Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

  • RIDGE ÚR GLÆSTUM VONUM MEÐ TÓNLISTARMYNDBAND OG STEFNUMÓTAÞJÓNUSTU!

    10. nóvember 2009

    Horfið á til enda. PRICELESS!

    http://www.youtube.com/watch?v=5PSBp2zC6CY



    Stelpur reynið að renna ekki til í sætinu!

    Skrifa athugasemd

  • HANN ER EKKI SKOTINN Í MÉR!!!

    9. nóvember 2009

    Ég rakti sorgarsögu mína af samskiptum við vissan karlmann í hádeginu.
    Fyrir svörum sat falleg ólétt vinkona mín sem er ekki þekkt fyrir að velta svörum sínum upp úr flórsykri.

    - Hefur þú lesið eða séð bíómyndina: he is just not that in to you? spurði vinkonan.

    - Já svara ég enda nokkuð raunsæ í karlamálum. Gat ekki séð að ég væri sú týpa.

    - Einmitt segir vinkonan.

    Ha? Er ég að réttlæta það fyrir mér að hann sé hrifinn af mér þegar hann er það ekki. Ég fór snögglega yfir stöðuna. Hann er bara ógeðslega upptekinn og frekar mikill einfari. En alltaf voða glaður að sjá mig. Og hefur samband af fyrrabragði .. stundum.

    Hmm hver hefur oftar samband? Hver skipulagði síðustu hittinga? Hver er að eltast við hvern?

    FOKK!

    HE IS JUST NOT THAT IN TO ME!!

    Ég svaraði vinkonunni lágt:

    - Já þú meinar.

    - Jebb, svaraði hún.

    Það tók hana tvær mínútur að lækna mig af því sem ég er búin að velta mér upp úr í margar vikur. Hreinskilni er það besta sem þú gefur vinum þín, þegar það á við.

    Ég blikkaði vinkonu mín og gekk léttari sporum frá þessum samræðum en að þeim. Þá er það afgreitt!

    Skrifa athugasemd

  • GUÐDÓMLEGA GOTT !

    9. nóvember 2009

    Fékk þessa uppskrift hjá heilsudrottningunni Sigrúnu sem er með www.cafesigrun.is

    Mega góð, mæli með að frysta hana og borða hana svo semí frosna. Það er sjúkt!!!

    frá Sigrúnu:


    Þetta er bara ansi sniðug uppskrift. Málið er að þessi kaka er ekkert ósvipuð franskri, dökkri súkkulaðiköku svona ef miðað er við áferðina en það er ekki neitt súkkulaði, ekkert smjör, ekkert hveiti, enginn sykur og enginn rjómi í kökunni! Aðalinnihaldið er hnetur og carob. Kremið er svo búið til úr tahini (sesammauki) carob og byggmaltsírópi (enska: barleymalt syrup) eða hlynsírópi fyrir þá sem hafa glúteinóþol. Kakan hentar því mjög vel fyrir þá sem eru jurtaætur (enska: vegan) og fyrir þá sem vilja ekki hveiti eða sykur. Kakan er reyndar alls ekki hitaeiningasnauð, þvert á móti hún er þvílík kaloríubomba en aftur á móti kemur að hún er ansi vítamínrík, próteinrík, kalkrík og svo er mikið af hollri fitu úr öllum hnetunum og möndlunum. Gott er að bera kökuna fram með soyarjóma (eða venjulegum rjóma fyrir þá sem það vilja). Gott er að hafa í huga að ekki þarf að baka þessa köku og hún tekur ekki langan tíma í undirbúning þar sem hráefnið fer mest allt í matvinnsluvél!!
     
    Dökk súkkulaðikaka (án súkkulaðis)
    Gerir 1 köku


    Botninn:



    • 1 bolli möndlur (ég miða við 250 ml bolla)

    • 1,5 bolli cashewhnetur

    • 1,5 bolli döðlur. Láta liggja í sjóðandi heitu vatni í um 15 mínútur. Ekki henda vatninu eftir á, þið þurfið að nota smávegis af vatninu í kremið.

    • 1,5 kúfuð msk carob duft (eða gott kakóduft fyrir þá sem það vilja). Fæst í Yggdrasli.

    • 1/4 tsk heilsusalt (t.d. Herbamare)

    • 1 banani, vel þroskaður

      Aðferð:

    • Blandið fyrst hneturnar og möndlurnar vel í matvinnsluvél, bætið svo salti og carobi saman við. Geymið í skál.

    • Blandið saman döðlur og banana þangað til vel maukað.

    • Blandið saman við innihaldið í skálinni (carobið, saltið og hneturnar).

    • Kælið í um klukkutíma.

    • Hellið kökunni á þann disk eða bakka sem bera á kökuna fram á og mótið kökuna með t.d. sleikju. Það má hafa hana ferkantaða, kringlótta (hjartalaga þess vegna!) en aðalatriðið er að hún verði ekki of þykk (fínt að hafa hana svona 2 cm. á hæð).

      Kremið:

    • Nokkrar matskeiðar af vatni (af döðlunum)

    • 1/2 bolli tahini (sesammauk), hellið olíunni af eins mikið og hægt er

    • 4 msk byggmaltsíróp (enska: Barley malt syrup). Athugið að þeir sem eru með glúteinóþol ættu að nota agavesíróp eða hreint hlynsíróp, ekki byggmaltsíróp

    • 1,5 msk carob duft (eða gott kakóduft fyrir þá sem það vilja)

    • 1 banani, vel þroskaður

    • Þetta er svolítið meira en þarf af kreminu en þið getið fryst afganginn og borðað sem ís eða notað í drykk (smoothie).

      Aðferð:

    • Setjið innihaldið í kremið í matvinnsluvél og blandið vel. Setjið meira af döðluvatninu ef þarf.

    • Setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í um klukkutíma.

    • Smyrjið kreminu yfir kökuna og utan á hana og skreytið með ferskum ávöxtum (t.d. vel þroskuðum bönunum og jarðaberjum), kókos eða jafnvel þurristuðum, söxuðum hnetum eða möndlum.

    • Tvöfalda má uppskriftina til að fá þykkari köku. Það er þó gott að hafa í huga að kakan er ansi saðsöm og mikil þannig að mér finnst henta vel að hafa hana í þynnri kantinum.

    Skrifa athugasemd

  • FLENSUBANI!

    8. nóvember 2009


    Rakst á dáldið töff bók sem er ný komin út og heitir Súpa og Stóll.
    Stelpurnar á bak við bókina keyptu 30 plein stóla í Ikea og fengu svo 30 manns héðan og þaðan til að skreyta þá. Því næst fengu þær kokkinn Snorra Birgir Snorrason til að búa til súpu í stíl við hvern stól.




    Sumar uppskriftirnar eru ansi frumleg en ég er búin að elda kjúklinganúðlusúpuna sem er  full af engifer, hvítlauk og chilli og er algjört æði! Mjög holl og alger flensubani! 

    mæli með að bæta fersku kóríander í hana í lokin!

    Mmmm lovely!

    Er að uppgötva asíska matargerð. Þvílík snilld!


    Skrifa athugasemd

  • MEÐ OFNÆMI FYRIR SÆÐI EIGINMANNSINS!

    5. nóvember 2009

    Brúðhjónin Mike og Julie voru búin að vera saman í tvö ár en stunduðu í fyrsta skipti óvarið kynlíf á brúðkaupsnóttina.

    Julie engdist fljótlega um að kvölum og kom í ljós seinna meir að hún var með ofnæmi fyrir sæði eiginmannsins! Fékk blöðrur og stingandi sársauka sem stundum varði vikum saman.

    SÆÆLLLLL!

    Eins gott að prufa áður en maður kaupir!

    Sjá nánar um þetta rugl hér ( http://www.dailymail.co.uk/news/worldnews/article-1225255/Woman-allergic-husbands-sperm.html )

    Skrifa athugasemd