-
ÞVARGIÐ Í BJARNA AÐEINS TIL HEIMABRÚKS
27. október 2009
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins var eitthvað að þenja sig í Stokkhólmi í dag.
Vandræðaleg þjóðremba, sýnist mér á fréttum, t.d. hér.
Formaður hrunflokksins rífur hár sitt og skegg yfir því hvað allir hafa verið vondir við aumingja litla Ísland sem ekkert hafði til saka unnið.
Væntanlega hafa forsvarsmenn hinna Norðurlandanna orðið steinhissa.
En þeir vita líklega ekki að þetta þvarg Bjarna var fyrst og fremst til heimabrúks.
Bjarni Benediktsson er, hvað sem öðru líður, alveg óvitlaus maður.
Hann veit þess vegna alveg að það var engan veginn sjálfsagt að okkar norræna "fjölskylda" skyldi rjúka upp til handa og fóta og lána okkur fullt af pening meira og minna skilmálalaust.
Eftir allan okkar flumbrugang, frekju og jafnvel glæpsamlegt framferði - ekki síst á Norðurlöndunum.
En ræðu Bjarna er beint til heimastjórnararms Sjálfstæðisflokksins, til að sýna að Bjarni hafi bein í nefinu og sé treystandi til að vera formaður Sjálfstæðisflokksins.
Því um það eru ekki allir sammála í hrunflokknum.
Þeir sem vilja kenna útlendingum (og í hæsta lagi útrásarvíkingum) um allt okkar böl telja Bjarna alltof linan.
Ræðan átti að sannfæra þá um að Bjarni væri töff gæi.
Henni var beint til sértrúarsafnaðarins í Hádegismóum.
En í leiðinni bætti Bjarni nú varla úr skák okkar gagnvart Norðurlandaþjóðunum sem þurftu að hlusta á þetta.Skrifa athugasemd
-
LÁTIÐ VILLIFÉÐ Í FRIÐI!
27. október 2009
Magnús Sveinn Helgason hefur gefið sér svolitla stund frá rannsóknum sínum á bandarískum stjórnmálum til að halda uppi þessum vörnum fyrir íslenskt villi sauðfé.
Ég mundi náttúrlega aldrei taka mér í munn orðið sveitavargur en að öðru leyti er ég alveg sammála Magnúsi.Skrifa athugasemd
-
ÖGURSTUND Í DAG?
27. október 2009
Ögurstund mun renna upp í samskiptum ríkisstjórnar og "aðila vinnumarkaðarins" nú í dag.
Og horfir í bili ekki vænlega um að stöðugleikasáttmálinn verði endurnýjaður, ekki a.m.k. af ASÍ og SA.
Um hin fínni blæbrigði þess sem um er rætt veit ég ekki nóg, það viðurkenni ég.
En ég vil einungis hvetja alla aðila til að ná þegar í stað sáttum. Það hlýtur að vera hægt.
Allt upp í loft á vinnumarkaði er ekki það sem við þurfum þennan vetur.
Það þurfa allir að skilja, ekki einungis ríkisstjórnin.Skrifa athugasemd
-
ÉG VILDI VERA LEGÓKALL!
26. október 2009
Þegar ég var lítill strákur voru legókubbar uppáhaldsdótið mitt. Ég gat dundað mér lengi við að búa til hitt og þetta, þótt í þá daga hafi ekki verið um auðugan garð að gresja í kubbavali - miðað við alla fjölbreytnina nútildags.
Seinna, þegar ég fór sjálfur að ala upp börn, otaði ég gjarnan að þeim legókubbum og oftast þegar ég og blessuð börnin fórum í lególeik endaði það með því að börnin voru löngu farin að gera eitthvað annað þegar ég lá enn og skemmti mér til að setja eitthvað saman úr kubbunum.
Núna sýnist mér að allt gangi út á bíómyndir hjá Legó-fyrirtækinu. Framleiddir eru kassar þar sem líkt er eftir sviðsetningu vinsælla bíómynda, og legókallar búnir til eftir helstu hetjum og skúrkum myndanna.
Hér er til dæmis Batman:
Um daginn las ég í blöðunum að nýjasta þema Legó á þessu sviði væri byggt á ævintýramyndinni Prince of Persia, sem væntanleg er í bíó. Svo skemmtilega vill til að Gísli Örn Garðarsson úr Vesturporti leikur þar stórt hlutverk - "vesírinn" sem ég held að sé einn af vondu köllunum.
Alla vega eru allar líkur á að Gísli Örn sé hér með orðinn legókall!
Það þykir mér afar skemmtilegur frami, og öfundsverður. Það sem ég hefði ekki gefið á mínum yngri árum fyrir að verða legókall!
Hér er Gísli Örn, menn geta reynt að píra augun og sjá hann fyrir sér sem kubbslegan legókall:Skrifa athugasemd
-
UPPÞOT Á MÁLFUNDI
26. október 2009
Ég hlýt að taka undir Láru Hönnu Einarsdóttur hér. Ég sá ekki allan kaflann í Silfri Egils þar sem Unnur Brá Konráðsdóttir lét að sér kveða, en þetta var alveg óvenjulega slæm frammistaða hjá konunni.
Sem væri nú sök sér, og stafar kannski í og með af því líklega er hún óvön að koma fram í sjónvarpinu og ætlaði ekki að láta vaða yfir sig, en endaði því miður á því að vera sífellt að vaða yfir alla aðra.
En þessi afsökun dugar þó varla, því ég er því miður smeykur um að stöðug frammígrip Unnar Brár séu afleiðing af því hvernig þingstörf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa þróast frá hruninu.
Þingmenn gjamma stöðugt fram í, svo þinghaldið - sem maður vonaði að myndi skána þegar þingmenn stæðu frammi fyrir svo geigvænlegum vanda sem nú er raunin - er farið að bera keim af uppþoti á málfundi, ekki í menntaskóla, heldur í grunnskóla.
Þar hefur Unnur Brá lært hvernig á að stunda "umræðu".Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- Næsta »


















