Fyrir utan sorgarsöguna í E-riðli Meistaradeildarinnar, þar sem Liverpool berst nú fyrir lífi sínu og mun áreiðanlega tapa, jafnvel þó væntanlega vinnist sigur í Debrecen í kvöld, þá er skemmtilegasti riðillinn F-riðill. Þar eiga stórlið Inter Milan og Barcelona í allskonar basli gegn "austantjaldsliðunum" Dynamo Kiev og einkum og sér í lagi hinu óþekkta Rubin Kazan.
Eins og staðan er nú er Inter í efsta sæti með 6 stig (1 sigur og 3 jafntefli), Kazan og Barca eru með 5 stig og Dynamo Kiev er neðst með 4 stig. Þar sem tveir leikir eru eftir er engin leið að segja hvernig þetta endar, þó hefðin krefjist þess auðvitað að Inter og Barca komist áfram.
Það væri sjónarsviptir að þeim úr Meistaradeildinni. Á hinn bóginn munu bæði Úkraínumennirnir í Dynamo og Rússarnir í Rubin leggja sig hálfu meira fram en ella, til að freista þess að bæta fyrir vonbrigði landa sinna vegna heimsmeistarakeppninnar í Suður-Afríku, en báðar þjóðirnar duttu út eftir umspil - og þóttu samt báðar sigurstranglegri. Úkraínumenn duttu út gegn Grikkjum, en Rússar urðu fyrir gífurlegu áfalli er þeir töpuðu fyrir smáríkinu Slóveníu.
Í kvöld fær Rubin Kazan Dynamo í heimsókn, meðan José Mourinho fer með sína menn í Inter til Barcelona. Úlfamaðurinn er viss um að meirihluti allra sem spá fyrir um þann leik þora ekki annað en spá 1-1 og vissulega væri jafntefli ekki óvænt. Fari svo er sigurliðið í leik Rubin og Dynamo í ágætri stöðu. Dynamo kæmist upp að hlið Inter með sigri, en ef Rubin vinnur og Inter gerir jafntefli, þá verður Rubin komið í efsta sæti riðilsins með 8 stig, Inter hefði þá 7 og Barca 6.
Og það þætti saga til næsta bæjar ef Rubin kæmist áfram á kostnað annaðhvort Inter eða Barcelona. En saga Rubin hefur líka verið lyginni líkust. Liðið er frá borginni Kazan, sem er höfuðborg fylkisins Tatarstan, en það er í Suðaustur-Rússlandi og þar voru og eru mongólsk áhrif sterk í sögu Rússlands. Íbúar í Kazan eru rétt rúm milljón, og Rubin er stærsta fótboltaliðið á staðnum, en það náði aldrei upp í efstu deildina í Sovétríkjunum gömlu.
Árið 2003 komst Rubin í fyrsta sinn upp í efstu deild Rússlands og fæstir bjuggust við því að þetta smálið gæti mikið gegn stórliðunum frá Moskvu sem einokuðu efstu sætin í deildinni. Frá því að rússneska úrvalsdeildin hóf göngu sína 1992 unnu lið frá Moskvu alltaf nema 1995 þegar lið frá Vladikavkaz í Ossetíu vann.
Rubin Kazan þótti standa sig furðu vel fyrstu árin í rússnesku deildinni með því að halda sér uppi, en árangurinn var reyndar gott betri, því liðið náði þriðja sæti 2003. Næstu ár gekk á ýmsu en liðið var greinilega að treysta stöðu sína í hópi hinna öflugustu í Rússlandi. Árið 2007 náði loks lið utan Moskvu að vinna deildina, Zenit frá St.Pétursborg, en þá varð Rubin Kazan í 10. sæti. Í fyrrasumar gerðist svo eitthvað óvænt hjá liðinu, það vann fyrstu sjö leiki sína og endaði uppi sem sigurvegari í rússnesku deildinni, öllum á óvart.
Nú í sumar og haust er Rubin svo búið að tryggja sér aftur sigur í deildinni þótt ein umferð sé eftir, liðið hefur örugga forystu en í öðru sæti er Spartak Moskva og síðan Zenit. Stórveldið CSKA Moskva er í fimmta sæti.
Athyglisvert er að þessum frábæra árangri (og góðum árangri í Meistaradeild Evrópu) hefur Rubin Kazan náð án þess að í liðinu sé nokkur einasti "stórkarl". Þjálfarinn er gamalreyndur þjálfari frá Túrkmenistan, Kúrban Berdyev. Engum tilgangi mundi þjóna að telja upp helstu menn liðsins, enginn þekkir þessa menn, en það segir þó minnst um gæði þeirra og hæfileika. Það er helst að menn þekki Sergei Semak, sem lék lengi með CSKA Moskvu og rússneska landsliðinu. Hann er fyrirliði Rubin Kazan.
Menn eru sífellt að kvarta undan því að fótboltinn nútildags sé lítið annað en peningamaskína stórfyrirtækja og lið eins og Manchester United, Liverpool, Chelsea, Real Madrid og fleiri séu fremur fjölþjóðafyrirtæki en fótboltaklúbbar. Þeir sem hafa áhyggjur af þessari þróun ættu að geta glaðst yfir góðum árangri Rubin Kazan og haldið með þeim í leiknum við Dynamo Kiev sem hefst nú síðdegis. Ef Rubin vinnur setur litla liðið mikla pressu á "stórfyrirtækin" Inter og Barcelona sem keppa sín á milli í kvöld.
Síðustu leikirnir í riðlinum, þann 9. desember, eru svo Inter-Rubin Kazan og Dynamo-Barcelona.
Blogg
Litla liðið í Meistaradeildinni
13:51 › 24. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
