-
ÍSLENSKT PLUS-SIZE MODEL Í VOGUE!
23. febrúar 2012
Ítalska Vogue er með sér undirsíðu sem kallast Vogu Curvy þar sem plus size módel og tíska fær að blómstra. Þar rakst ég á viðtal við íslenskt plus-size módel sem heitir Inga Eiríksdóttir. Falleg, fersk og hressandi stelpa - hér er að finna video viðtal við hana þar sem hún spilar meðal annars á harmonikku. Í bakgrunni hljómar íslensk tónlist og Inga ræðir um bransann, jóga og lífið!
Hún hefur áður tjáð sig um plus size módelstarfið og pressuna sem fylgir því að vera módel. Það viðtal var á The Daily Mail og því nokkuð ljóst að hér er ung kona með bein í nefinu á uppleið! Áfram Inga!
Ekki það að ég skilji samt hvar þetta plús á þessari flottu konu er ? Hún er bara grönn og spengileg!
Hér gefur á að líta dásamlegan myndaþátt með henni úr Vogue Russia.

Myndir: Vogue
Skrifa athugasemd
-
FYRIR STELPUR SEM VILJA TAKA ÞÁTT Í MOTTU MARS!
21. febrúar 2012
Það er alls ekki æskilegt fyrir alla að safna mottu - til dæmis er ég ekki viss um að minn maður væri að detta mikið í sleik heima fyrir ef hann myndi safna mottu en auðvitað er mikilvægt að styrkja þetta góða málefni sem Mottu Mars stendur fyrir.
Því tek ég fagnandi hendi þessari fallegu hönnun sem Ása Þórdís Ásgeirsdóttir nemi í hönnun við FG hannaði til styrktar Mottu Mars, þeas Krabbameinsfélagi Íslands.
"Ég hannaði þetta eftir að hafa verið með þessa hugmynd í ca. 2 ár og ákvaði að framkvæma hana í þessum frumkvöðlaáfanga í skólanum ," segir Ása Þórdís en hún ásamt þremur samnemendum sínum situr nú sveitt við að framleiða yfirvara slaufurnar fögru.
"Slaufan kostar 2000 kr, og ætlum að láta 500 kr frá hverji slaufu renna til Krabbameinsfélagsins. Það er ekki alveg komið í ljóst hvar þetta fer í sölu, en það er hægt að taka pantanir í e-mail hjá okkur, arcos.ehf@gmail.com en annars verðum við líka með bás í Smáralindinni helgina 9 mars, þar sem framhaldskólar í þessum áfanga er að keppa sem frumkvöðlar," segir Ása brosandi.
Læk á Ásu og félaga! Þetta er mun smekklegra en lostakústar á öllum yfirvörum bæjarinns. Sumir hreinlega bera það ekki þó ég fagni fjölbreytileikanum þá má Tom Selleck eiga þetta lúkk mín vegna.
Skrifa athugasemd
-
AFHVERJU ERU ÞESSAR KONUR MEÐ FORRÆÐI YFIR BÖRNUM SÍNUM?
17. febrúar 2012
Guð forði okkur frá barnafegurðarsamkeppnum! Alana er 6 ára fegurðardrottning í Bandaríkjunum sem sló í gegn í sjónvarpsþættinum Toddlers and Tiaras og með því að koma koffín orkudrykk á markaðinn - HÚN ER 6 ÁRA!
Skrifa athugasemd
-
STAÐURINN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM; SUSHISAMBA!
17. febrúar 2012
Ég skellti mér á Sushisamba fyrir stuttu enda varla sú vinkona sem hefur minnst á þennan stað óslefandi. Staðurinn er hannaður af Leif Welding sem sá um að innrétta meðal annars Fiskfélagið og Grillmarkaðinn og er einstaklega vel lukkaður þó mér finnist glymja þó nokkuð inn á staðnum ef mikið er af fólki - sem er væntanlega óyfirstíganlegt.
Þjónustan var mjög góð og skemmtilegar nýjungar á matseðlinum á borð við vatnsmelónufranskar. Mér fannst þó ansi margt á matseðlinum vera djúpsteikt og með miklum sósum en þeir eru með sérstaka síðu í matseðlinum sem kallast djúsí sushi og er því djúpsteikt með miklum sósum. Mér fannst sósudrama vera of mikið og skemma fyrir ferskleikanum. T.d. var kókosfroða á einni rúllunni sem var góð en hefði mátt vera mun minni. Ég pantaði eina rúllu sem var ekki af djúsíseðlinum (Regnbogarúlla) og því laus við bras og sósudrama. Mér fannst hún best.
Réttirnir eru vel útilátnir og dugar einn réttur per manneskju ef svengdin er ekki dýrsleg. Við vorum þrjú saman og pöntuðum fjóra rétti og náðum ekki að klára.
Maturinn er á sanngjörnu verði - hver rúlla sem er milli 8-10 bitar er á 1690-2990 - en meðal verð er um 2600 krónur. Staðurinn býður auk þess upp á aðra rétti en sushi.
Vínið finnst mér hinsvegar of dýrt en glas af léttvíni hússins er á 1190 krónur. En í ljós hækkana á áfengi um áramótin er þetta líklega bara eðlilegt verð á Íslandi. Guð blessi happy hour!
Heildarálit mitt er að þetta er fráær staður en þú þarft að vanda valið ef þú ert ekki mikil sósulover eða ert að passa línurnar.Frábært að fara á stefnumót og deila 2-3 sushi diskum. Þá er séns á að smakka einn óhollann rétt saman !
Skrifa athugasemd
-
HEFUR ÞÚ EINHVERTÍMAN SÉÐ AÐRAR EINS NEGLUR! HRESSANDI!
14. febrúar 2012
Anna Gréta heitir hress og sniðug stelpa sem ég rakst á, á facebook. Þvílíkt hugmyndarflug sem þessi kona hefur en hún er snillingur í að búa til litríkar og skemmtilega neglur eins og sést hér.
"Ég fæ hugmyndirnar á google og youtube og vinn mikið í því að blanda saman einhverju skemmtilegu og litríku," segir Anna Gréta sem hefur einnig farið á námskeið í naglaskreytingum. Anna er með kennsluréttindi í naglaásetningi og hugmyndarflug sem gerir hana líklega að litríkasta kennara landsins. Neglur með ís, smarties, ávöxtum nú eða í skyrtu!
Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- Næsta »
