Gleðilegan kosningadag elsku Íslendingar. Ég veit ekki með ykkur en ég átti mjög erfitt með að gera upp hug minn og gerði það í raun ekki fyrr en ég stóð inni í klefanum í Ráðhúsinu og fann hjartað hamast við að horfa á yfirlætislausan pappírssnepilinn í höndum mér.
En ég kaus - og ég kaus annað en ég átti von á og er sátt við það.
Eftir kosningarnar settist ég í hádegismat með nokkrum vinum og við fórum að velta fyrir okkur kosningavökunni og hvar væri best að fylgjast með framtíð Íslands. Í kjölfarið ákváðum við að kynna okkur kosningarvöku allar frambjóðenda.
Herdís er á Sólon kl 21:00.
Þóra er í Hafnarhúsinu kl. 21:30.
Ari Trausti er á Borginni kl 22:00.
Ekki fann ég neitt um Andreu - óska eftir upplýsingum um hvort hún er með kosningavöku.
Hannes kaus í Skagafirði og verður því væntanlega með sína kosningavöku þar. Áhugaverðast þótti mér þó svarið sem ég fékk á kosningaskrifstofu Ólafs og Dorritar (hann er sumsé ekki einn í framboði heldur er þetta samboð).
Svarið var: Nei við erum ekki með kosningavöku. Það þarf að draga úr kostnaði og svo er það svo ósanngjarnt gagnvart fólkinu út á landi. Við sjáum þetta bara fyrir okkur eins og Evrovision - fólk bara hittist heima og heldur partý!
Einmitt - og er þá Ólafur okkar framlag til Evrovision?
