ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE
Veröld Tobbu

Veröld Tobbu

Tobba er ókrýnd deitdrottning Íslands og fer hamförum í þeim efnum. Henni hefur lengi þótt vanta blogg um hvað er að ske um helgina, kokteila, mat, tísku, samskipti kynjanna og allan þann fjanda sem konur eiga til að velta sér upp úr. Tobba hefur gefið út þrjár bækur í þessum efnum og er vel að sér um hin ýmsu mál og er ekki hrædd við að láta til sín taka með lyklaborðið að vopni!

  • ÞEGAR ÉG SENDI LEONCIE EMAIL ...

    6. febrúar 2012


    Það hafa örugglega einhverjir tekið eftir dálæti mínu á Leoncie. Sú ást virðist ekki endurgoldin sem er svo sem allt í lagi. Sum sambönd eru þannig. En mig langaði að birta hér viðtalsbeiðni sem ég sendi Leoncie fyrir mörgum árum þegar ég bjó í Bretlandi í tilefni þess að hún bryddar upp á því blessuninn. En ég er reyndar enn á því að hún hafi verið biðarinnar virði þarna á Gauknum og stórgott kvöld í alla staði. Kalli minn er líka mikill aðdáandi, en hann hefur oft flutt Ást á pöbbnum með Baggalúti á tónleikum, þó það sé reyndar í hennar óþökk.  


    Hér byrja samskipti okkar í kjölfar þess að ég bið hana um viðtal.



    Þorbjorg Marinosdottir
    21.2.2008


    Hello Leoncie
    my name is Tobba an i am a journalist from Séð og Heyrt in Iceland.
    We are really interested in getting an interview with you. Would you be available the weekend between 29 of feb - 2 mars ?
    i will be in London that weekend.
    thank you and best regards
    Tobba



     


    LEONCIE MARTIN
    21.2.2008



    Sael
    Can I let you know later this evening or tomorrow morning?
    I am always Travelling  in and out of the UK and you will have to meet me somewhere in Essex, in Leigh-On-Sea. A Restaurant perhaps.
    Bestu Kvedjur
    Icy Spicy Leoncie.


     



     



    Þorbjorg Marinosdottir
    21.2.2008


    Hæ, thats fine, i would really like to meet you at your home if possible. I have heard that you have so many beautiful dresses and costumes that you preform in and it would be nice to have diffrent pictures of you in them and with your husband at home. The icelandic people are really interested in what you are doing now.Kind regards
    Tobba


     


     


    LEONCIE MARTIN
    22.2.2008
    Hi
    I am Michelle, Leoncie's assistant,She is recording in  Prague and therefore I cannot say when she will be back.
    You know the reason she left Iceland? It was because of
    Institutionalized Racism. She told me to tell you that She does not belong to the Rikisrekid Rokk Group.
     
    Regards
    Michelle


     


     


     


    Þorbjorg Marinosdottir
    24.2.2008


    til LEONCIE
    Im so sorry to hear that. i have always been a fan of Leoncie and her free spirit. I am also from Kópavogur so i loved her song about Kópavogur. She actually lived in the house i grew up in, in Vallagerði. I loved the roses in the garden. :)
    Leoncie still has a lot of dedicated fans in Iceland that frequently ask us about her, and she could read over the interview before i print it. I would be honored to meet her. :) And if she has any pictures from Prag and could tell me about her new album she is working on.


    best regards


    Tobba


     


     


    LEONCIE MARTIN
    21.3.2008


    Hello Tobba
    How are you?
    Why did you never tell me or write an article in your Icelandic paper ABOUT my website Domain Name which I created in 2002 AND IT was STOLEN by a brainless Icelandic Racist in Reykjavik ICELAND?
    My domain name which  I spent hundreds of thousands to promote was STOLEN BY AN ICELANDIC RACIST. Noone else in the world hates me like thatBrainless little white group of Talentless Icelandic Racists.
    Did you feel ashamed  that many Icelanders  who hate me and are jealous of my talent can only Steal, or Bribe, but actually are devoid of all creative talent. This thief has also been stealing all my stage names like ICY SPICY LEONCIE ETC.
    The only reason for TALENTLESS PATHETIC ICELANDERS, getting awards are because the icelandic government and embassies bribe people to get them."ITS CALLED RIKISREKID ROKK.
     Inspite of all the awards and propaganda NONE OF THE ICELANDERS HAVE SET THE WORLD ON FIRE. That's why they are jealous of every little thing I do. Need to steal my names. Sigurrusl even staels Indian Classical tunes and calls it theirs. Most Indians I know are laughing at those Fraudsters who cannot survive on their own, without the constant icelandic governments financial help. Rikisrekid Rokk Racists are Truly BENEFIT BUNNIES, like the British call such sponges.
    Jealous that God forgot them, white degenerates,. while he was giving talent to me an Indian Genius.
    Icelandic Racists called me all kinds of names that really being to them.Margur heldur Mig Sig.
    I left Iceland because of Relentless Racism. Now I can prove to the world that Iceland is and has been a very racist country for me. The Power of Indian Leoncie will strike suddenly It;s called Peoples power in India.
    I have all the proof in the world in the world with my lawyers, Black and White.
    Nobody in Iceland helped me when I was harassed by Icelandic Frauds who call them musicians.Even the Racist gievrnment said they would not give me styrk, because I would overshadow the talentless Icelandic Frauds in music.
    Icelanders should be ashamed of themselves and how they DISPLAY THEIR ABSCENCE OF TALENT to the rest of the world who only laughs at such retards.
    You told me that peopl in Iceland are curious about me now. They can all go to their racist hell. Hateful people.
    Happy Easter.
    Leoncie.


     



    Tobba


     


     

    Skrifa athugasemd

  • 50 KÍLÓ FARIN ÁN ÞESS AÐ STÍGA INN Í LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ!

    1. febrúar 2012

     


    "Ég fór nú kannski ekki alveg hefðbundnu leiðina að þessu þar sem ég fór í lap band aðgerðí Englandi þannig að ég er kannski ekki búin að vera að gera þetta eins og "það á" að gera þetta en þegar það er búið að prófa alla kúra og allt þá var ekki mikið eftir í boði ," segir Karen Lind Óladóttir (22) sem er nú 50 kílóum léttari eins og sést á þessari mynd sem hún póstaði á facebook síðu sinni í vikunni.


    "En svona í grunninn jújú byggist þetta á því sama .. borða bara þegar maður er svangur, hætta að borða þegar maður finnur seddutilfinningu, ekki drekka drykki með kaloríum í, ekki borða á milli mála, slaka á í namminu og snakkinu .. þetta er í rauninni það sem ég er búin að gera með hjálp bandsins," segir Karen sem hefur ekki stigið inn í líkamsræktarstöð síðan að hún fór í aðgerðina fyrir 20 mánuðum. "Það er því ljóst að þessi 50 kíló skrifast alfarið á mataræðið." 


    Var þetta mikil aðgerð ?


    "Nei ekki svo mikil, tekur u.þ.b. hálftíma í svæfingu og ég var flogin aftur til Íslands þremur dögum seinna. Þetta er miklu minna inngrip í líkamsstarfsemina en t.d. hjáveituaðgerð þar sem að það er ekkert verið að skera í líffærin heldur bara settur þessi silikonhringur um magaopið sem þrengir það og veldur því að maður fær seddutilfinningumun fyrr segir," Karen og bendir áhugasömum að kíkja inn á www.magaband.is


    Aðgerðir eru þó aldrei léttvægt mál og alls ekki eitthvað fyrir alla en þetta er möguleiki sem hentar einhverjum. Sjálf mæli ég þó með æfingum og réttu mataræði en auðvitað er það meira en að segja það og sumir sem verða að fá mun meiri aðstoða en kort í ræktina og grænmeti í ísskápinn!

    Skrifa athugasemd

  • ÞETTA VERÐUR ÞÚ AÐ SMAKKA! EKKI MEIRA TUSKUSPÍNAT!

    1. febrúar 2012

    Ég borða mikið salat en er að gefast upp á að kaupa heilu pokana af salati sem endast ekkert og þó salatið sé ekki útrunnið er einhver skelfileg tuskulukt sem tekur á móti mér strax og ég opna pokann. Það virðist einhvernvegin vera sett rakt í poka.


    Spínat er eitt af fáu salati sem er próteinríkt og ég nota það mikið í matargerð og sem meðlæti. Ég ákvað að gera extra vel við mig og keypti 150 gr box frá Lambhaga. Það fæst í Melabúðinni og Bónus. Ekki það ódýrasta en hverrar krónu virði.


    Annað eins góðgæti hef ég aldrei smakkað á Ílsandi. Áferðin, bragðið og brakandi ferskleikin var dásamlegur. Salatið var svo gott að ég klippti það út á salsakjúklingasúpuna sem ég var með í kvöldmat og notaði því spínatið sem krydd. Hef reyndar bara keypt þetta einu sinni en þvílík dýrð. Get ekki beðið eftir að komast í annan kassa.


    MMmmm áfram íslenskt!


     


    Mynd: Spínatið góða!

    Skrifa athugasemd

  • ÍSLENDINGAR Á DJAMMINU - MÁ ÞETTA?

    31. janúar 2012

    Það eru fáir eins hressir á djamminu eins og Íslendingar. Um helgina sá ég mann í risa dúnúlpu á dansgólfinu - sneddí ef maður er að rekast á fólk. Og konu sem dansaði svo ákaft að hún var alltaf með hálsmenið á bakinu. Svona á að gera þetta. Það er meira gaman að vera minna töff og dansa meira!


    Áfram Ísland!


    En svo reyndar kárnar gamanið yfirleitt á Ölstofunni. Ekkert gott gerist á djamminu eftir 3 krakkar mínir. Þar bauð maður mér að selja fyrir sig free range egg. Fannst ég vera rétta konan í að selja hamingjuegg - hljómar dirty en er það ekki. Hann tók það sérstaklega fram að ekki væri um neitt kinký að ræða. Bara free range egg!


    Einmitt.

    Skrifa athugasemd

  • LEONCIE LÉT BÍÐA EFTIR SÉR Í TVO TÍMA - MYNDBAND!

    29. janúar 2012

    Þá var komið að því. Ég var búin að maka á mig meiki og á leiðinni á Gauk á Stöng að sjá Leoncie stíga á stokk. 


    Ég fór i rándýrum félagskap út að borða fyrst - ekkert minna en rauðvín og steik dugði. Þetta yrði jú tímamóta kvöld. Við mættum strax og húsið opnaði kl. 21:00 til að fá sæti nálægt sviðinu, en ekki mörg sæti eru í húsinu. Full eftirvætingar sat ég á besta stað í húsinu með gin og tonic á kantinum og myndavélina tilbúna. Taktföst danstónlist dunaði og dansgólfið var stútfullt fyrir klukkan tíu. Virkilega góður plötusnúður sá um að allir væru vel heitir þegar Dr. Spock steig á svið klukkan 23:00 en tónleikarnir áttu að hefjast kl 22.00. Spock drengirnir voru vel biðarinnar virði og fóru algerlega á kostum. Þeir þökkuðu fyrir sig og stigu af sviði en þá leið og beið. Brugðið var á það ráð að setja upp tjald á sviði og sýna í kringum tíu video-myndbönd með prinsessunni. Svo kláraðist sú spóla og leið og beið. Þarna hefði verið sniðugt að bjóða afslátt á barnum. 


    Fólk var farið að kalla nafn prinsessunar með taktföstum hætti og púa á milli.


    LEONCIE! LEONCIE! LEONCIE! BÚÚ!! LEONCIE! LEONCIE! LEONCIE! 


    Allavega seint og síðar meir, klukkan að ganga eitt, mætir prinsessu splæsið ásamt 4 dyravörðum sem komu henni upp á svið, öllum 14 merkunum. Ekkert var minnst á seinkunina og prinsessan tók að munda míkrófónin. Festist reyndar í glimmerpeysunni en komst loks úr henni. Þá kom í ljós fagurblár toppur, sokkabuxur og vinalegar rasskinnar sem gægðust undan toppnum.


    Taktfastur dans tók við og fólk hreinlega trylltist af gleði. Flestir virtust fyrirgefa ansi hratt um leið og tvær mismunandi hárkollur tóku sviðið undir sig. Leoncie kann kannski ekki á klukku en hún kann að skemmta fólki. Myndirnar segja rest. Hún stóð undir öllum mínum væntingum - ógleymanlegt kvöld! Fögnum fjölbreytileikanum - þó svo að hann sé stundum snípsíður og seinn!


    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.