Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

SNARRÆÐI FLUGFREYJU BJARGAÐI VESKINU MÍNU Í GÆRKVÖLDI!

31. maí 2012 › 09:42

Ég fór í partý hjá Iceland Express í gær þar sem var dúndur stuð. Svo óheppilega vildi til að það helltist rauðvín yfir nýja ljósa tauveskið mitt. Ég sá fram á að þurfa að henda því enda ekki í aðstöðu til að fara að þvo veski þarna í miðju partýi. 


En aldrei deyr flugfreyja ráðalaus. Í því kom aðsvífandi appelsínugulur bjargvættur og skvetti hvítvíni yfir veskið mitt. Ég ætlaði nú að segja þessari ágætu konu að sulla bara á sitt eigið veski en hætti snarlega við þegar rauðu blettirnir hurfu! 


"Þetta trix virkar alltaf" sagði hún brosandi og lýsti því hvernig ófáir farþegar hafa hellt rauvíni yfir ljós sumarfötin um borð í flugvél við lítin fögnuð.


Alger snilld!


 


Mynd: Veskið óflekkað eftir björgun!



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.