ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

LOSAÐU ÞIG VIÐ VESEN OG VÆL!

11:21 › 16. mars 2010



Ég á margar góðar vinkonur og vini.
Af og til hefur eitthvað annað slæðst með.

Það er tilgangslaust að eiga vini eða vinkonur eða kærasta sem gera manni meira illt en gott. Ef þér finnst sambandið - hvort sem að það er vinasamband eða ástasamband, farið að taka of mikinn toll fyrir litla gleði hvet ég þig til að yfirfara málin.

Góð sambönd virka þannig að fólk bætir hvort annað upp. Auðvitað gerir fólk mistök og er ekki alltaf 100% en megin reglan er sú að þér líður betur með að hafa manneskjuna í kringum þig en ekki.
Þú getur treyst á hana og hún styður þig. Meiri hlátur en grátur.

Oft færist þetta aðalega yfir á annan aðillann og þú verður einhver boxhanski fyrir viðkomandi. Hann hringir þegar allt er í fokki. - Þú ert næs og spjallar. Hughreystir. Ert vinkona. Kærasta. Mamma eða systir eða hvað það nú er.

Svo vantar honum smá greiða. Nær ekki að redda þessu sjálfur.
Þú græjar það. Hann er svo upptekin þessi elska. En gott í honum.

Æi það eru allir að tala illa um hann.
Þú tekur upp hanskann. Þetta er góður drengur. Virkileg gott í honum.

Cut the crap og hættu þessari meðvirkni. Fullorðið fólk á að geta séð um sig sjálft. Það er í lagi að vera til staðar fyrir þá sem eru manni næstir og þú getur treyst á að séu til staðar fyrir þig en ekki þekkja fólk bara til að þekkja það er ekki málið.

Þá er betra að þekkja bara sjálfan sig betur.

Spurðu þig hvað þú sért að fá út úr þessu sambandi? Kostir og gallar?

Veldu vel hverjum þú raðar í kringum þig því pappakassarnir eru fljótir að falla saman þegar á reynir.

En samt er líf á vina lítið líf, því er líka mikilvægt að vera góður við þá sem eru góðir við okkur, Við vitum þetta en það er gott að minna sig á reglulega :)

Sendu bestu vinkonunni/vininum falleg skilaboð í dag. Það verður vel metið ef viðkomandi er ekki algjört fokk face!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.