Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

VILTU LÉTTAST ? - BRAGÐGÓÐ LEIÐ Í BOÐI BRÍETAR!

18. nóvember 2010 › 13:26

Ég fékk svo sterk viðbrögð við hveitikímsfærslunni minn að ég fór á stúfanna eftir fleiri uppskriftum og fékk þessar hjá vinkonunum Bríet og Sirrý.
"Ég svissaði brauðinu út fyrir hveitikím fyrir rúmu ári síðan því mér fannst ég bara blása út þegar ég borðaði brauð, semsagt hafði ekki gott af því og það kallaði alltaf á meira," segir Bríet kát og sér ekki eftir skiptunum.

"Hveitikím er eitthvað sem þú þarft að læra að elska, en það borgar sig, sérstaklega í kílóum, og spáðu í að þú ert að borða GRÆNMETI sem bragðast eins og brauð.
Mér finnst þetta snúast algjörlega um hvað þú setur út í það. Þeir sem setja bara salt og matarsóda t.d. líður eins og þeir séu að borða pappír! Ég bað vinkonu mína að hjálpa mér með ráðleggingar en þetta er svona hveitikím 101 frá okkur"

Það er best að blanda kímið með mjög heitu vatni úr krananum eða sjóðandi úr katlinum. Út í kímkökurnar er hægt að setja allan andskotann; sesamfræ eru vinsæl, eins birkifræ, kúmen eða graskersfræ. Setjið bara allt sem ykkur dettur í hug, rúsínur, ávexti, grænmeti etc. ef ykkur langar.
Endilega bara prófa sig áfram, en umfram allt muna að krydda! Og pínu ponsu dass af matarsóda/vínsteinslyftidufti lyftir kökunum örlítið. Svo mótar maður kökurnar eftir hentisemi; kringlóttar, ferkantaðar, smáar, ílangar...

Nokkrar eldunaraðferðir:

- Bakað í ofni (best fyrir byrjendur)
- Hitað í örbylgjuofni
- Steikt á pönnu
- Út í súrmjólk/ab-mjólk/mjólk/kotasælu
- Hrært í vatn (fljótlegt, ekkert sérlega gott samt)

Nokkrar hugmyndir:

- Sætt kex: steikt á pönnu upp úr olíu eða smjöri, seigfljótandi blanda á lágum hita. Hrært út með vatni og/eða sykurlausu bragðefni (Mælum með sykurlausu Kaffitárssírópunum frá Torani eða DaVinci).

- Pizzabotn: Salt, pipar, smá matarsódi, Heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum (eða annað gott eftir smekk, t.d. oreganó, hvítlauks eða paprikukrydd), hrært út með vatni. (Hægt að nota sömu uppskrift í samlokur eða panini og smyrja samlokugrillið bara vel áður).

- Kryddbrauð/jóla: Engifer, kanill, negull og smá matarsódi. Hrært út með vatni. Bakað í ofni. Lengi á lágum hita eða þar til kökurnar hætta að gefa eftir þegar það er potað í þær.

- Vínarbrauð: xylitol eða sykurlaus bragðefni, hitað í örbylgjuofninum (2 mín á mesta hita fyrir 30 gr. köku).

- Kex/brauð: smá matarsódi og salt. Í ofninn eða örbylgjuna, seigfljótandi


Prófa sig áfram með magn af vökva, útkoman er mismunandi og hver verður að finna hvað hentar best.

Meira vatn: Lengri bökunartími

Virkar best að elda/baka það á lágum hita ef það á að vera þurrt í gegn (tekur langan tíma).

ATH! Kímið verður eins og lím á öllu nema það sé smurt vel (með olíu eða smjöri t.d.) NEMA í sílikonformum, þau eru æði og virka langbest.

Svo gildir bara að prófa, prófa, prófa og ekki vera hrædd við að gera eitthvað sem engum öðrum hefur dottið í hug!

Bestu kveðjur, Bríet og Sirrý!



Myndir: frá stelpunum af eldhúsafrekum þeirra.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.