ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

STUÐNINGSSTÖNGIN!

12:31 › 17. mars 2010

Þessi græja er alveg málið!

Mig langar mest í þessa með borðinu. Mér finnst þetta alger snilld. Myndi láta setja hana í gólfið á Austur og geyma rauðvínsglasið og sveifla mér svo nokkra hringi ef ég er í stuði. Svo kippir maður bara kvikindinu með heim !

Það er hægt að geyma allskonar litlar styttur og kryddbauka og jafnvel ilmvatnsprufur á borðinu. Það er alveg hrikalega rúmgott og frábært.

Svo er stöngin með hringgripinu frábær. Hægt að fara í strætóleik ef maður á hana. Setur stöngina bara beint fyrir innan útidyrahurðina ( helst aðalhurðina í blokk, þá færðu meiri monní) og raðar bara stólum fyrir aftan stöngina og rukkar fólk þegar það kemur inn. Ekki taka við skiptimiðum. Það voru mistök hjá mér.

Sjái þið bara hvað fólkið er ánægt með þessar stangir. Það getur ekki hætt að brosa!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.