hefur pissað á sig!
Lovely!2 athugasemdir
-
Á SÉNS MEÐ FÓTBOLTAMANNI!
2. júní 2009
Það kom til mín myndarlegur maður á sveitaballi um daginn.
Kannaðist eitthvað við hann.
Hann sagðist vera fótboltamaður.
Ég er ekkert inn í því, brosti bara.
„Okei.“
Hann var eitthvað hálfóánægður að ég skyldi ekki sýna starfi hans meiri áhuga.
„Ég er sko efnilegasti fótboltaþjálfari á landinu!“
Ég brosti aftur.
„Okei.“
Hann horfi fast á mig.
„Gogglaðu mig bara.“
Þarna brosti ég ekki heldur fékk hláturskast.
Rétt náði að koma i veg fyrir að ég pissaði á mig, bókstaflega, úr hlátri.
„Og hvar ertu að þjálfa?“ spurði ég.
Hann brosti mjög blítt.
Kunni að meta áhugann.
„Þorlákshöfn.“
....ég pissaði á mig.
1 athugasemdir
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- Næsta »
