ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

ALLSBER MEÐ HÁRNET OG DÖMUBINDI Á FÓTUNUM!

08:47 › 5. mars 2010

Jæja.. ég er þeim eiginleika gædd að ef ég lendi í einhverju vandræðalegu eða skringilegu get ég með engu móti bara haldið kjafti og komist yfir það. Verð að segja öllum nákvæmlega hvað ég er hallærisleg.
Og enn og aftur af brúnkukremi.

Ég vil vera létt tönuð, ekkert skinkuð í drasl neitt og skammast mín ekkert fyrir það. Finnst fallega hvít húð mjög falleg en mín lítur bara út fyrir að hafa lent í klór ef ég set ekki smá litað body lotion á mig reglulega. Svo um daginn var mér bent á að brúnkusprey væri kannski málið fyrir mig til að koma mér undan hinum og þessum vandræðum sem brúnkukrem hefur komið mér í að undanförnu.

Þurfti að hugsa mig aðeins um enda fannst mér ekki heillandi að standa á rassinum fyrir framan ókunnuga konu í fangasturtustellingu og láta hana úða á mig einhverri drullu.

En að lokum sló ég til.

Fékk þau fyrirmæli að mæta í víðum fötum til að fara í eftir spreyið.

Okei dókei.

Ég mætti hress daginn eftir í íþróttagalla og var leidd inn í lítið herbergi með tveimur klefum. Vinaleg kona rétti mér eitthvað sem líktist svörtum klósett pappír og sagði mér að klæða mig í þetta og benti mér svo á tvö dömubindi og hárnet.



- Og þetta. Settu eyrun út fyrir hárnetið og stígðu ofan á skóna. Þeir límast við þig.

- Ha? Stíga ofan á dömubindið?

- Þetta lítur bara svona út. Þetta eru einota skór, svaraði konan og benti á dömubindslaga bréfsnifsið á gólfinu.

- Ræt.

Konan fór fram og ég klæddi mig í svarta tissjúið sem var víst einota g-strengur. Hrikalega hallærislegur og hefði rúmað tvo, þrjú eistu! Svo var það hárnetið og eyrun út fyrir og loks að líma dömubindsskóna á sig. Þarna stóð ég svo fyrir framan spegil nakin fyrir utan tissjú naríurnar, með eyrun út og dömubindin límd undir fæturna.

Mér hefur ALDREI fundist ég eins hallærisleg. Og mér hefur oft fundist ég hallærisleg.

Svo kemur konan inn og skipar mér inn í lítinn klefa og stillir mér upp í sérlega fangasturtu stellingu það er að segja hendur á vegg og lappir í sundur. Svo kom hún með lita ryksugu  og hófst handa við að spreyja mig með ískaldri brúnku drullu.

Niðurlægingin var alger!

Þegar þessu loks lauk þurfti ég að standa í einkennisbúningi brúnkunar í sex mínútur áður en ég mátti klæða mig og keyra illa lyktandi heim til mömmu í mat sem gerði óspart grín af mér.

En brúnkan daginn eftir var fín. Ég efast þó um að ég gæti vanist þessari niðurlægingu þó dömubindaskórnir hafi verið að gera gott mót.



Í Ameríku er hægt að leigja konu frá hinu geðþekka Techno Tan sem kemur heim til þín með klefann og alles! Hahahaha! Ætli það sé betra að láta niðurlægja sig í sinni eigin stofu? Fyrir utan lyktina sem kemur! Jii þá geta vinkonur slegið saman og fengið gelluna heim til að spreyja liðið fyrir djammið! Hópniðurlæging! Allir drullugir á djamminu vííí...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.