Chelsea-menn mæta Úlfunum í dag klukkan þrjú. Leikurinn fer fram á heimavelli Chelsea og þó Úlfamaðurinn muni auðvitað halda með sínum mönnum gegn fjölþjóðafyrirtækinu í London er ómögulegt annað en spá því að þetta verði léttur sigur fyrir Chelsea. Úlfarnir reikna ekki sjálfir með því að fá svo mikið sem eitt stig út úr leiknum, og þó þeir berjist fyrir heiðurinn munu þeir varla berjast til síðasta blóðdropa.
Það gæti hugsanlega hjálpað Úlfunum að marga fastamenn vantar í Chelsea í dag. En þar sem bekkurinn er hvergi betur skipaður en hjá Lundúnaliðinu, þó mun það þó varla skipta sköpum. Það er athyglisvert fyrir aðdáendur Liverpool, sem fá martraðir í hvert sinn sem Gerrard og Torres eru ekki með vegna meiðsla, að í dag mun vanta Lampard, Drogba, Deco og Ballack í liði Chelsea (að ógleymdum Bosingwa) en enginn reiknar með að það veiki Chelsea-liðið að ráði.
Merkilegast við forföllin hjá Chelsea er að þau leiða til þess að sæti á bekknum fær Gael Kakuta, smádrengurinn sem varð þess valdandi að Chelsea hefur nú verið dæmt í bann á leikmannamarkaðinum í 18 mánuði, þó vafalaust mun þeim úrskurði verða hnekkt. Kakuta er skelfilega efnilegur, fæddur í júní 1991 og því 18 ára gamall. Ballack spilaði einu sinni með honum í varaliðinu og gjörsamlega heillaðist: "Eruði búin að sjá franska strákinn? Hann er mesta stjarnan."
Kakuta fæddist í Frakklandi en er reyndar af kongósku ætterni. Hann er sóknartengiliður og það er augljóst af þessum bútum af Youtube að hann er firna efnilegur. Þar sem því miður má reikna með því að Chelsea verði búið að tryggja sér þægilega stöðu gegn Úlfunum áður en mjög langt er liðið á leikinn, má reikna með að Kakuta fái tækifæri til að koma inn á.
Blogg
Fáum við að sjá nýjan snilling í dag?
11:45 › 21. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
