ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

FYRIR STELPUR SEM VILJA TAKA ÞÁTT Í MOTTU MARS!

11:14 › 21. febrúar 2012

Það er alls ekki æskilegt fyrir alla að safna mottu - til dæmis er ég ekki viss um að minn maður væri að detta mikið í sleik heima fyrir ef hann myndi safna mottu en auðvitað er mikilvægt að styrkja þetta góða málefni sem Mottu Mars stendur fyrir.


Því tek ég fagnandi hendi þessari fallegu hönnun sem Ása Þórdís Ásgeirsdóttir nemi í hönnun við FG hannaði til styrktar Mottu Mars, þeas Krabbameinsfélagi Íslands.


"Ég hannaði þetta eftir að hafa verið  með þessa hugmynd í ca. 2 ár og ákvaði að framkvæma hana í þessum frumkvöðlaáfanga í skólanum ," segir Ása Þórdís en hún ásamt þremur samnemendum sínum situr nú sveitt við að framleiða yfirvara slaufurnar fögru.


"Slaufan kostar 2000 kr, og ætlum að láta 500 kr frá hverji slaufu renna til Krabbameinsfélagsins. Það er ekki alveg komið í ljóst hvar þetta fer í sölu, en það er hægt að taka pantanir í e-mail hjá okkur, arcos.ehf@gmail.com en annars verðum við líka með bás í Smáralindinni helgina 9 mars, þar sem framhaldskólar í þessum áfanga er að keppa sem frumkvöðlar," segir Ása brosandi. 


Læk á Ásu og félaga! Þetta er mun smekklegra en lostakústar á öllum yfirvörum bæjarinns. Sumir hreinlega bera það ekki þó ég fagni fjölbreytileikanum þá má Tom Selleck eiga þetta lúkk mín vegna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?