ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

MEÐ FITUNA, GLOSS Á BUMBUNNI OG FRISSÍ HÁR!

09:48 › 18. mars 2010

One of these days.. helvítis fokkig fokk.

Stilti klukkuna á 6:20.

Vaknaði 07:08 við að ég fékk símann í hausinn. Hafði snúsað í svefni og sett gsm símann ofan á sængina, orðið kalt, kippt í sængina og fékk símann í hausinn.

Var með fituna og drullaðist því á lappir, seint og illa og hlussaðist út í Sporthús. Vigtaði mig. Hafði þyngst um 300 grömm.

FOKKING FRÁBÆRT!

Drullaðist á brettið og hlunkaðist þar í 45 mínútur þar sem ég var orðin svo sein að ég náði ekki einu sinni þeim 60 mínútum sem ég virkilega þurfti á að halda!

Fór heim í sturtu, vakti systir mína (sem er 16 ára og ég er að passa heima hjá mö og pa), reifst við hana til að fá hana til að drífa sig. Reifst svo við hana út af nestinu sem hún vildi ekki taka með sér en ég var lengi að útbúa - hollt og gott. Henni fannst það - hundleiðilegt og ljótt.

Ætlaði að blása á mér hárið til að líta betur út og hressa munvikin við. Einmitt - mamma hafði tekið blásarann með sér norður. Frábært. Feitabolla með frissíhár!

En sá í glitta í von um betri morgun! Ég á nýja skyrtu sem ég keypti í síðustu viku og hef bara notað einu sinni. Náði að klessa gloss í hana og er alla vikuna búin að vera að nudda, blettaeyða og þvo til að ná blettinum úr. Sem tókst loksins!

Hjarta mitt var aðeins léttara við það að fara í nýju hreinu skyrtuna.. þanga til að ég náði að reka mínar ofurstóru asnalegu varir aftur í!! OG GLOSS ER BARA FITA OG BLETTURINN ER HUGES! Gangi mér vel að ná þessu úr!

FOOOOKKKKKKKKKKKK!!!!

Mætti í vinnuna með gloss á  + 300 gramma bumbunni minni og úfið hár. Fékk mér kl 10 millimáltíðina mína sem var pera. Beit í hana viss um að nú væri allt á uppleið .. þá ver peruhelvítið grjóthart!



HELVÍTIS FOKKING FOKK!

MYND: Stundum þarf að bíta í það súra.. maður fitnar allavega ekki af því!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.