ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

UM HVAÐ ERU ÞESSAR KOSNINGAR!?!

16:01 › 6. mars 2010

Margir sem ég hef rætt við vilja ekki kjósa þar sem þeir gera sér ekki grein fyrir hvað er verið að kjósa um. Fólk virðist halda að við séu að kjósa um hvort það eigi að borga ice-save kvekendið eða ekki ..sem er auðvitað löngu búið að ákveða að mun falla á okkur þó ekki sé á hreinu hversu mikið eða hvernig það verður greitt.



Óli Grís kemur þessu ágætlega frá sér á bls 2 í fréttablaðinu.. við erum sum sé að kjósa um að fá betri samning eða viðhalda þeim samning sem nú stendur og er mjög ósanngjarn .. burt séð frá því hvaða viðræður eru í gangi í augnablikinu! Enda er ekkert sem tryggir að þær viðræður skili neinu.

Þannig með því að kjósa ekki er fólk að samþykkja núverandi ástand í stað þess að fara fram á betri og hagstæðari samninga! 

Koma svo! Skellum okkur á kjörstað!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.