Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

PARTÍ SUMARSINS!!!

11. ágúst 2009 › 12:49

Næst komandi laugardag (15 ágúst) er blásið til Ofurhetjugleði í Hljómskálagarðinum kl 4 pm!
Alveg málið að dressa sig upp og mæta - set hér inn upplýsingar af facebook:

Hverjum hefur ekki langað til að vera Ofurhetja í einn dag? Skúrkur yfir eina nótt? Núna er tækifærið, klæddu þig upp sem ofurhetja og kondu og grillaðu, dansaðu sem ofurhetja með okkur!

15 ágúst ætlum við að vera með grill partý í hljómskálagarðinum þar sem verða tónleikar (bönd auglýst neðar) og ofurhetjukeppnir (T.D: Bjarga forsetanum og gladiator leikir) og fleiri skemmtilegheit!

KL 10 verður svo slökkt á tónleikunum og öllum verður þá boðið á PRIKIÐ þar sem verða verðlaun fyrir flottasta búningin og þeir sem eru í búning drekka frítt til 1 um nóttina, Dj-Hulk þeytir þakplötum, en ofurhetjum er hleypt fremst í röðina allt kvöldið!

og SVO: Ætlar Kiki-ow og Curver að bjóða fólki sem er klætt í ofurhetju búninga að komast inn á Nasa á hálfvirði eftir kl 2 :) ok næs!

Til þess að allir skemmti sér sem best:
Leggið smá vinnu í búningin, ekki bara skella á sig gardínuskikkju og segjast vera ofurhetja, ekki mæta sem bruce wayne eða clark kent S.s: þú verður að vera ofurhetja á vakt!

Böndin sem spila:
Gnúzi Jones and the crackers (reggea)
Mc Gauti (hip-rap)
Diddi Fel (hip-hop)
HookerSwing (rock)
Itchyblood (rock)
hljómsveitin þín? (hafðu samband)
OFl,,Ofl,,,ofl þannig að allir finna eitthvað við hæfi!

og til þess að allir mæti ekki sem sama hetjan:
Verður þú að tagga þína ofurhetju (nafnið þitt) á myndunum í grúppunni, eða þú getur fundið aðra hetju á þessum listum (linkar neðar) og taggað hvítu myndina með nafnun á hetjunni til að taka þá hetju frá! (ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ)

Leikir:
Reipitog
Gladiator jousting
Bjarga forsetanum
Teigju glíma (ef við finnum stóra teigju)


Hlakka Til Að Sjá ykkur

ps: Veit að Selma hjá Hexíu búningaleigu er með einhverja búninga - svo er bara að vera frumleg/ur og gramsa heima!



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.