ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Úlfamaðurinn

Úlfamaðurinn

Úlfamaðurinn er kominn úr fylgsni sínu! Nú þegar Wolverhampton Wanderers eru komnir upp í Úrvalsdeild á Englandi sleppur hann lausum fótboltaáhuga sínum og lætur sleggjudómana falla óhikað í allar áttir.

Sterkustu (og veikustu) riðlarnir á HM næsta sumar

14:43 › 2. desember 2009


Úlfamaðurinn getur ekki stillt sig um að spekúlera í því hvernig riðlarnir á HM næsta sumar gætu litið út. Búið er að skipa þjóðunum 32 í fjóra hópa og síðan verður dregið í átta riðla á föstudaginn kemur, eitt lið úr hverjum hóp.

Í fyrsta hópnum eru átta sterkustu liðin undanfarin ár samkvæmt útreikningum FIFA. Þau eru:

Brasilía
Spánn
Holland
Ítalía
Þýskaland
Argentína
England
Suður-Afríka (sem gestgjafar)

Í næsta hóp eru lið frá Asíu, Norður- og Mið-Ameríku og Eyjaálfu:

Mexíkó
Bandaríkin
Suður-Kórea
Japan
Ástralía
Hondúras
Nýja-Sjáland
Norður-Kórea

Í þriðja hópnum eru lið frá Afríku og Suður-Ameríku:

Paragvæ
Ghana
Kamerún
Fílabeinsströndin
Nígería
Úrúgvæ
Alsír
Chile

Og í fjórða hópnum er afgangur Evrópuliðanna:

Frakkland
Portúgal
Danmörk
Serbía
Grikkland
Slóvakía
Sviss
Slóvenía

Lið frá sama heimshluta geta ekki raðast saman í riðla, nema náttúrlega Evrópuríkin. Úlfamanninum sýnist að eftir dráttinn á föstudaginn gæti sannkallaður "dauðariðill" litið svona út:

Brasilía
Mexíkó
Kamerún
Frakkland

Af þessum fjórum geysisterku liðum kæmust aðeins 2 áfram í 16 liða úrslit. En veikasti riðillinn gæti litið svona út:

Suður-Afríka
Nýja-Sjáland
Chile
Slóvenía

Og af þessum fjórum "ekki svo sterku" liðum kæmust líka 2 þau efstu áfram í 16 liða úrslit. Það getur því ýmislegt gerst á föstudaginn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.