-
HVAÐ GERA ESB-ANDSTÆÐINGAR NÚ?
4. nóvember 2009
Bráðskemmtilegt er að Páll Theódórsson eðlisfræðingur skuli nú hafa sett allt upp í loft í landnámssögunni með því að setja fram í skýru máli þá kenningu að landnám Íslands hafi ekki byrjað um 874, eins og Ari fróði reiknaði út, heldur hafi landnámið hafist heilum tveim öldum fyrr.
Eyjan segir hérna frá grein Páls í Skírni þar sem þessu haldið er fram.
Það hefur nokkuð lengi verið opinbert leyndarmál að landnámið hafi ekki hafist eins og Ari fróði segir frá því.
Í tímaritinu mínu, Sögunni allri, var í hitteðfyrra til dæmis vakin athygli á kenningum um að byggðin í Reykjavík kunni upphaflega að hafa verið eins konar verstöð rostungaveiðimanna, sem hafi haft hér aðsetur a.m.k. alllöngu áður en Ingólfur Arnarson á að hafa verið hér á kreiki.
Bæði hér á bloggsíðunni og í Sögunni allri mun ég fylgjast með afdrifum þessa máls; það er löngu tímabært að hefja almennilega umræðu um landnám Íslands.
Við hjá Sögunni allri höfum reyndar nýlega spjallað við Pál um einmitt þetta.
Til skamms tíma, þá gæti kenning Páls (og margra fleiri, ekki gleyma því) haft þær óvæntu afleiðingar að andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu verði að breyta svolítið um taktík.
Þeir hafa óspart vitnað til upphaf byggðar í landinu í sínum málflutningi um að Íslendingar megi undir engum kringumstæðum glata neinu af fullveldi sínu.
Og þá haldið því fram að hér hafi menn fyrst sest að sem "pólitískir flóttamenn" á flótta undan "kúgun konungsvaldsins" (hins illa Haraldar hárfagra).
Endurómur af ljóði Jónasar Hallgrímssonar um "frjálsræðisins hetjurnar góðu".
Lengi hefur að vísu verið vitað að sögurnar um "frjálsræðishetjurnar" er bara bull. Jafnvel út úr Landnámu og Íslendingabók, þar sem frásagnir af landnáminu eru þó vafalítið fegraðar mjög, má lesa að það var svo sannarlega misjafn sauður í mörgu fé meðal þeirra sem settust hér að.
Í þeim tilfellum sem eitthvað er sagt um tildrög landnámsins var mun oftar um að ræða glæpamenn og morðingja á flótta en einhverja frelsisunnendur, tala nú ekki um sjálfstæðismenn!
Og Norðmenn hafa fyrir löngu komist að þeirri niðurstöðu að mynd íslenskra heimilda af Haraldi hárfagra er bara bull. Hann var alls ekki einhver kúgunarherra yfir öllum Noregi. Hann var í hæsta lagi smákóngur á meðal smákónga.
Það er svona alveg á mörkunum að hann hafi verið til.
Á þetta allt hefur verið bent ótal sinnum, en samt hafa andstæðingar ESB-aðildar haldið áfram að vitna til landnámsins sem flótta frelsiselskandi hugumstórra hetja undan "erlendu" kúgunarvaldi Haraldar konungs.
Og jafnvel dregið síðan einhverjar ályktanir út frá því um innbyggt "frelsiseðli" Íslendinga!
Og í framhaldi af því hafa margir sem vilja ganga í ESB mátt sæta ásökunum um landráð af því þeir "svíki" anda "frjálsræðishetjanna".
Ef kenningar um að landnám hafi hafist um 670 en ekki 870 fá almennt fylgi, þá dugar ekki að vitna framar í þessar gömlu þjóðsögur Ara fróða.
Vegna þess einfaldlega að að því marki sem Haraldur hárfagri var yfirleitt til, þá kom uppgangur hans upphafi Íslands byggðar ekkert við.
Og þeir sem vilja vitna til landnámsfrásagna Ara fróða og félaga sem einhvers konar "sannleika" geta eins vitnað í Búkollu eða Gilitrutt.Skrifa athugasemd
-
ER HANNES HÓLMSTEINN GENGINN AF GLÓRUNNI?
3. nóvember 2009
Er Hannes Hólmsteinn Gissurarson genginn af glórunni?
Þetta er kannski dónalega spurt, en ég veit ekki hvernig á öðruvísi að orða þá spurningu sem vaknar eftir lestur á pistli Hannesar um Sjálfstæðisflokkinn nýlega. Því þar skrifar Hannes:
"Þar sem næg er sólin, stendur enginn í skugga neins."
Hann er að tala um Sjálfstæðisflokkinn!
Þarf eitthvað að hafa orð um hve þetta er kexruglað?Skrifa athugasemd
-
HEIMSKULEGASTA ÞJÓÐIN?
3. nóvember 2009
Eigum við verstu bankamenn í heimi? Það segja sumir. Aðrir kjósa frekar að trúa því að við eigum verstu kaupsýslumenn í heimi.
Enn aðrir álíta að bankamennirnir og kaupsýslumennirnir hafi bara teygt sig eins langt og misheppnað eftirlitskerfi leyfði, og nær væri að segja að við ættum verstu stjórnmála- og embættismenn í heimi.
Sumir gætu jafnvel fabúlerað um að Íslendingar í heild væru einhver versta þjóð í heimi - svo mjög sem hún bruðlaði á "góðæristímanum".
En ég get huggað fólk með því að engin af þessum nafnbótum á í reynd rétt á sér.
Nafnbæturnar verstu bankamennirnir, verstu kaupsýslumennirnir, verstu stjórnmálamennirnir og verstu embættismennirnir hljóta allar að falla í skaut eyríkisins Nauru á Kyrrahafi.
Um hörmuleg örlög Nauru er fjallað í nýjasta hefti SKAKKA TURNSINS, í sérkafla í blaðinu um "það allra versta" á ýmsum sviðum.
Íbúar á Nauru voru um skeið ein ríkasta þjóð í heimi af því þar voru dýrmætar fosfat-námur.
Þær voru þó takmörkuð auðlind og íbúarnir einsettu sér að fara vel með peningana, og safna þeim í digran sjóð sem gæti dugað þeim vel þegar fosfatið væri búið.
En þrátt fyrir góð áform klúðruðu Nauru-búar sínum málum svo hraustlega að jafnvel við Íslendingar komumst ekki í hálfkvisti við það.
Meðal þess sem kemur fram í SKAKKA TURNINUM að Nauru-menn hafi sólundað fé sínu í var söngleikur á Broadway sem var víst einhver sá allra misheppnaðasti sem þar hefur sést.
Og aðrar fjárfestingar Nauru-manna voru eftir því.
Við erum sem mestu mannvitsbrekkur í samanburði við aumingja Nauru-menn.Skrifa athugasemd
-
NÖFNIN TAKK, OG ÞAÐ HELST Í GÆR
2. nóvember 2009
Tuttugu manna harðsvíraður flokkur hefur leikið að sér að því að brjóta gegn lögunum um gjaldeyrishöftin.
Eins og kemur fram hér og hér.
Sum fyrirtæki virðast hafa brotið gegn anda laganna, en ekki bókstaf.
Það var svo sem auðvitað að það væri hægt.
Og líka svo sem auðvitað að ekki væri hægt að treysta fyrirtækjum til að halda anda laga, nema þau væru hlekkjuð við bókstaf þeirra.
En í öðrum tilfellum virðist um hreinræktað svindl að ræða, að því er frétt Ríkisútvarpsins hermir.
Við hljótum að krefjast þess að fá að vita hvaða fyrirtæki þetta eru, og hvaða einstaklingar þetta eru.
Ég get ekki séð neitt því til fyrirstöðu að nöfnin verði birt þegar í stað.Skrifa athugasemd
-
DÁSAMLEGUR FORSTJÓRI GUNNARS-MÆJÓNESS
2. nóvember 2009
DV birtir í dag einhverja skemmtilegustu frétt sem ég hef séð lengi.
Um forstjórann hjá Gunnars-mæjónesi.
Gunnars-mæjónes hefur lengi verið svona fastur punktur í tilverunni. Það er eitthvað hæfilega lúðalegt og ljómandi heimilislegt við bæði vörumerkið og lógóið.
Maður hefði haldið að fyrirbæri eins og Gunnars-mæjónes rúllaði bara áfram af sjálfu sér; þaðan væri fárra tíðinda að vænta.
En það er nú eitthvað annað.
Fyrirtækið virðist vera hálfgert skrípó.
Eða kannski bara svona óvenjulegt!
Sjá þessa frétt hér.
DV birtir líka búta upp úr þessum makalausu auglýsingum um einstaka hæfileika Kleópötru Kristbjargar. Þeir bútar eru þannig að maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta.
Ég verð að viðurkenna að þessar auglýsingar höfðu farið framhjá mér fram að þessu.
En á því verður breyting nú!Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- Næsta »


















