ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

EINKALÍFIÐ Í BEINNI ÚTSENDINGU Í HEILA VIKU!

12:34 › 2. mars 2010

Ég er fremur ný flutt í lítið sætt hús með fjórum íbúðum.
Hélt villt og tryllt innflutningspartí en gætti þess þó að allir væru farnir út um eitt.
Það kom engin kvörtun og mér fannst ég hafa sloppið nokkuð vel.

Svo leið vikan.

Og þá var dinglað.

Fyrir utan stóð brosmild kona sem býr á efri hæðinni.

- Hæ er dyrasíminn í rugli hjá þér? spurði hún ljúflega.

- Ha?, ég glápti bara á konuna án þess að skilja neitt.

- Heyrði að partíið hjá þér um helgina var ansi gott.

-  Já er það. Afsakið voru mikil læti?

- Nei, virkaði bara gaman. Það var allt í beinni.

Ha er þessi kona ekki í lagi? Allt í beinni???? Hvað meinar hún?

- Það eru skruðningar í dyrasímanum, bætti hún við en brosandi.

Hva, á ég að fara að gera við dyrasímann núna? Ég hrukkaði ennið og svara:

- Einmitt. Hef tekið eftir því ...

Hafði reyndar tekið eftir sarginu í dyrasímanum og jafnvel hugleitt hvort lítill njósnari leyndis í húsinu.

Þögn.

Konan horfði hissa á mig. Og ég horfði hissa til baka.

- Hann er líklega ekki á hjá þér fyrst ég heyrði partíið í gegnum anddyrið.

Ég snögg roðna í framan.

- Já ó.

Ég stekk inn í íbúðina og jújú dyrasíminn er hálfur á og hefur líf mitt því verið í beinni útsendingu í heila viku í anddyrinu í húsinu. Hvert einasta prump (ef ég myndi prumpa sem ég geri að sjálfsögðu ekki!) og hvert einasta orð hefur bergmálað um anddyrið fyrir hvern þann sem nennir að hlusta. Allt mitt einkalíf í mónó. Sem gefur leyndamálum mínum alls ekki réttan hljómgrunn. Þau þurfa pottþétt að vera í steríó!

Litli njósnarinn er ég sjálf! Bömmer.

Ég skelli tólinu á og stekk til baka í útidyrahurðina en rauð í framan.

- Já sæll, mar er bara í beinni í anddyrinu. (Hlæ gervihlátri með.)

Nágranninn brosir.

- Já fannst þetta eitthvað skringilegt hljóð og fattaði það þegar ég heyrði partíið í gegnum dyrabjölluna.

- Einmitt, svara ég fáránlega vandræðaleg í framan. Hvað hefur þessi kona heyrt? Hvað veit hún?

Ég þakka konunni vel fyrir og loka hurðinni til að hugsa um hvað ég er misheppnuð. Ákveð frekar að bilast úr hlátri .. ég bý á neðstu hæðinni og nenni sjaldnast að svara í dyrasímann heldur opna bara fram á gang þannig síminn hafði fengið að liggja svona skakkur í rúmlega viku. Sérlega smart!

Jæja hún veit þá allavega flest um mig þannig að ég þarf ekki að bjóða henni í sérlegt kynningarkaffi um mig og mín athæfi!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?