Ekki veit Úlfamaðurinn hvers aðdáendur Liverpool eiga að gjalda. Liðið var það allra sigursælasta á Englandi og eitt þeirra allra sigursælustu í Evrópu líka. Núna virðast forráðamenn félagsins hins vegar telja fullgott fyrir þetta fornfræga félag að lenda í þriðja sæti í sínum riðli í Meistaradeild Evrópu, vera dottið út úr enska deildarbikarnum og hanga rétt ofan við miðju í ensku deildinni.
Það er talið sæmandi þessu liði, sem forðum spilaði flottasta fótboltann á Bretlandseyjum, að spila hundleiðinlegan og marklítinn bolta, þar sem allt veltur á frammistöðu 1-2 manna. Og það er tekið fullt mark á stjóranum, þegar hann telur fram sér til afsökunar, að meiðsli séu að hrjá liðið. Um síðustu helgi voru Frank Lampard og Didier Drogba, tveir bestu menn Chelsea, meiddir. Það var ekki að sjá á leik liðsins að neinn vantaði.
Hjá Chelsea hafa aðrir leikmenn getu til að koma í stað aðalmanna sem meiðast. Sama má segja um Manchester United og Arsenal. Hjá Liverpool er annað upp á teningnum. Þótt Rafael Benitez hafi eytt næstmest af peningunum í leikmannakaup síðustu árin (á eftir Chelsea) er afraksturinn örfáir mjög góðir leikmenn (Gerrard, Torres, Mascherano) en afgangurinn nær ekki upp í heimsklassa nema í einstaka leik. Rafael Benitez hefur nú haft 5 ár til að vinna titla með Liverpool, en það hefur ekki tekist. Afraksturinn er hreint út sagt ömurlegur.
Það á ekki að þurfa mörg ár til að vinna titil fyrir lið eins og Liverpool. Nú er þetta alveg að koma, tuðar Benitez á hverju ári. Á meðan vinna önnur lið Úrvalsdeildina, án þess að virðast alltaf hafa mikið fyrir því.
Sumir nefna Meistaradeildartitilinn 2005 sem merki um meinta "snilld" Benitez. Þar var nú raunin samt sú að leikskipulag og uppbygging Benitez misheppnaðist fullkomlega. Liðið var 0-3 undir í hálfleik. Það má segja að það hafi verið Steven Gerrard sem dreif sína menn áfram eftir leikhlé sem endaði með að Liverpool jafnaði og sigraði svo í vítaspyrnukeppni. Það var fyrirliðinn, ekki fótboltastjórinn, sem átti þann sigur.
Leikurinn gegn Debrecen í gærkvöldi var hreinasta hörmung. Menn geta bent á leiki eins og þegar Liverpool vann Manchester United um daginn til sönnunar því að Liverpool getur alveg spilað vel þegar mikið liggur við, en leikir eins og gegn Debrecen skipta ekki síður máli. Og þegar stórlið eins og Liverpool getur ekki náð meira valdi gegn algjöru miðlungs liði eins og Debrecen, þá verða aðdáendurnir að horfast í augu við að þetta er nú að verða fyrrverandi stórlið.
Benitez er löngu búinn að færa Liverpool allt sem hann hefur upp á að bjóða. Nú er hann þröskuldur í vegi liðsins og það ætti að vera búið að reka hann fyrir löngu. En eigendum liðsins finnst þetta líklega fullgóð frammistaða. Líklegt má telja að sorgarsagan um Liverpool haldi áfram.
Blogg
Sorgarsagan um Liverpool
10:12 › 25. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
