ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

MESTA TURN OFF Í HEIMI?

10:46 › 12. mars 2010

Ég hef ansi oft reynt að setja saman einhvern prófíl yfir draumaprinsinn en hann breytist með hverju skipti sem ég hitti einhvern sem ég held að sé eitthvað varið í ..

en er svo sjaldnast nokkuð spennandi til lengri tíma...

Þetta eru ný samt flest allt góðir drengir. Bara hundleinðilegir, með hor eða langt og tilgangslaust tal um gervihnattadiska.

En svo hitti ég einn ansi álitlegan á skemmtistað um daginn.
Hann sat við barinn og við fórum að spjalla.

Maðurinn brosti svo bjart að ég kiknaði í hnjáliðinum. Gullfalleg ísblá augu, breitt bros og talar ekki út um rassgatið á sér. Vinnur hjá tryggingaféagi og spilar fótbolta. Klæðnaður sem segir ég er töffari en engin hnakki.

Ég fór strax að leita af framleiðslugalla eða ástæðu fyrir því að hann væri á lausu.

Fann ekkert.

Hann passar líka börn systur sinnar aðra hverja helgi og elskar að elda asískan mat.

Ég sat bar og brosti. Þvílíkur maður.

Eftir rúmlega hálftíma spjall sagðist hann ætla ða bregða sér á klósettið og bað mig að passa sætið sitt sem var hár barstóll.

- Auðvitað svaraði ég. Myndi sko verja þennan stól með kjafti og klóm.

Draumaprinsinn stökk niður af stólnum ...

var lengi í loftinu..

OG ENDAÐI VIÐ HLIÐIN Á BUXNASTRENGNUM HJÁ MÉR!

Brosti svo og skaust inn í mannþröngina eins og lítið barn sem veit að það er karamella falin á gólfinu.

Hann hefur ekki verið meira en 165 cm! 165!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Vonbrigðin heltust yfir mig. Maðurinn var ekki annað en sýnishorn af draumaprinsinum... ekki fáanlegur í fullri stærð.

Hvernig gat mér yfirsést þetta SMÁ atriði ?

Síðan þá hef ég oft séð hann. Situr alltaf á barstólnum.. kemur líklega með hann sjálfur.

Ég hefði þurft að taka hann í fangið til að kyssa hann. Hugleiddi það í eina mínútu að gefa honum séns. Katie Holmes og Tom Cruise eru enn saman.

En þá kom hann til baka og reyndi að klifra aftur upp á stólinn.

Þá hætti ég við.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.