
Ég kíkti út um helgina. Hellti bjór yfir Írisi á Boston, fór á tónleika á Dillon og lenti hliðin á sérlegum "pikk-öp-ara" á Austur. Ég átti mér einskins ills von þegar hann hallaði sér að mér og spurði skælbrosandi:
- Ertu íslensk?
Ég horfði hálf hissa á manninn enda var ég ekki klædd í plastföt eða nokkuð annað sem gæti gefið til kynna að ég væri eitthvað annað en íslensk.
- Já svaraði ég.
Maðurinn virtist verða fyrir þó nokkrum vonbrigðum en svaraði þó:
- Mikið hrikalega ertu falleg.
Ég horfði hissa á hann og sá ekki alveg samhengið í þessum tveimur setningum eða honum yfir höfuð.
- Takk fyrir það, svaraði ég pent og skaut mér framhjá útlendingaeftirlitinu og út á dansgólfið.
Sérlegt!
Mynd: frændi minn Geirmundur Jón að hlæja af þessari færslu.
Blogg
NÝJASTA PIKK-ÖP LÍNAN Í BÆNUM!
09:27 › 15. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
