-
Svona eiga boltar að vera!
11. desember 2009
Úlfamaðurinn brá sér í Jóa útherja við Ármúla til að kaupa fótboltavörur handa yrðlingnum sínum. Þar er náttúrlega allt samkvæmt nýjustu tísku, og eins flott og fínt og hugsast getur. Hjá Jóa útherja er líka hægt að fá almennilegar ráðleggingar þeirra sérfræðinga sem þar vinna, ólíkt starfsfólkinu í stóru mörkuðunum.
En þótt allt sé splunkunýtt og fínt í búðinni, þá verður Úlfamaðurinn að viðurkenna að hann fékk sting í hjartað þegar hann sá innan um alla nýtísku fótboltana gamla leðurtuðru eins og þá sem notast var við á Melavellinum í gamla daga. Svona eiga boltar að vera, hugsaði Úlfamaðurinn með sjálfum sér. Þessir boltar eru víst ekki til sölu, fyrst og fremst til sýnis og samanburðar við nýjustu tækniboltana. En Úlfamaðurinn fyllist trega við að sjá þessa gamaldags bolta.
Myndin er af nánast alveg eins bolta og Jói hefur til sýnis, fagurkerum meðal viðskiptavina til ánægju!
Skrifa athugasemd
-
Sterkustu (og veikustu) riðlarnir á HM næsta sumar
2. desember 2009
Úlfamaðurinn getur ekki stillt sig um að spekúlera í því hvernig riðlarnir á HM næsta sumar gætu litið út. Búið er að skipa þjóðunum 32 í fjóra hópa og síðan verður dregið í átta riðla á föstudaginn kemur, eitt lið úr hverjum hóp.
Í fyrsta hópnum eru átta sterkustu liðin undanfarin ár samkvæmt útreikningum FIFA. Þau eru:
Brasilía
Spánn
Holland
Ítalía
Þýskaland
Argentína
England
Suður-Afríka (sem gestgjafar)
Í næsta hóp eru lið frá Asíu, Norður- og Mið-Ameríku og Eyjaálfu:
Mexíkó
Bandaríkin
Suður-Kórea
Japan
Ástralía
Hondúras
Nýja-Sjáland
Norður-Kórea
Í þriðja hópnum eru lið frá Afríku og Suður-Ameríku:
Paragvæ
Ghana
Kamerún
Fílabeinsströndin
Nígería
Úrúgvæ
Alsír
Chile
Og í fjórða hópnum er afgangur Evrópuliðanna:
Frakkland
Portúgal
Danmörk
Serbía
Grikkland
Slóvakía
Sviss
Slóvenía
Lið frá sama heimshluta geta ekki raðast saman í riðla, nema náttúrlega Evrópuríkin. Úlfamanninum sýnist að eftir dráttinn á föstudaginn gæti sannkallaður "dauðariðill" litið svona út:
Brasilía
Mexíkó
Kamerún
Frakkland
Af þessum fjórum geysisterku liðum kæmust aðeins 2 áfram í 16 liða úrslit. En veikasti riðillinn gæti litið svona út:
Suður-Afríka
Nýja-Sjáland
Chile
Slóvenía
Og af þessum fjórum "ekki svo sterku" liðum kæmust líka 2 þau efstu áfram í 16 liða úrslit. Það getur því ýmislegt gerst á föstudaginn.Skrifa athugasemd
-
Sorgarsagan um Liverpool
25. nóvember 2009
Ekki veit Úlfamaðurinn hvers aðdáendur Liverpool eiga að gjalda. Liðið var það allra sigursælasta á Englandi og eitt þeirra allra sigursælustu í Evrópu líka. Núna virðast forráðamenn félagsins hins vegar telja fullgott fyrir þetta fornfræga félag að lenda í þriðja sæti í sínum riðli í Meistaradeild Evrópu, vera dottið út úr enska deildarbikarnum og hanga rétt ofan við miðju í ensku deildinni.
Það er talið sæmandi þessu liði, sem forðum spilaði flottasta fótboltann á Bretlandseyjum, að spila hundleiðinlegan og marklítinn bolta, þar sem allt veltur á frammistöðu 1-2 manna. Og það er tekið fullt mark á stjóranum, þegar hann telur fram sér til afsökunar, að meiðsli séu að hrjá liðið. Um síðustu helgi voru Frank Lampard og Didier Drogba, tveir bestu menn Chelsea, meiddir. Það var ekki að sjá á leik liðsins að neinn vantaði.
Hjá Chelsea hafa aðrir leikmenn getu til að koma í stað aðalmanna sem meiðast. Sama má segja um Manchester United og Arsenal. Hjá Liverpool er annað upp á teningnum. Þótt Rafael Benitez hafi eytt næstmest af peningunum í leikmannakaup síðustu árin (á eftir Chelsea) er afraksturinn örfáir mjög góðir leikmenn (Gerrard, Torres, Mascherano) en afgangurinn nær ekki upp í heimsklassa nema í einstaka leik. Rafael Benitez hefur nú haft 5 ár til að vinna titla með Liverpool, en það hefur ekki tekist. Afraksturinn er hreint út sagt ömurlegur.
Það á ekki að þurfa mörg ár til að vinna titil fyrir lið eins og Liverpool. Nú er þetta alveg að koma, tuðar Benitez á hverju ári. Á meðan vinna önnur lið Úrvalsdeildina, án þess að virðast alltaf hafa mikið fyrir því.
Sumir nefna Meistaradeildartitilinn 2005 sem merki um meinta "snilld" Benitez. Þar var nú raunin samt sú að leikskipulag og uppbygging Benitez misheppnaðist fullkomlega. Liðið var 0-3 undir í hálfleik. Það má segja að það hafi verið Steven Gerrard sem dreif sína menn áfram eftir leikhlé sem endaði með að Liverpool jafnaði og sigraði svo í vítaspyrnukeppni. Það var fyrirliðinn, ekki fótboltastjórinn, sem átti þann sigur.
Leikurinn gegn Debrecen í gærkvöldi var hreinasta hörmung. Menn geta bent á leiki eins og þegar Liverpool vann Manchester United um daginn til sönnunar því að Liverpool getur alveg spilað vel þegar mikið liggur við, en leikir eins og gegn Debrecen skipta ekki síður máli. Og þegar stórlið eins og Liverpool getur ekki náð meira valdi gegn algjöru miðlungs liði eins og Debrecen, þá verða aðdáendurnir að horfast í augu við að þetta er nú að verða fyrrverandi stórlið.
Benitez er löngu búinn að færa Liverpool allt sem hann hefur upp á að bjóða. Nú er hann þröskuldur í vegi liðsins og það ætti að vera búið að reka hann fyrir löngu. En eigendum liðsins finnst þetta líklega fullgóð frammistaða. Líklegt má telja að sorgarsagan um Liverpool haldi áfram.Skrifa athugasemd
-
Litla liðið í Meistaradeildinni
24. nóvember 2009
Fyrir utan sorgarsöguna í E-riðli Meistaradeildarinnar, þar sem Liverpool berst nú fyrir lífi sínu og mun áreiðanlega tapa, jafnvel þó væntanlega vinnist sigur í Debrecen í kvöld, þá er skemmtilegasti riðillinn F-riðill. Þar eiga stórlið Inter Milan og Barcelona í allskonar basli gegn "austantjaldsliðunum" Dynamo Kiev og einkum og sér í lagi hinu óþekkta Rubin Kazan.
Eins og staðan er nú er Inter í efsta sæti með 6 stig (1 sigur og 3 jafntefli), Kazan og Barca eru með 5 stig og Dynamo Kiev er neðst með 4 stig. Þar sem tveir leikir eru eftir er engin leið að segja hvernig þetta endar, þó hefðin krefjist þess auðvitað að Inter og Barca komist áfram.
Það væri sjónarsviptir að þeim úr Meistaradeildinni. Á hinn bóginn munu bæði Úkraínumennirnir í Dynamo og Rússarnir í Rubin leggja sig hálfu meira fram en ella, til að freista þess að bæta fyrir vonbrigði landa sinna vegna heimsmeistarakeppninnar í Suður-Afríku, en báðar þjóðirnar duttu út eftir umspil - og þóttu samt báðar sigurstranglegri. Úkraínumenn duttu út gegn Grikkjum, en Rússar urðu fyrir gífurlegu áfalli er þeir töpuðu fyrir smáríkinu Slóveníu.
Í kvöld fær Rubin Kazan Dynamo í heimsókn, meðan José Mourinho fer með sína menn í Inter til Barcelona. Úlfamaðurinn er viss um að meirihluti allra sem spá fyrir um þann leik þora ekki annað en spá 1-1 og vissulega væri jafntefli ekki óvænt. Fari svo er sigurliðið í leik Rubin og Dynamo í ágætri stöðu. Dynamo kæmist upp að hlið Inter með sigri, en ef Rubin vinnur og Inter gerir jafntefli, þá verður Rubin komið í efsta sæti riðilsins með 8 stig, Inter hefði þá 7 og Barca 6.
Og það þætti saga til næsta bæjar ef Rubin kæmist áfram á kostnað annaðhvort Inter eða Barcelona. En saga Rubin hefur líka verið lyginni líkust. Liðið er frá borginni Kazan, sem er höfuðborg fylkisins Tatarstan, en það er í Suðaustur-Rússlandi og þar voru og eru mongólsk áhrif sterk í sögu Rússlands. Íbúar í Kazan eru rétt rúm milljón, og Rubin er stærsta fótboltaliðið á staðnum, en það náði aldrei upp í efstu deildina í Sovétríkjunum gömlu.
Árið 2003 komst Rubin í fyrsta sinn upp í efstu deild Rússlands og fæstir bjuggust við því að þetta smálið gæti mikið gegn stórliðunum frá Moskvu sem einokuðu efstu sætin í deildinni. Frá því að rússneska úrvalsdeildin hóf göngu sína 1992 unnu lið frá Moskvu alltaf nema 1995 þegar lið frá Vladikavkaz í Ossetíu vann.
Rubin Kazan þótti standa sig furðu vel fyrstu árin í rússnesku deildinni með því að halda sér uppi, en árangurinn var reyndar gott betri, því liðið náði þriðja sæti 2003. Næstu ár gekk á ýmsu en liðið var greinilega að treysta stöðu sína í hópi hinna öflugustu í Rússlandi. Árið 2007 náði loks lið utan Moskvu að vinna deildina, Zenit frá St.Pétursborg, en þá varð Rubin Kazan í 10. sæti. Í fyrrasumar gerðist svo eitthvað óvænt hjá liðinu, það vann fyrstu sjö leiki sína og endaði uppi sem sigurvegari í rússnesku deildinni, öllum á óvart.
Nú í sumar og haust er Rubin svo búið að tryggja sér aftur sigur í deildinni þótt ein umferð sé eftir, liðið hefur örugga forystu en í öðru sæti er Spartak Moskva og síðan Zenit. Stórveldið CSKA Moskva er í fimmta sæti.
Athyglisvert er að þessum frábæra árangri (og góðum árangri í Meistaradeild Evrópu) hefur Rubin Kazan náð án þess að í liðinu sé nokkur einasti "stórkarl". Þjálfarinn er gamalreyndur þjálfari frá Túrkmenistan, Kúrban Berdyev. Engum tilgangi mundi þjóna að telja upp helstu menn liðsins, enginn þekkir þessa menn, en það segir þó minnst um gæði þeirra og hæfileika. Það er helst að menn þekki Sergei Semak, sem lék lengi með CSKA Moskvu og rússneska landsliðinu. Hann er fyrirliði Rubin Kazan.
Menn eru sífellt að kvarta undan því að fótboltinn nútildags sé lítið annað en peningamaskína stórfyrirtækja og lið eins og Manchester United, Liverpool, Chelsea, Real Madrid og fleiri séu fremur fjölþjóðafyrirtæki en fótboltaklúbbar. Þeir sem hafa áhyggjur af þessari þróun ættu að geta glaðst yfir góðum árangri Rubin Kazan og haldið með þeim í leiknum við Dynamo Kiev sem hefst nú síðdegis. Ef Rubin vinnur setur litla liðið mikla pressu á "stórfyrirtækin" Inter og Barcelona sem keppa sín á milli í kvöld.
Síðustu leikirnir í riðlinum, þann 9. desember, eru svo Inter-Rubin Kazan og Dynamo-Barcelona.Skrifa athugasemd
-
Fáum við að sjá nýjan snilling í dag?
21. nóvember 2009
Chelsea-menn mæta Úlfunum í dag klukkan þrjú. Leikurinn fer fram á heimavelli Chelsea og þó Úlfamaðurinn muni auðvitað halda með sínum mönnum gegn fjölþjóðafyrirtækinu í London er ómögulegt annað en spá því að þetta verði léttur sigur fyrir Chelsea. Úlfarnir reikna ekki sjálfir með því að fá svo mikið sem eitt stig út úr leiknum, og þó þeir berjist fyrir heiðurinn munu þeir varla berjast til síðasta blóðdropa.
Það gæti hugsanlega hjálpað Úlfunum að marga fastamenn vantar í Chelsea í dag. En þar sem bekkurinn er hvergi betur skipaður en hjá Lundúnaliðinu, þó mun það þó varla skipta sköpum. Það er athyglisvert fyrir aðdáendur Liverpool, sem fá martraðir í hvert sinn sem Gerrard og Torres eru ekki með vegna meiðsla, að í dag mun vanta Lampard, Drogba, Deco og Ballack í liði Chelsea (að ógleymdum Bosingwa) en enginn reiknar með að það veiki Chelsea-liðið að ráði.
Merkilegast við forföllin hjá Chelsea er að þau leiða til þess að sæti á bekknum fær Gael Kakuta, smádrengurinn sem varð þess valdandi að Chelsea hefur nú verið dæmt í bann á leikmannamarkaðinum í 18 mánuði, þó vafalaust mun þeim úrskurði verða hnekkt. Kakuta er skelfilega efnilegur, fæddur í júní 1991 og því 18 ára gamall. Ballack spilaði einu sinni með honum í varaliðinu og gjörsamlega heillaðist: "Eruði búin að sjá franska strákinn? Hann er mesta stjarnan."
Kakuta fæddist í Frakklandi en er reyndar af kongósku ætterni. Hann er sóknartengiliður og það er augljóst af þessum bútum af Youtube að hann er firna efnilegur. Þar sem því miður má reikna með því að Chelsea verði búið að tryggja sér þægilega stöðu gegn Úlfunum áður en mjög langt er liðið á leikinn, má reikna með að Kakuta fái tækifæri til að koma inn á.Skrifa athugasemd

















